Frón - 01.04.1943, Side 28
90
Sigfús Blöndal
Gafst oss í glitrandi hjúpum
Guðsríki, jörð og hel,
Messías, Samson og Satan
sást þú og skildir vel.
Hjá þér i æðri eining
átti sér stöðugt bú
hugdirfska, hæsta menning,
hreinleiki, þrek og trú.
Einurð í orði og verki,
einurð gegn kirkju og stjórn,
einurð gegn vin og óvin,
allt, ef þess þurfti, sem fórn.
Ástvon þín æðst á jörðu
var England, — þótt kostaði hlóð,
stjórnað með vegsemd og vizku,
voldug og alfrjáls þjóð.
England var svívirt og svikið,
sorg varð i kringum þig, —
andi þinn bugaðist aldrei
en áfram hélt sinn stig.
Og er aldirnar líða
ert þú sem logandi bákn
þeim, sem unna því öllu,
er andi þinn sýndi sem tákn.
Mannkynsins ráð er á reiki,
ryðgaðar kirkjur og þing,
listirnar veiklaðar vafra,
vísindin ráfa i kring.
«
En hátt gegnum klaufa-kliðinn,
kreddur og orðaglamm
út yfir liðnar aldir
andi þinn kallar: Fram!