RM: Ritlist og myndlist - 01.12.1947, Blaðsíða 103
ERLENDAR BÆKUR
RM
len, París. Þessi nýja bók hins franska
meistara fjallar um Gyðinga og Gyð-
ingavandamálið, eins og það horfir
við frá bæjardyrum existentialism-
ans.
Portraits littéraires choisis, eftir
André Rousseaux. Skira, París. Verð
425 fr. Ritgerðir um nokkra helztu
höfunda Frakka á tímabilinu 1930—
1946, þar á meðal Bemanos, Duha-
mel, Colette, Giraudoux, Martin du
Gard, Malraux, Mauriac og Valéry.
—• Rousseaux er víðkunnur rithöf-
undur og gagnrýnandi, kaþólskrar
trúar og íhaldssamur í skoðunum.
La Peste, skáldsaga eftir Albert
Camus. Þessi saga hins unga, en þeg-
ar fræga skálds, hlaut fáum dögum
eftir að hún kom út „Le Grand Prix
des Critiques". Hún þykir listaverk.
Héloise, skáldsaga eftir Charles
Plisnier. Corréa, París. Verð 165 fr.
í bók þessari kannar höfundurinn
sálarlíf tveggja mæðgna, blóðríkrar
konu og sextán ára gamallar dóttur
hennar, sem þjáist af ólæknandi
sjúkdómi.
Livre ouvert og TJne longue ré-
flexion amoureuse, eftir Paul Eluard.
Á þessu ári hafa komið út eigi færri
en tvær ljóðabækur eftir hið fræga,
franska ljóðskáld.
Les jeux sont faits, eftir Jean Paul
Sartre. Þetta er fyrsta kvikmynda-
leikritið, sem Sartre hefur samið, en
sú kvikmynd er nú að verða fullgerð.
BÆKUR Á ÞÝZKU:
Diessits und Jenseits, eftir Max
Brod. Verð 19,60 svissneskir frank-
ar. Bók þessi hefur að geyma skoð-
anir höfundar á mönnum og málefn-
um vorra tíma.
Der Alpdruck, skáldsaga eftir
Hans Fallada. Þetta mun vera síð-
asta sagan, sem Fallada ritaði. Hún
lýsir þeim viðhorfum og hugblæ, sem
ríkti í Þýzkalandi snemma árs 1945,
er þjóðinni var loks að skiljast, að
stríðið væri tapað.
Dcutschland und die Deutschen,
eftir Thomas Mann. Bermann-
Fischer; Stockholm. Verð 4 krónur
sænskar. í bæklingi þessum skýrir
og skilgreinir hið fræga skáld sögu
Þýzkalands út frá skoðunum sínum
á þýzku „mentaliteti".
Doktor Faustus, skáldsaga eftir
Thomas Mann. Sviss. Verð 27,50 sv.
frankar. Þetta er hin nýja, stóra
skáldsaga, sem Mann hefur unnið að
undanfarin ár, og beðið hefur verið
eftir með óþreyju.
RM
hefur því miður ekki komið út reglulega, eins og vonir stóðu til
í upphafi og lofað hafði verið. Olli því fyrst og fremst skortur
á pappír í ritið. Nú hafa verið gerðar ráðstafanir til að tryggja
útkomu þess á næsta ári, og er full ástæða til að ætla, að það
megi takast.
Þessi árgangur verður því aðeins tvö hefti, samtals 12 arkir.
Verða innheimtar fyrir þau 15 kr. hjá áskrifendum. Þeir áskrif-
endur, sem þegar hafa greitt 1. árgang með 35 kr., eiga því 20 kr.
inni hjá ritinu. Verða þær látnar ganga upp í árgjald þeirra 1948.
97