Frón - 01.04.1943, Qupperneq 56
Orðabelgur
Gunnar Leijström og Jón Magnússon, Islandsk-svensk ordbok
(íslenzk-sænsk oröabók), Stokkhólmi 1943. Verð 15, í bandi
18 kr. sænskar.
PaS var mikið og óvænt fagnaðarefni að fá þessa nýju orSa-
bók inn úr dyrunum. Hún er snotur og Jjokkalega prentuS, létt
og fer liSlega í hendi. OrSabókaskortur hefur lengi veriS eitt
af fjöldamörgum vandamálum menningar vorrar. íslenzk-enska
orSabókin eftir Geir T. Zoéga (2. útg. 1922) var góSra gjalda
verS frumsmíS, en helzt til lítil, og er nú auk þess tekin aS
úreldast. Islenzk-danska orSabókin eftir Sigfús Blöndal er tví-
mælalaust í tölu helztu verka sem íslenzkir menn hafa unniS
á þessari öld, og meS henni er brotinn isinn svo aS vér munum
lengi aS því búa, en ekki er hún þeirra meSfæri sem kraftalitlir
eru eSa vinna viS smá skrifborS. Nýja orSabókin er aS
stærSinni til sambærileg viS bók Geirs Zoéga, en vitaskuld
miklu fjölskrúSugri um hiS nýjasta mál. ÞaS er sjálfsagSur hlutur
aS fullkomins íramtals íslenzks orSaforSa má ekki vænta á þeim
412 bls. sem höfundar hafa á aS skipa, jafnvel þótt drýgilega sé
meS rúmiS fariS, enda er vandalaust aS tína til orS sem vantar.
Pannig má finna gloppur i orSaforSa síSustu áratuga, t. d.
geöveikrahæli, hárgreiöslukona, hitalögn, loftskeytamaöur, raf-
magnslögn, rafvirki (karlkynsorS), verzlunarmær. Allt eru þetta
algeng orS lifandi máls (sum jjeirra eru tekin úr niSurjöfnunar-
skrá Reykjavíkur, sem aldrei mun hafa veriS sökuS um djörfung
í orSavali). Hinu þykir engin ástæSa aS amast viS, þó aS sér-
vizkusmíSum eins og bjúgaldin og glóaldin hafi veriS hafnaS,
enda þótt sumir séu aS burSast viS aS nota þær. LangvíSast
virSist bókin áreiSanleg og traust, og þaS er þjóS vorri enginn
smáræSis fengur aS nú skuli vera unnt að vísa á svo handhægt
hjálpargagn um nútíma íslenzku meS þýðingum á víðlesnustu og
veigamestu tungu NorSurlanda. SambúS vor viS önnur Norður-
lönd er sérstökum vandkvæðum bundin, og oss ríSur á miklu
aS þar sé jafnan nokkur og helzt sívaxandi hópur manna sem
skilji þaS sem vér höfum aS segja, án þess aS þaS hafi veriS
aflagaS meS iblöndun annarlegra radda. En of lítiS hefur hingaS
til veriS gert til aS greiða fyrir slíkum mönnum.
J. H.