Tímarit Máls og menningar - 05.06.2001, Síða 43
þessar aðstæður jafngildir því að tvö börn hafi
verið borin út.(*8) Ástæða er til að ætla að fólk
ofmeti áhrif fóstureyðinga á fólksfjölda.
Líklegra er að fóstureyðingar hafi allt eins áhrif á
tímasetningu fæðinga og fjölda barna. Fóstur-
eyðingar geta þannig stuðlað að því að fólk
eignist börn þegar það hentar börnunum sjálfum
og aukið þannig gæði þeirra.
Kostnaður er sífellt að breytast. Ódýrari og
fullkomnari getnaðarvarnir hafa lækkað
kostnað við að stunda kynlíf. Tilkoma alnæmis
hefur auki kostnaðinn, sérstaklega á kynlífi
samkynhneigðra karlmanna. Kostnaður við að
lifa tækifærissinnuðu kynlífi og að hafa
samfarir í endaþarm án smokks hefur hækkað
gífurlega þar sem smithættan er mest við
slíkar aðstæður.(*9)
II. Jafnvægi á kynlífsmarkaðinum
Það sem sker úr um hegðun fólks er samspil
kostnaðar og ábata athafna. Fólk tekst á
hendur athafnir þar til jaðarábati er jafn
jaðarkostnaðinum. Á mynd gæti þetta litið út
svona þar sem eftirspurnarferillinn lýsir
jaðarábata athafnar og framboðsferillinn lýsir
jaðarkostnaði hennar:
Eins og myndin sýnir er eftirspurnarferillinn
niðurfallandi en hann lýsir jaðarábata kynlífs.
Samkvæmt þessari mynd fer jaðarábati kynlífs
minnkandi sem þýðir að fólk er tilbúið að
greiða sífellt minna fyrir meira kynlíf.
Framboðsferillinn er hins vegar upphallandi
sem þýðir að jaðarkostnaður kynlífs eykst við
það að stunda það oftar. Jafnvægi á markaði
fyrir kynlíf næst þar sem framboðs- og eftir-
spurnarferlarnir skerast. Ákveðin utanað-
komandi öfl geta sveiflað framboðs- og eftir-
spurnarferlunum og við það næst nýtt jafnvægi.
Fólk breytir hegðun sinni við verðbreytingar,
úr þeirri kynhegðun sem er hlutfallslega dýr í
kynhegðun sem er hlutfallslega ódýr. Fólk
stundar nú meira öruggt kynlíf í kjölfar
alnæmis. Þetta stafar af því að tækifæris-
sinnað kynlíf hefur orðið hlutfallslega dýrara
miðað við öruggt kynlíf.(*10) Samspil kostn-
aðar og ábata ræður þannig úrslitum um
kynhegðun.
Richard Posner heldur því fram að fram-
hjáhald karlmanna hafi minnkað á 20. öld vegna
þess að það er nú hlutfallslega mun dýrara.(*11)
Hjónabönd eru nú frjálsir samningar tveggja
aðila og þá hafa réttindi og fjárhagslegar
aðstæður kvenna batnað mikið. Þetta þýðir að
nú er hlutfallslega mun ódýrara fyrir konur að
skilja við menn sína og þ.a.l. hefur framhjáhald
eiginmanna orðið dýrara. Gera má ráð fyrir því að
framhjáhald sé meira hjá körlum og eru ástæðurnar
fyrir því tvær. Annars vegar má færa fyrir því rök að
það sé töluvert ódýrara (að öðru jöfnu) fyrir karla að
halda framhjá konum sínum. Karlmenn ferðast mun
meira einir en kvenmenn og því eru minni líkur á því
að upp komist um framhjáhald þeirra. Það virðist líka
vera að kynhvöt karlmanna sé meiri en kvenna og
því ætti eftirspurn þeirra eftir framhjáhaldi (að öðru
jöfnu) að vera meiri.(*12) Þeir ættu því fremur að
stunda framhjáhald auk þess að vera tilbúnir til að
greiða hærra verð fyrir það.
Ef mjög hátt verð er á kynmökum notar fólk
staðkvæmdir eða hefur ekki kynmök. Í þessu
sambandi er áhugavert að skoða áhrif mismunandi
kynjaskiptingar. Hér er kosið að tala um eftirspurn
og framboð af konum, en alveg eins væri hægt að
líta á þetta sem eftirspurn og framboð af
karlmönnum. Þannig er hægt að sjá að eftir því sem
færri konur eru miðað við karlmenn (fleiri karlar á
hverja konu) því hærra er verð á konum. Það er ljóst
að brengluð kynjaskipting er körlum í óhag
vegna þess að það þýðir hærra verð á konum.
Þegar verð á konum er hátt þá má búast við því
að karlar skipti úr kynhegðun sem er
hlutfallslega dýrari yfir í kynhegðun sem er
hlutfallslega ódýrari. Það er ekki óeðlilegt að gera
ráð fyrir því að afbrigði af samkynhneigð, sjálfsfróun
og vændi séu meira áberandi þar sem kynjahlutföllin
eru brengluð.(*13) Í Grikklandi til forna voru mun
fleiri karlar en konur vegna þess að algengt var að
bera stúlkubörn út. Þetta þýddi mjög hátt verð á
konum. Afleiðing þessa var að vændi blómstraði,
jafnframt því sem ekki þótti ósiðlegt að ungir menn
legðust með táningum, en þeir eru á margan hátt
líkari konum en körlum. Færa má rök fyrir því að
þessi kynhegðun stafaði af háu verði á konum, þar
sem margir karlar litu á samræði við vændiskonur og
unga drengi sem staðkvæmd við samræði við konur
af sömu stétt. Þannig má ætla að táningspiltarnir
hafi verið staðkvæmdarvara fremur en að sam-
kynhneigð hafi verið útbreiddari en nú.
Það eru fyrst og fremst konur sem tapa á því
að fjölkvæni og fjölveri skuli vera bannað en
karlmenn hagnast á því. Við fjölkvæni er líklegt að
einhverjir karlmenn myndu eiga fleiri en eina konu.
Af því leiðir að færri konur eru fyrir þá sem eftir eru
bls. 43Sólmundur Ari Björnsson: Hagfræði kynlífs - hvað kostar að halda framhjá?
Verð
Kynlíf
framboð
eftirspurn
(*8) Posner, Richard (1992). Sex and Reason (bls. 144). USA: Harvard University Press.
(*9) Í kjölfar tilkomu alnæmis má ætla að margir samkynhneigðir karlar hafi kosið að eiga í föstum samböndum. Ljóst er að þetta
ástand er verra en það sem áður var, þetta er ófullkomin staðkvæmd. Ef þetta hefði verið fullkomin staðkvæmd hefði mátt búast við
því að meira hefði verið um föst sambönd þeirra.
(*10) Það er hins vegar ljóst að öruggt kynlíf er ófullkomin staðkvæmdarvara fyrir tækifærissinnað kynlíf vegna þess að annars hefði
fólk í mun meira mæli stundað öruggt kynlíf fyrir tilkomu alnæmis.
(*11) Það er ástæða til að efast um að framhjáhald hafi almennt minnkað eins mikið og Richard Posner virðist gefa til kynna í bók
sinni. Þetta stafar af því að framhjáhald kvenna er nú hlutfallslega ódýrara en áður. Konur eru fjárhagslega sjálfstæðari núna og geta
því fremur leyft sér að halda framhjá mönnum sínum án þess að eiga á hættu að verða á vonarvöl ef þeir yfirgefa þær. Tiltölulega
öruggar getnaðarvarnir hafi einnig dregið úr líkum á þungun og þannig lækkað kostnað bæði karla og kvenna af framhjáhaldi.
(*12) Í the Economist, 14. feb. 1998 (bls. 17) er sagt frá könnun sem gerð var í Bandaríkjunum. Þar kom fram að 22% karla en aðeins
14% kvenna hafa stundað framhjáhald. Þetta gefur sterka vísbendingu um að karlar haldi frekar framhjá en konur.
(*13) Til eru mörg dæmi um að fólk hafi haft mök við dýr. Ein skýringin á þessu getur verið að um staðkvæmdarvöru sé að ræða og
makar hafi ekki verið til staðar.
(*14) Auðvitað myndu margar konur koma til með að eignast fleiri en einn maka. Samt má ætla að færri konur en karlar komi til með
tmm júní 22x27 Ó 5.6.2001 19:58 Page 43