Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1878, Page 75
65
1878
Stjórnartíðindi B 9.
— Brjef ráðgjafans fyrir Island til landshöföingja um lán til kalklircnnslu.
— Með þóknanlegu brjefi 12. f. m. hafið þjer, herra landshöfðingi, sent hingað bónar-
brjef frá eigöndum kalkbrennslunnar við Reykjavík, E. Egilsyni og konsúl M. Smith, um
2000 kr. lán úr viðlagasjóði, leigulaust, til að halda áfram kalkbrennslunni, með þeim kjör-
um, að það sje borgað aptur á 10 árum, 200 kr. á ári, og gegn veði í öllum eigum kalk-
brennslunnar; og leggið þjer það til, að lán þetta sje veitt með þeim kjörum, að greiddir
verði af því í vöxtu 4 af hundraði um árið, höfuðstóllinn endurborgaður á 10 árum, 200kr.
á ári, og að beiðendurnir setji sama veð fyrir láninu og annars er heimtað fyrir lánum
úr viðlagasjóði.
Út af þessu er yður hjer með þjónustusamlega tjáð til þóknanlegrar leiðbeiningar og
frekari ráðstafanar, að beiðni þessi er veitt, með þeim kjörum, er þjer hafið stungið upp
á, herra landshöfðingi.
— Brjef ráðgjafans fyrir ísland til landshöfðingja um to 11 af vínföngum.
— Út af bónarbrjefi því, er þjer hafið hingað sent með þóknanlegu brjefi yðar G. febr. þ.
á., herra landshöfðingi, þar sem sýslumaðurinn í Húnavatnssýslu sem skiptaráðandi í dán-
arbúi Th. J. Thomsens kaupmanns fer þess á leit, að dánarbú þetta, sem meðtók með
skipinu «Succes» í júlímánuði f. á. 3 pípur af spiritus, er í áttu að vera 2443 pottar,
cptir því sem stóð í tollskránni, cn eptir því sem stóð í aðal-faktúrunni, og eptir því,
sem viðtakandi hefir vottað upp á æru og trú, voru ekki í þeim nema 1906V2 pottur,
megi losast við að greiða frekara tollgjald en það, er þegar hefir heimtað verið og greitt
af hinni síðarnefndu pottatölu, — er yður hjer með þjónustusamlega tjáð til þóknanlegrar
loiðbeiningar og birtingar, að beiðni þessi er veitt, eptir atvikum.
— Brjef ráðgjafans fyrir ísland til landshöfðingja um to 11 af vínföngum.
— Út af bónarbrjefi, er hingað barst með þóknanlegu brjefi yðar, herra landshöfðingi, frá
14. janúar þ. á., er yður hjer með þjónustusamlega tjáð til þóknanlegrar leiðbeiningar og
frekari ráðstafanar, að ráðgjafinn hefir eptir atvikum álitið sig geta leyft, að þær 3 kr.
GOa., er sldpstjórinn á skonnert «Harriet'>, H. C. Petersen, hefir borgað í aðflutningsgjald
af 12 fiöskum af víni, er hann kom til Húsavíkur árið 1876, sjeu honum endurborgaðar,
með því að þær, eptir haus sögn, lieyrðu til vistföngum skipverja, þótt þess væri eigi getið
í tollskránni.
— Brjef landshöfðingja til sýslumannsins í llúnavatnssýslu um fj allvegabœtur.
— Samkvæmt beiðni yðar, herra sýslumaður, veitast hjer með af fje því, sem ætlað er
til fjallveganna þ. á., 400 kr. til þess að fullgjöra veginn yfir Vatnsskarð. Býst jeg við,
að þjer annizt hið nauðsynlega með tiliíti til framkvæmdar á þessari vegabót og trygg-
ingar fyrir, að hún verði vel og vandlega af hendi leyst.
— Brjef ráðgjafans fyrir ísland til landshöfðingja um makaskipti ákirkju-
jörðum. — Eptir allraþegnsamlegustum tillögum ráðgjafans, að meðteknu þóknanlegu
brjefi yðar, herra landshöfðingi, frá 15. febr. þ. á., hefir hans liátign konunginum 3. þ.m.
þóknazt allramildilegast að fallast á, að Sauðafellskirkja sje látin fá Hvamms-kirkjujörðina
Sanddalstungu í Norðurárdal í Mýrasýslu í vesturumdœmi íslands í makaskiptum fyrir
jörðina Kross í Haukadal í Dalasýslu í sama umdœmi.------------------
Hinn 8. júní 1878.
06
13. aprll.
67
29. apríl.
68
30. apríl.
69
5. maí.
70
6. maf.