Morgunblaðið - 02.10.2015, Page 12
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Forsvarsmenn Landsvirkjunar
vænta þess að geta í haust auglýst
útboð framkvæmda við stækkun
Búrfellsvirkjunar. Unnið er að und-
irbúningi og hönnun mannvirkisins
en nýlega var samið við Verkís um
ráðgjafastörf á undirbúnings- og
verktíma. Framkvæmdin er utan
rammaáætlunar um virkjanir og
þykir falla vel að þeirri orkustefnu
að halda umhverfisáhrifum í lág-
marki.
Beislað í Sámstaðaklifi
Nú nýtast aðeins um 86% vatns í
Þjórsá við Búrfell til raforkuvinnslu
í Búrfellsstöð. Með stækkun virkj-
unarinnar á að nýta betur það vatn
sem um Þjórsá fellur, en að jafnaði
renna um 410 GWst fram hjá stöð-
inni á ári hverju. Nú á að beisla það
afl með stöð í Sámsstaðaklifi, það er
skammt sunnan við sjálfa Búrfells-
stöð.
Vatn verður tekið úr inntakslóni
núverandi stöðvar, Bjarnalóni. Frá
lóninu og mannvirkjum við það verð-
ur grafinn um 370 m langur að-
rennslisskurður fram undir brún
Sámsstaðaklifs að stöðvarinntaki, en
frá því fellur vatnið niður um 155 m
löng fallgöng að stöðvarhúsi, sem
verður staðsett neðanjarðar. Þaðan
er vatninu síðan veitt um 440 m löng
frárennslisgöng út í 2,2 km langan
frárennslisskurð sem leiðir það út í
Fossá um 1 km neðan við núverandi
stöð.
Áformað er að uppsett afl nýrrar
stöðvar verði 100 MW með einni vél,
en möguleiki á stækkun sem nemur
40MW er til staðar. Með stækkun
Búrfellsvirkjunar má auka orkugetu
raforkukerfisins um allt að 300
GWst á ári, segir Magnús Þór Gylfa-
son, yfirmaður samskiptasviðs
Landsvirkjunar. Hann segir mikla
eftirspurn eftir raforku frá Lands-
virkjun á þeim kjörum sem bjóðast
fjölmörgum fyrirtækjum í fjöl-
breyttum iðnaði.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flugsýn Búrfellsvirkjun er fremst á þessari mynd. Aðeins sunnar og innar, það er til til hægri á myndinni, í áttina
að fjalli verður virkjunin nýja. Framkvæmdir við byggingu hennar hefjast fljótlega ef áform ganga upp.
Viðbót með nýrri virkj-
un verður alls 10MW
Landsvirkjun stefnir á stækkun Búrfells Útboð fram-
kvæmda væntanlega í haust Möguleiki á stækkun síðar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Afl Lón, stíflur og önnur mannvirki sem fyrir eru nýtast við nýja virkjun.
Kristján Hólm Bene-
diktsson fyrrv. borgar-
fulltrúi og kennari, lést
í gær, 1. október, á
hjúkrunarheimilinu
Eir.
Kristján var fæddur
12. janúar 1923 á Stóra-
Múla, Saurbæ í Dala-
sýslu. Foreldrar hans
voru Benedikt Sig-
urður Kristjánsson
bóndi og kona hans,
Gíslína Ólöf Ólafsdóttir
frá Þórustöðum í Bitru-
firði.
Kristján var í borg-
arstjórn Reykjavíkur árin 1962 til
1986 og sat í borgarráði 1964-1984.
Þá gegndi hann embætti forseta
borgarstjórnar í eitt ár og formanns
borgarráðs í eitt ár á kjörtímabilinu
1982-1986. Hann var m.a. íþrótta-
kennari á Vestfjörðum 1944-1946,
kennari við gagnfræðaskólann við
Hringbraut í Reykja-
vík 1949-1957 og við
Hagaskóla 1958-1971
þar sem hann var
skólastjóri í forföllum,
framkvæmdastjóri
Tímans og fram-
kvæmdastjóri þing-
flokks Framsókn-
arflokksins.
Þá gegndi hann
ýmsum trúnaðar-
störfum. Var í
Fræðsluráði Reykja-
víkur og Mennta-
málaráði Íslands og
formaður í báðum á
tímabili. Eiginkona hans var Svan-
laug Ermenreksdóttir kennari en
hún lést 16. mars 2010. Þau áttu
fjögur börn: Baldur Kristjánsson
sóknarprest, Ólöfu Kristjánsdóttur
lífmeinafræðing, Benedikt Sigurð
Kristjánsson leiðsögumann og Ár-
sæl Kristjánsson lækni.
Andlát
Kristján Benediktsson
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
BARNABÆKUR
VIKAN 23.09.15 - 29.09.15
1 2
5 6
7 8
109
43
Brúnar
Håkon Övreås
Ég get lesið 1
Hérinn og skjaldbakan
Ég get lesið 2
Pétur Pan
Ég get lesið 4
Galdrakarlinn í Oz
Ég get lesið 3
Ali Baba og ræningjarnir 40
Grimmi tannlæknirinn
David Walliams
Leyniturninn á Skuggaskeri
Sigrún Eldjárn
Sitji guðs englar - Stórbók
Guðrún Helgadóttir
Strákurinn í kjólnum
David Walliams
Skúli skelfir og múmían
Francesca Simon
Blaðið Vestfirðir
kom aftur út í
gær eftir
tveggja mánaða
hlé vegna
eigendaskipta.
„Núna fer hvert
blaðið á fætur
öðru að koma út
eftir stutt hlé en
við höfum fengið
undanþágu frá
Samkeppniseftirlitinu, sem í raun
þýðir að allar líkur eru á að sam-
runinn verði samþykktur, þ.e. hið
svokallaða græna ljós sem talað
hefur verið um,“ segir Björn Ingi
Hrafnsson, eigandi Vefpressunnar
ehf., sem keypti útgáfurétt á tólf
blöðum útgáfufélagsins Fótspors.
Meðal þeirra eru vikublöð sem
dreift hefur verið ókeypis í
Reykjavík, á Akureyri og í Kópa-
vogi.
„Útgáfan er með sambærilegu
sniði og áður og ef eitthvað þá
ætlum við að bæta í á næstu miss-
erum.“
Útgáfa vikublaða fer
aftur á fulla ferð
Björn Ingi
Hrafnsson