Frón - 01.04.1943, Side 10
72
Jakob Benediktsson
hafa tvímælalaust opnað hugi þeirra fyrir rómantisku stefnunni
og aðdáun hennar á fornöldinni. En foringjar þessarar stefnu
voru engu síður í fylkingarbrjósti þeirra sem börðust fyrir
auknu frjálsræði í stjórnmálum. En ekki sízt var það afdrifaríkt
fyrir íslenzku þjóðina að sá hópur námsmanna, sem hún átti
í Höfn á þessum árum, var betur skipaður gáfuðum og einörðum
mönnum en ef til vill nokkru sinni fyrr né síðar. Undirbúnings-
menntun þeirra að heiman var og miklu betri en áður hafði
verið, þvi að Bessastaðaskóli tók fyrri skólum stórum fram
aS kennaraliði, þótt ytra fyrirkomulagi hans væri í mörgu
ábótavant.
II
Sá sem fyrstur reiS á vaSiS meSal íslenzkra Hafnarstúdenta
var eins og kunnugt er Baldvin Einarsson. ÁriS 1829 hóf hann
útgáfu Ármanns á Alþingi og hélt honum áfram í 4 ár og samdi
hann að mestu leyti sjálfur. Fyrstu þrir árgangar Armanns koma
ekki beinlínis því efni viS sem hér ræSir um, aS öSru leyti en
því aS þar kemur ljóst fram, aS Baldvin heldur áfram þeirri
fræðslu- og vakningarstarfsemi sem Eggert Ólafsson og sam-
herjar hans hófu á 18. öld. En blærinn er nýr á kenningum
Baldvins og þjóSlegri en tiðkaSist í fræSsluritum 18. aldar
manna, og í frásögnum hans af frelsisstríði Grikkja og öSrum
frelsishreyfingum i Evrópu leynir sér ekki hverjir eiga samúS
hans í stjórnmálum.
En áSur en fjórSi árgangur Ármanns kom út höfSu gerzt
þau tiSindi í Danmörku sem komu Baldvini til aS blása til
atlögu á nýjum vettvangi. ViS friSarsamningana í Wien 1815
hafSi FriSrik VI lofaS þegnum sínum á Holtsetalandi fulltrúa-
þingi eins og öSrum ríkjum þýzka sambandsins. En þrátt fyrir
ýmsar umleitanir dró hann stöSugt aS efna loforS sitt, sjálfsagt
meSfram af því aS hann hefur búizt viS aS erfitt yrSi aS neita
Dönum um þessi réttindi, ef Iloltsetar fengju þau. Þegar
frelsisöldur júlíbyltingarinnar bárust til Danmerkur ritaSi maSur
nokkur af Holtsetalandi, aS nafni Uve Lornsen, bækling um
þetta mál og minnti konung eindregiS á loforSiS. Hann var þar
svo berorSur, aS konungur lét hann sæta refsingum fyrir, og