Frón - 01.04.1943, Page 8

Frón - 01.04.1943, Page 8
70 Jakob Benediktsson hver varö aS pukra í sínu horni án sambands við embættis- bræður sina, og vegna tregðu og íhaldssemi stjórnarinnar. I3ó að margt gott megi segja um íslenzka embættismenn á bessum árum, sem margir voru starfsamir, skylduræknir og iðnir, þá var því ekki að heilsa að þeir væru sérstaklega framtakssamir i umbótaátt, og jiess var að öllu athuguðu heldur ekki að vænta. I'lestir veraldlegra embættismanna höfðu aðeins fengið stutta menntun í Kaupmannahöfn, og þau andleg áhrif sem þeir urðu fyrir þar voru sjaldnast þess eðlis að þau væru líkleg til að vekja hjá þeim framfaraanda, því að allt andrúms- loft háskólans var ]já þrungið einveldiskenningum 18. aldar. Peir fáu embættismenn íslenzkir, sem langdvölum höfðu verið í Kaupmannahöfn, höfðu flestir unnið á stjórnarskrifstofum, og má geta því nærri að ekki var andrúmsloftið hressilegra þar. Og væri eitthvert framtak eftir hjá þessum mönnum þegar heim kom, þá mátti eiga það víst, að það átti ill vaxtarskilyrði í mollulofti íslenzkrar einangrunar og aðgerðaleysis. Ennþá fylltu loftið þeir »sudda drunga daufir andar« sem Eggert Ólafsson kvað um í Búnaðarbálki. Pað eru sömu »þokuandarnir« sem Tómas Sæmundsson kvartar oft um i bréfum sínum að lami allt framtak og alla umbótaviðleitni. 1 þessu andrúmslofti er engin furða þótt sú hugsun hvarflaði ekki að neinum íslenzkum embættismanni að einveldi væri ekki hið ákjósanlegasta stjórn- arfar sem til væri og um leið hentast Islendingum. I’egar embættismannastéttinni var svona farið, var ekki mikillar uppreisnar von hjá íslenzkri alþýðu. Pjóðin var að hyrja að rétta við úr þeim kyrkingi sem hörmungar Skaftáreld- anna, siglingateppa Napóleonsstyrjaldanna og eftirfarandi kreppuár höfðu bakað henni. Sú fræðslustarfsemi sem hafin var á 18. öld og haldið var áfram af ýmsum á fyrstu árum 19. aldar var að mestu miðuð við verklegar framkvæmdir. Hún gerði að vísu nokkurt gagn, en kom þó ekki að fullum notum sakir þess að hún var oft ekki sniðin nægilega við hæfi íslenzkrar alþýðu, sem auk þess lá undir fargi óhagstæðrar verzlunar og sleifarlags í öllum opinberum málum. Pó að lítils háttar hreyfing væri komin af stað í andlegum efnum, náði hún harla skammt, og um þjóðlega vakningu var alls ekki að ræða. Samt kom það í ljós þegar frá leið, að mönnum sárnaði mjög afnám Alþingis, þó að í rauninni væri litil eftirsjá að, eins og það var orðið; og víst er um það, að mjög var það láð Magnúsi Stephensen

x

Frón

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.