Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.06.2001, Qupperneq 62

Tímarit Máls og menningar - 05.06.2001, Qupperneq 62
Farsíminn lék instrúmentað stef úr 9. sinfoníu Beet- hovens, hátt og skerandi. Vera flýtti sér að opna viðamikið kvenveskið til að þagga niður í óhljóð- unum, reif upp heklaða buddu, varalit, fölbláa sjálfshjálparbók og hálft Snickers en síminn kom ekki í leitirnar fyrr en hún grýtti varanælonsokkunum á stéttina og æpti: „Þegiðu, djöfuls skrapatólið þitt!“ Þó gat hún ekki stillt sig um að svara eftir að hafa andað djúpt og stunið tvisvar sinnum: „Jafnvægi er uppspretta orkunnar.“ Þessa setningu hafði Vera annaðhvort lesið í fölbláu bókinni eða á pappalokinu á kamilluteinu sem hún keypti í Heilsuvörubúðinni deginum áður. Takmörkuð orku- uppsprettan gufaði upp þegar karlmannsrödd glumdi í hægra eyra hennar: „Vera!“ „Já. Ég er Vera.“ „Ertu með kvef?“ „Hvað áttu við?“ spurði hún hlessa. „Bara ... þú hljómar eins og illa kyrktur þorskur.“0„Fyrirgefðu! Við hvern tala ég?“ „Englarassinn minn. Ertu með harðlífi eða hvað? Þetta er ég, Karl.“ Vera ranghvolfdi augunum, tveimur ljósbláum en rauðþrútnum speglum sálarinnar, huldum ljósrauðum hártoppi. „Ég þekki engan Karl.“ „Hvaða púkastælar eru þetta, elsku karlynjan mín, ég er búin að bíða eftir þér síðan í gærkvöldi.“ Sárinda gætti í rámri röddinni. „Síðan hvað? Ég var á spítala í gærkvöldi.“ „Spítala?“ „Já. Ég var flutt í flýti á spítala vegna hroðalegra magaverkja um kvöldmatarleytið og gisti þar til vonar og vara.“ „Hroðalegra?“ „Já.“ „Sú Vera sem ég þekki fékk ekki nógu margar heilasellur í vöggugjöf til að brúka orð á borð við „hroðalegra“.“ „Þá hringdir þú í vitlaust símanúmer.“ „Nú!“ „Og þar af leiðandi er best að þú slítir samtalinu.“ „Bíddu nú hæg! Af hverju á ég að slíta samtalinu?“ „Vegna þess að þú hringdir í vitlaust númer,“ útskýrði Vera óþolinmóð. „Ég spurði um Veru Guðmundsdóttur hjá 118 og fékk beint samband í þetta númer. Mistökin verða ekki rakin til mín, elskan mín. Vandamálið felst í því að þið eruð alnöfnur.“ „Sökin skiptir ekki máli, enda liggur hún eflaust hjá símastúlkunni hjá 118. Málið snýst um að slíta samtalinu svo þú þarft að kveðja mig ... æj, ég hefði ekki átt að kenna símastúlkunni um. Hvað er að mér? Aumingja hún ... “ „Gerðu okkur báðum greiða, ljúfan, og hættu að velta þér upp úr bláókunnugri símastúlku. Segðu mér frekar hvers vegna það fellur í minn hlut að slíta samtalinu. Getur þú ekki alveg eins gert það?“ „Nei,“ þvertók Vera. „Ég er ófær um að hafna fólki.“ „Ha?“ „Já. Ég fæ þrá- hyggjufullt samviskubit í slíkum aðstæðum. Ef ég legg núna á þig mun hausinn á mér fyllast af móral, hræðilegri vanlíðan, sem hverfur ekki fyrr en ég hef haft upp á þér og beðist afsökunar.“ „Þvílíka og aðra eins vitleysu hef ég aldrei heyrt norðan Alpafjalla, enda þótt ég sé sjálfur þráhyggjusjúklingur. Væri ekki ráð að taka á vandanum núna, stíga fyrsta skrefið í átt að bata og slíta samtalinu, jafnvel skella á mig. Ég verð alls ekki 1 . f l o k k u r – S t a ð i r H a l l g r í m s k i r k j a Ö s k j u h l í ð V i ð e y j a r s t o f a S t i g a h l í ð 6 Ú t v a r p s h ú s i ð R ú l l u s t i g i n n , K r i n g l u n n i A r n a r h ó l l V a r ð s k i p i ð Þ ó r L e i ð 6 , M j ó d d – G r a n d a r L a n d s p í t a l i n n 2 . f l o k k u r – M u n i r G l e r a u g u S t e i k a r h n í f u r G i f t i n g a r h r i n g u r G o l f k y l f a F e r ð a t a s k a Framhaldssaga í tíu köflum, skrifuð af tíu höfundum. Hver höfundur Söguhetjurnar eru Karl Hermannsson og Vera Guðmundsdóttir. Um þau er Framhaldssaga tmm Saga án fyrirheits Auður Jónsdóttir „Ég stend örfáum skrefum frá anddyri Kvennadeildar Landspítalans.“ tmm júní 22x27 Ó 5.6.2001 19:59 Page 62
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.