Tímarit Máls og menningar - 05.06.2001, Side 63
framhaldssagan, Auður Jónsdóttir bls. 63
móðgaður. Ég lofa því.“ Vera hunsaði
uppástunguna. Athygli hennar beindist að
öðru: „Ert þú þráhyggjusjúklingur?“ „Var ég
ekki að enda við að segja það?“ „Jú, en
hvernig lýsir þráhyggjan sér í þínu tilfelli?“
„Tja, ég verð að bursta tennurnar á
klukkutímafresti, alltaf á slaginu. Ég verð að
skipta um sængurver á hverjum degi. Ég verð
að borða 10 vítamíntöflur á hverjum degi,
annars hellist yfir mig hræðsla við krabbamein.
Og ég verð að hitta Veru á hverju kvöldi. Hún
kom ekki í gær og því svaf ég ekkert í nótt. Ég
elska hana á afar þráhyggjufullan hátt. Skilurðu
mig, ég hygg að ég þrái hana daginn út og inn.
Og ég get varla hugsað um neitt annað en
Veru, nema ef vera skyldi tennurnar, rúmfötin,
vítamínin og önnur smáskítslegri þráhyggjuefni. Ég
skarta ennþá giftingarhring, samt eru tvö ár síðan
við Vera skildum.“ „Hvers vegna heimsækir hún
þig á hverju kvöldi?“ „Henni þykir vænt um mig;
hún kveðst elska mig. Á hinn bóginn þolir hún ekki
allsherjar þráhyggjuna. Henni er um megn að búa
með manni sem bryður vítamín eins og sælgæti og
skiptir daglega um sængurföt. Ég þrái hins vegar að
búa með henni og bölva þráhyggjunni, ástinni og
sjálfum mér á sautján mínútna fresti. Nú engist ég
um í óvissu. Fyrst hún kom ekki í gær hlýtur hún að
hafa fundið nýjan stegg,“ tautaði Karl tregafullur.
„Æ, ég vona ekki,“ andvarpaði Vera. „Gæti ekki
verið meira sammála þér. Heyrðu annars, hvar
ertu?“ „Ég stend örfáum skrefum frá anddyri
Kvennadeildar Landspítalans.“ „Vitaskuld. Hefði
getað sagt mér það sjálfur,“ fullyrti Karl digurbarka-
lega. „Segðu mér eitt. Af hverju stöfuðu hroðalegu
magaverkirnir?“ „Af stressi. Kannski er ég með
magasár, þó er þörf á frekari skoðun áður en hægt
verður að fullyrða nokkuð.“ „Mér heyrist þú vera
sönn nútímakona. Skollans vandræði, þessi
þráhyggja þín, láttu mig þekkja hana. Hún magnar
stressið upp úr öllu valdi. En hvað um það ... þú
getur frætt mig um dálítið.“ „Hvað?“ „Ég „verð“ að
draga gardínurnar fyrir gluggana á miðnætti og hafa
gluggana byrgða fram að hádegi. Nú er heil
klukkustund þar til klukkan slær 12 svo ég neyðist til
að tékka á duttlungunum í veðurguðunum hjá þér.
Er gott eða slæmt veður úti?“ „Sól og rigning til
skiptis. Kannski bæði í einu; ég veit það ekki. Ég er
svo biluð. Snarbiluð, meðvirk kona að röfla við
ókunnugan mann. Samt ekki jafn þráhyggjufull og
þú. Bara mórölsk, stressuð, kvíðin – og ég hugsa
aftur og aftur um minnstu smáatriði, eins og rispuð
plata, uns ég fæ magaverki ... ohhh, andskotinn, ég
er búin að tala alltof mikið.“ Vera blés mæðinni og
skimaði ringluð eftir nælonsokkunum. Þeir höfðu
rúllað fram að gangstéttarbrúninni. „Í fyrsta lagi er
leitun að jafn þráhyggjufullum mönnum og mér. Í
öðru lagi ert þú ekki ga-ga.“ „Hvernig veistu?“
forvitnaðist hún, skyndilega vongóð, og stakk
sokkunum í veskið. „Ef þú værir alveg snældu-
vitlaus myndir þú álíta þig fullkomlega heilbrigða.
Sjálfsgagnrýni ber vott um lágmarks geðheilsu.
Þess vegna skaltu brosa svolítið framan í sólina,
gleyma regndropunum og öðrum tittlingaskít – og
skella á mig. Svoleiðis gera almennilegar mann-
eskjur.“ „Þú segir nokkuð. Þó nokkuð. Líklega er ég
viss núna, það er sól ... já, glaðasólskin. Og
regnbogi, svo glitrandi skær. Vertu sæll. Bless. Ég
meina bæ bæ.“
Auður Jónsdóttir (f. 1973) er rithöfundur og blaðamaður í Reykjavík.
Hún hefur sent frá sér tvær skáldsögur en fyrsta saga hennar Stjórnlaus
lukka, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
K
r
u
l
l
u
j
á
r
n
E
l
d
s
p
ý
t
u
r
M
y
n
d
a
v
é
l
R
ó
s
a
v
ö
n
d
u
r
G
e
r
v
i
t
e
n
n
u
r
3
.
f
l
o
k
k
u
r
–
T
i
l
f
i
n
n
i
n
g
a
r
R
e
i
ð
i
Á
s
t
H
a
t
u
r
K
æ
t
i
H
u
n
g
u
r
G
r
e
m
j
a
S
o
r
g
Á
g
i
r
n
d
F
r
y
g
ð
Ö
f
u
n
d
þarf að velja eitt atriði úr hverjum flokki til að flétta inn í sinn kafla.
ekkert vitað, hvorki hvernig þau tengjast né hvar þau eru stödd í lífinu.
Ég skarta ennþá
giftingarhring,
samt eru tvö ár síðan við Vera skildum.
Ég þrái hins vegar að búa með henni og bölva þráhyggjunni,
ástinni
og sjálfum mér á sautján mínútna fresti.
tmm júní 22x27 Ó 5.6.2001 19:59 Page 63