Þjóðmál - 01.06.2013, Side 15
14 Þjóðmál SUmAR 2013
Augu og eyru úti um allt
Skömmu fyrir fall Þýska alþýðulýðveld-is ins 1989 voru starfsmenn Stasi orðnir
91 .015 talsins . Til viðbótar voru 174 .000
skráðir uppljóstrarar (Mitarbeiter), en þeir
voru mikilvæg viðbót við hið alsjáandi auga
Stasi . Meira að segja í Vestur-Þýskalandi var
Stasi með ríflega 1 .500 uppljóstrara . Um
2,5% austur-þýsku þjóðarinnar, á aldrinum
18 ára til 60, störfuðu fyrir Stasi sem var
stærsti atvinnurekandi landsins . Á 40 ára
tímabili, frá 1950 til 1989, þáðu 274 .000
manns föst laun frá Stasi . Talið er að einn af
hverjum 63 Austur-Þjóðverjum hafi unnið
með Stasi sem náði slíkum völdum yfir
þjóðinni að meira að segja Gestapo-menn
hefðu orðið grænir af öfund . Á sumum
sviðum eru tölur enn á reiki, talið er að allt
að 500 .000 manns hafi með einhverjum
hætti starfað fyrir Stasi en eyðilegging gagna
eftir fall Berlínarmúrsins hefur torveldað
upplýsingaöflun . Fyrrverandi stjórnendur
leyniþjónustunnar eins og Rainer Wiegand,
sem var ofursti innan Stasi, hafa áætlað að
allt að tvær milljónir manna hafi með einum
eða öðrum hætti unnið fyrir Stasi .
Hlutverk uppljóstraranna var að hafa
augu og eyru opin í hinu daglega lífi, reka
erindi fyrir tengiliði sína og leggja íbúðir
sínar undir eftirlit eða fundi ef ástæða
var til . Um 10 .000 hinna svokölluðu
uppljóstrara voru undir 18 ára aldri .
Hvað eftir annað komu börn upp um
„andbyltingarstarfsemi“ for eldra sinna
sem að sjálfsögðu eitraði fjöl skyldu líf . Í
hverjum stigagangi var að minnsta kosti
einn uppljóstrari sem gaf reglu lega skýrslu
um athafnir fólks og sagði sam stundis frá
öllu óvenjulegu . Það að dveljast úti við um
nótt gat verið hluti af því . Hótelherbergi og
jafnvel heimili voru hlaðin upptökuvélum .
Skráagataeftirlitið var algert . Á Stasi-
safninu getur maður ekki annað en kímt
yfir tæknistigi og búnaði Stasi sem oft
einkenndist af kauðskri hugkvæmni en bar
þess auðvitað vitni að landið hafði ekki efni
á að tæknivæða uppljóstrarakerfið . Það sem
skorti í tækni var bætt upp með fjölda . Eigi
að síður var kerfið skilvirkt upp að vissu
marki og gríðarlegum upplýsingum um
nánast allt er varðaði einkalíf borgaranna
var safnað saman .
Starfsskyldur starfsmanna Stasi tóku
mið af heraga . Því voru engin tækifæri
til að efast um tilgang tilskipana eða
hika við framkvæmd þeirra . Það varðaði
ströngum agaviðurlögum, fangels unum
og jafnvel dauða . Stasi rak 15 héraðs-
skrifstofur (Bezirksverwaltungen) og
209 svæðaskrifstofur (Kreisdienstellen) í
Austur-Þýskalandi . Net stofnunarinnar
náði til hvers einasta kima þjóðfélagsins .
Þegar hugsað er til þess að Sovétmenn
ráku til viðbótar þessu ríflega þúsund
manna njósnanet í Austur-Þýskalandi þá
er ljóst að erfitt var að hreyfa sig án þess