Þjóðmál - 01.09.2011, Qupperneq 47

Þjóðmál - 01.09.2011, Qupperneq 47
 Þjóðmál HAUST 2011 45 sig í verkfræði í háskóla hvort sem hann fer í MA eða VMA, að því gefnu að hann hafi tekið nokkurn veginn jafnmikið af áföngum í stærðfræði og raungreinum í sínum framhaldsskóla sinna . Í öðru lagi er ekki nóg að hugsanlega sé til staðar fjölbreytni hvað efnistök eða kröfur námsins varðar . Aðalatriðið varðandi fjölbreytni er sjálft námsframboðið og námskipulagið svo og ólíkar leiðir í kennsluháttum . Augljóst er að námsframboð og skipulag náms í framhaldsskólum er keimlíkt enda miðstýrt af hinu opinbera . Sömu sögu er að segja um kennsluhætti og áherslur . Spurningin á ekki að snúast um hvaða skóli sé bestur heldur hvaða skóli sé bestur fyrir hverja . Til samanburðar er hæpið að tala um bestu líkamsræktarstöðina í Reykjavík því skoðanir fólks á því hvaða líkamsrækt hentar fer eftir hverjum og einum . Framhaldsskólar hér á landi búa við of mikla miðstýringu sem hefur leitt til einsleitni . Spurningin er því sú hvernig aukinni fjölbreytni í þessu samhengi er best við komið . En er þetta bara ekki í lagi eins og er? Vitaskuld er margt vel gert í hinum ríkisreknu framhaldsskólum og næsta víst að fjölmargir nemendur hafa lítinn áhuga á miklum breytingum . Því fer hins vegar fjarri að það eigi við alla . Til glöggv- unar á því skulum við láta nægja að líta á þrjár staðreyndir: Um 40% nemenda eru skilgreindir sem • viðvarandi brottfallsnemendur Meðalnámstími til stúdentsprófs er 5,5 • ár Nemendum af erlendu bergi brotnum • gengur illa Séu þessar staðreyndir skoðaðar í samhengi má ætla að í mesta lagi helmingur ungs fólks finni sig í íslenskum framhalds skól- um . Kallast það glæsilegur árangur? Þótt óvenju lítið hafi farið fyrir þessari dapurlegu staðreynd vita yfirvöld menntamála sem og fjölmargir stjórnmálamenn af henni en hafa ekki enn fundið ráð hvað gera skuli . Hvers vegna? Ég tel a .m .k . þrjár skýringar liggi þar að baki . Í fyrsta lagi er það þannig að þeir sem ráða mestu um mótun menntakerfisins eru upp til hópa fólk sem sjálfu gekk ágætlega í skóla og það skortir því innsýn og skilning á því hvers vegna stórum hópi nemenda líður illa í skóla . Í öðru lagi er viðbúið að fólk, sem farið hefur halloka í skólakerfinu, sé oft fólk sem skortir sjálfsöryggi til að hafa sig í frammi á opinberum vettvangi auk þess sem það er ekki freistandi að mæta fordómum vegna slæms gengis í skóla á árum áður . Því verða sjónarmið þessa þó fjölmenna hóps illa út undan . Í þriðja lagi er ljóst að í kerfi, þar sem ríkið hefur nokkurs konar einokun á mennt- un, er nánast ógjörningur fyrir aðila á frjáls- um markaði að stofna framhaldsskóla til að koma til móts við óánægða nemendur, því ekki er nóg með að slíkur skóli þurfi að inn heimta sérstök skólagjöld til að standa undir rekstri heldur þarf viðkomandi skóli líka að uppfylla ótal skilyrði, sem ríkið setur . Þannig eru verulegar skorður settar varð- andi námsframboð því einkaskólar verða að kenna eftir almennri námskrá mennta mála- ráðu neytisins eins og ríkisskól arnir . Með öðrum orðum, lítið svigrúm er til nýjunga í náms framboði og efnistökum . Þannig verða allir að ljúka umtalsvert stórum kjarna í tilteknum námsgreinum, t .d . heilum fimm áföngum í íslensku auk þess sem bundið val í formi kjarnagreina innan námsbrauta er á margan hátt hamlandi fyrir nemendur .
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.