Tímarit Máls og menningar - 05.06.2001, Blaðsíða 57
bls. 57Staðalmyndir
myndirnar fyrir bæklinginn en fyrirsæturnar eru
allar búsettar á Íslandi. Junio er Ingólfur Arnarson en
sjóarinn í Sæþoku Gunnlaugs Scheving heitir Tómas
Nyung Hjartarson. Rung Arun Sorada er í hlutverki
fjallkonunnar. Íslenska búninginn sem hún klæðist
hannaði Sigurður Guðmundsson, málari, sem
mestan heiður átti af skreytingum á 1000 ára afmæli
Íslandsbyggðar 1874. „Ég komst að því eftir að
myndin var tekin að mynstrið er gert úr haka-
krossinum sem þá hafði allt aðra merkingu en í
dag,“ segir Vala. „Það má þó lesa eitthvað úr þessu
ef fólk vill.“
Staðalmyndir
„Fordómar stafa af því að fólk er dæmt eftir
staðalmyndum. Mig langaði að setja fólkið sem
dæmt er inn í íslenskar staðalmyndir,“ segir Vala
Þóra Sigurðardóttir, nýbakaður grafískur hönnuður,
um lokaverkefni sitt frá Listaháskóla Íslands.
Verkefnið var bæklingur þar sem nokkrar
dæmigerðar íslenskar ímyndir hafa skipt litum.
Fjallkonan, Ingólfur Arnarson og sjóari Gunnlaugs
Scheving eru, í meðförum Völu, orðin að tákni fyrir
litbrigði nútímans á Íslandi. „Umræðan um
fjölmenningarlegt samfélag er áberandi hvar sem
maður kemur,“ segir Vala. „Ég vildi nýta hana og
vekja fólk til umhugsunar. Hugmyndin kviknaði
þegar ég vann að BA-ritgerð minni um tákn
og merkingu í myndmáli þar sem ég var að skoða
hvernig fólk upplifir myndir og tákn.“ Texti
bæklingsins er fenginn úr bók Guðrúnar
Pétursdóttur, Fjölmenningarleg kennsla, og fjallar
meðal annars um rasisma, ný-rasisma og
þjóðhverfu. Vala segir þó að bæklingurinn sé ekki
hugsaður sem áróðursefni heldur fyrst og fremst
fræðsluefni. „Ég vildi gera þetta án þess að
predika,“ segir hún og neitar því að hún ætli að
einbeita sér að pólitískri eða hugmyndafræðilegri
hönnun í framtíðinni. Jean Marie Babonneau tók
tmm júní 22x27 Ó 5.6.2001 19:59 Page 57