Frón - 01.04.1943, Page 48

Frón - 01.04.1943, Page 48
110 Hermann Einarsson hafa leitaS niður er fjöldi þeirra mestur, vegna þess aS rándýr djúpanna hafa enn ekki náS aS þynna verulega hópinn. Á þessu skeiSi eru þessvegna mestar líkur til aS kynin hittist eSa aS hængurinn geti þefaS sér upp maka. Eru þeffæri hængsins sérlega útbúin til þess. Nái hængur og hrygna saman skilja þau til vonar og vara ekki samvistir upp frá því, en svilfiskurinn vex og þroskast á kostnaS hrygnunnar, og verSa bæSi kynin 7. mynd. Tvær þeirra sædyflategunda sem »Dana«-leiðangurinn veiddi. Til vinstri Linophryne argyresca með einum dverghæng. Til Hægri Edriolychnus schmidti með þremur dverghængum. samtímis kynþroska. Á sömu hrygnu geta þrír eSa jafnvel fjórir hængar veriS fastgrónir eins og sést á myndum þeim er fylgja þessu máli. önnur spurning, sem alls ekki er hægt aS svara til hlitar ennþá, er sú, hvernig næringu djúpsævisdýra sé háttaS. Þær tvær skepnur sem nefndar hafa veriS eru mjög ólíkar í því efni, þó aS báSar séu þær rándýr, og endurspegla lífskjörin sín á hvorn hátt. Risakolkrabhinn vinnur á fjarlægSunum meS sund- þrótti, hann eltir bráSina uppi; sædyflin fá sitt aftur á móti meS sérstakri biSlund; þau bíSa meS færi sitt og agn, uggageisl- ann og ljóstæki hans og lokka bráSina til sin. Kjaftur sædyfl- anna er þannig búinn aS lítil hætta er á þvi aS þau sleppi bráS, sem þau cinu sinni hafa náS í. Tennurnar eru nefnilega afturbeygjanlegar og verka eins og agnhald á öngli. Pví meira sem bráSin streitist á móti, því dýpra sökkva tennurnar í hold hennar. Ætla má aS langt HSi milli máltíSa hjá þessum fiskum, en þegar þeir komast í færi ráSast þeir líka til atlögu þó aS bráSin sé töluvert stærri en þeir sjálfir. »Michael Sars«-leiSangur-

x

Frón

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.