Frón - 01.04.1943, Síða 14
76
Jakob Benediktsson
markmiÖ Fjölnismanna, en hvernig Tómas hugsaöi sér fyrir-
komulag þess kom ekki fram fyrr en síðar.
PaS er ástæða til að benda á hve ungir þessir menn voru
sem tókust á hendur að endurreisa islenzka þjóðernistilfinningu
og islenzkar bókmenntir með útgáfu Fjölnis. Tómas og Jónas
voru aðeins 27 ára að aldri, Konráð einu ári yngri og Brynjólfur
aðeins 24 ára. Tómas einn hafði lokið embættisprófi, hinir voru
allir stúdentar. Óefað var Tómas þeirra þroskaðastur og mestur
framkvæmdamaður, enda bera bréf hans þess vott, hvernig hann
varð stöðugt að láta félaga sina hafa hitann í haldinu um allt
sem að útgáfunni laut. Auk þess var hann alla tíð þeirra
drýgstur til að afla fjár til útgáfunnar bæði úr eigin vasa og
að láni.
Hér er ekki ætlunin að rekja sögu Fjölnis, enda kemur hún
máli því sem hér er rætt um aðeins óbeinlínis við. IJaÖ er nóg
að benda á að sú hreyfing sem Fjölnir kom af stað í andlegu
lifi Islendinga átti drjúgan þátt í því að opna augu manna og
búa hugi þeirra undir þá breytingu sem varS á pólitísku viS-
horfi íslendinga fáum árum síðar. Tómasi Sæmundssyni var
fyrst og fremst umhugaS um aS vekja landa sína til dáSa í
hagnýtum efnum, en honum hefur án efa veriS ljóst, aS Al-
þingismálinu hlýddi ekki aS hreyfa verulega að svo stöddu, enda
gat þaS beinlínis veriS hættulegt fvrir enibættismann eins og
þá stóS á.
IV
Ahugi manna á sérstöku ráðgjafarþingi á Islandi óx samt
jafnt og þétt á þessum árum, og áriS 1837 gengust þeir PórSur
Sveinbjörnsson dómstjóri í landsyfirrétti og Páll MelsteS sýslu-
maSur fyrir því aS samin var bænarskrá úr suSuramtinu til
konungs um ráðgjafarþing. Sams konar bænarskrá var og send
úr norSur- og austuramtinu fyrir forgöngu Bjarna Thorarensens
amtmanns. Bardenfleth, sem þá var nýorSinn stiftamtmaður,
skrifaði kansellíi með bænarskrá Sunnlendinga og studdi mál
þeirra, en lagSi til að embættismönnum landsins yrði gefinn
kostur á að koma saman og ræSa helztu nauSsynjamál og þá
um leiS gera ákveðnar tillögur um þátttöku fslendinga í ráS-
gjafarþingunum. Pessar málaleitanir urðu til þess að konungur
skipaSi --/8 1838 nefnd tíu æðstu embættismanna íslenzkra, sem