Frón - 01.04.1943, Síða 22

Frón - 01.04.1943, Síða 22
Ræða flutt í sænsku akademíunni 20. des. 1942 Eftir Bengt Hesselman. Vér íslendingar eigum á þessu ári merkan minningardag, þar sem liÖin eru 100 ár frá endurreisn alþingis, svo sem rakiö er i upphafsgrein þessa heftis. En sé lengra litið aftur í aldirnar, verður og fyrir annað afmæli, því að einhvern tíma í ár, enginn veit hvenær, eru þrjár aldir liðnar síðan Brynjólfur biskup Sveinsson varð eigandi að höfuðhandriti Eddukvæðanna, þeirri bók er eflaust má telja dýrastan kjörgrip meðal allra hinna ágætu skinnbóka frá blómaöld menningar vorrar. Framan á bókina hefur biskup ritað fangamark sitt og ártalið 1643, en annars er allt ókunnugt hvaðan hann eignaðist hana eða með hverjum hætti. lJað eitt er víst, að eignarhald biskups á henni varð upphaf að nýjum þætti í sögu hennar, því að nú fór ekki lengur dult að hún var til, en áður mun hún hafa verið fáum kunnug. Að vísu hefði nú verið full ástæða til að rekja sögu Eddukvæðanna frá íslenzku sjónarmiði, en hætt við að slíkt yrði hclzt til langt og margbrotið mál fyrir Frón. í þess stað hefur verið tekinn sá kostur að íslenzka erindi sem forstjóri sænsku akademíunnar, prófessor Bengt Hesselman í Uppsölum, flutti á árshátíð hennar 20. des. í vetur, að viðstöddu ýmsu tignasta stórmenni Svíþjóðar. Sænska akademían er, svo sem kunnugt er, skipuð 18 fremstu skáldum og málfræðingum Svía, og markmið hennar er að vinna að rækt og cflingu sænskrar tungu, styrkja skáldskap og málsnilld. Hún gengst fyrir samn- ingu og birtingu sænskrar orðabókar, sem er stórkostlegasta verk á Norðurlöndum i sinni grein, en út á við er hún kunnust fyrir það, að undir henni er komið hverjum veitt skuli Nóbels- verðlaun í skáldskap. Mun mörgum eflaust þvkja fróðlegt að sjá hvernig Eddukvæðanna og annarra fornbókmennta vorra hefur verið getið fyrir þessari virðulegu samkundu. En að sjálfsögðu er hér litið á hlutina frá sænsku sjónarmiði og sums staðar nokkuð öðruvísi en vér myndum gera. J. H.

x

Frón

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.