Frón - 01.04.1943, Side 60

Frón - 01.04.1943, Side 60
122 Orðabelgur tilliti til söngs, en jafnframt því virðast veljendurnir hafa gert sér far um að tína sauðina frá höfrunum og taka aðeins þau kvæði sem þolanlega eru ort. Petta er þó töluverðum vandkvæðum bundiS, því aS margt íslenzkra söngkvæða er ómerkilegur leir- burður, saminn eftir pöntun við erlend lög, og íslenzk tónskáld hafa mjög vanrækt aS semja lög við skáldskap af betra tagi. Pó eru i bókinni mörg allgóS kvæSi. 1 þessu sambandi er athyglis- vert að bera hana saman viS fslenzka söngbók sem seinast var gefin út 1921. SíSan þá hefur auSvitaS margt bætzt við sem notað er í nýju bókinni, en auk þess hefur hlutfallið milli eldri skálda breytzt að mun. í fslenzkri söngbók er næstum fjórðungur kvæðanna ortur af Steingrími Thorsteinssyni, en í nýju söng- bókinni tíundi hlutinn; er það hófi nær, og fyllir Steingrímur nú talsvert skár rúm sitt en áður. Gengi Matthíasar hefur einnig rýrnað aS mun, en hins vegar fá Hannes Hafstein, Porsteinn Erlingsson og Jónas Hallgrimsson stórum meira rúm hlutfalls- lega í nýju bókinni en þeir höfðu i þeirri gömlu. Eitt af helztu skáldum íslenzkrar söngbókar er GuSmundur GuSmundsson skólaskáld; í þessu nýja söngvasafni er aðeins eitt kvæði eftir hann. l3aS hefði ekki veriS eftirsjá aS því heldur. Vonandi sýnir þessi munur á efnisvali ekki aðeins smekkmun veljendanna heldur einnig smekkbreytingu almennings á síSustu áratugum. íslenzkir söngvar er snotur bók, vönduS aS frágangi, í sterk- legu bandi, fer vel i vasa og kostar aSeins 2 krónur. Hún verSur vafalaust notuS mikið bæði á samkomum Islendinga og í heima- húsum. M ts Þjóðskáldin og pjóðlögin. Listgáfur íslendinga komu öldum saman nær eingöngu fram í skáldskap. ASrar listgreinir skorti skilyrði til þróunar. En viS lestur íslenzkra kvæSa frá seinni öldum má finna aS sum skáld vor hafa verið gædd ótvíræðri tónlistargáfu. Pau ortu oft IjóS viS lög, sem þau þekktu, — fyrr á öldum viS gömul þjóSiög eða sálmalög, en síðar viS útlend lög, þegar tizkan fór að útrýma þjóSlögunum. Hér virðist vera mikiS en lítt rannsakaS efni fyrir ötulan vísindamann. Tökum dæmi: Kunnugt er aS Bjarni Thorarensen var mikill söngmaður. Grímur Thomsen minntist þess um Bjarna, að hann gekk hugsi um í herberginu, sló takt á húsgögnin og raulaði djúpri hljóm-

x

Frón

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.