Þjóðmál - 01.09.2011, Qupperneq 72
70 Þjóðmál HAUST 2011
á árinu 2020 á kaupmáttur almenn ings
að fara fram úr því, sem var fyrir hrunið
2008 . Sá er hins vegar munurinn, að
kaupmátturinn 2007 stóð á brauðfótum
rangrar gengisskráningar á grund velli
erlendra lántaka, en árið 2020 mun
hann standa traustum fótum, þ .e . á eins
konar gullfæti strangrar hagfræðilegrar
efnahagsstjórnunar og markaðshagkerfis .
Öðru vísi fær þetta litla hagkerfi ekki
staðizt ólgusjó alþjóðlegra hagsveiflna .
Eftirmáli
Framangreint er ekki skýjaborgir, held-ur raunhæfar hugmyndir um viðreisn
hagkerfis, sem verður leyst úr klaka-
böndum hafta og forræðishyggju með
svipuðum hætti og á 7 . áratug 20 . aldar-
innar á Íslandi . Þá tók við af vinstri stjórn
markaðssinnuð ríkisstjórn, sem gjör breytti
hagkerfinu með innleiðingu mark aðs-
lausna . Lykilmál fyrir Íslendinga nú er
að vaxa út úr vandanum, þ .e . að skapa
aðstæður fyrir öflugan og stöðugan hag -
vöxt til að ráða við skuldavandann án þess
að draga þjóðfélagið niður í svaðið með
niðurs kurði, sem hamlar hagvexti .
Allar grunnforsendur eru fyrir hendi til
þess, öfugt við það, sem þjóðir evrusvæðisins
í vanda búa við . Frjálst einkaframtak og sjálf-
stæð mynt er grundvöllur góðs árangurs .
Með því að nýta frelsi sitt og fullveldi
geta Íslendingar siglt fram úr flestum öðrum
þjóðum og orðið á meðal þriggja tekjuhæstu
þjóða Evrópu um 2020 .
Þá ríður hins vegar á að setja skynsemina
í öndvegi og að beita beztu þekkingu,
sem fyrir hendi er, á öllum sviðum þjóð-
félagsins .
Allir vinna!
Um daginn var hér [sjá bls . 33 í þessu hefti] lagt fram lítið dæmi um iðnaðar-
mann sem stendur frammi fyrir því að bæta
við sig verki upp á 100 þúsund krónur . Það
var niðurstaðan úr þessu dæmi að hann
héldi eftir 35% af greiðslunni en 65% færu í
virðisaukaskatt, tryggingagjald, tekjuskatt og
lágmarksframlag í lífeyrissjóð . Því til viðbótar
á hann á hættu að barna- og vaxtabætur
skerðist . Að því loknu gæti staðið innan við
fjórðungur eftir . Er að undra að mönnum
þyki freistandi að sleppa því að taka Steingrím,
Indriða og Jóhönnu með í reikninginn?
Það kemur ekki á óvart að iðnaðarmenn
bjóði 20 til 50% afslátt af uppsettu verði með
virðisaukaskatti haldi menn þremenning -
unum utan við málið .
En eins og svo oft í viðskiptum þá þarf að
minnsta kosti tvo til . Þeir sem kaupa þjón-
ustuna þurfa einnig að afla tekna til að greiða
fyrir hana .
Maður bætir við sig vöktum hjá þýð ing ar-
þjónustu utanríkisráðuneytisins . Hann situr
sveittur við fram á kvöld og snarar til skipunum
um lestarferðir, vínrækt og nautaat og þiggur
195 þúsund krónur fyrir . Af þeim greiðir hann
allt að 46,21% í tekjuskatt . Eftir lífeyrisgjöld
fær hann um 100 þúsund krónur útborgaðar .
Ef hann greiðir iðnaðarmanninum 100
þús und krónurnar fyrir viðvikið fara sem
áður segir 65% í skatt og annan lögboðinn
frá drátt . Af 195 þúsund krónunum enda 35
þús und hjá iðnaðarmanninum .
Til að eiga fyrir 35 þúsund krónum handa
iðnaðarmanni þurfa menn að bæta við sig
195 þúsund krónum í laun .
Allir vinna .
„VefÞjóðviljinn“, andriki .is, 9 . ágúst 2011 .