Morgunblaðið - 02.10.2015, Qupperneq 35
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
FRÉTTIR 35Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
„Þörfin fyrir marga flugvelli úti á
landi hreinlega fjaraði út, vegna
betri samgangna á landi og þyrl-
urnar hafa að mestu tekið sjúkra-
flugið yfir þar sem samgöngur á
landi eru enn erfiðar,“ segir Hálf-
dán Ingólfsson á Ísafirði.
Hálfdán var í áratugi flugmaður
hjá Erni og fleiri félögum. Lét af
störfum snemma á þessu ári en er
þó áfram viðloða flugið. Á löngum
ferli var hann mest í Vestfjarðaflugi
og er því gjörkunnugur aðstæðum
fyrir vestan.
oft en nokkrir lendingarstaðir eru á
svæðinu og við Látra í Aðalvík er
flugbraut, sem bandaríski herinn
útbjó fyrir margt löngu.
gerðareyri, í Reykjanesi, á Strand-
seljum og í Bolungavík. Nú eru allir
þessir vellir, utan Reykjaness,
komnir af skrá. „Sumstaðar er enn
hægt að lenda, ef menn þekkja til
staðhátta og eru á flugvélum sem
þola hugsanlega mjúka flugbraut.
Þá er víða hægt að tylla sér niður í
sendnar fjörur, en þá þarf að sýna
ýtrustu varkárni því ekki er hægt að
lenda í gljúpum sandi sem í annan
tíma er eins og fínasta malbik,“
segir Hálfdán sem á afdrep í Fljóta-
vík á Hornströndum. Flýgur þangað
„Patreksfjarðarflugvöllur var oft
erfiður. Stundum stóð norðaustan-
áttin beint á völlinn eða strengur úr
öðrum áttum og þá gat verið mis-
vindasamt og stundum ófært.
Bíldudalsvöllur, sem er ekki langt
undan, er hins vegar betur stað-
settur og oftar fært þangað,“ segir
Hálfdán.
Eins og fínasta malbik
Áður voru flugvellir víða við Ísa-
fjarðardjúp, svo sem á Bæjum á
Snæfjallaströnd, Melgraseyri, Arn-
Víða má lenda ef flugmenn þekkja staðhætti
ÞÖRF FYRIR SUMA FLUGVELLI Í DREIFBÝLINU FJARAÐI ÚT
Flugmaður Hálfdán Ingólfsson Vest-
firðingur hefur verið áratugi í fluginu.
Eftir síðari heimsstyrjöld voru
útbúnir flugvellir víða um land
fyrir sjúkraflug og nauðlend-
ingar. Með betri fjarskiptum og
leiðsögutækjum og af fleiri
ástæðum var ekki lengur þörf
fyrir þá. Þessir vellir voru víða,
svo sem við Skálmarnes í Aust-
ur-Barðastrandarsýslu, Aðalvík
á Hornströndum og í Flatey á
Skjálfanda.
Á sínum tíma voru flugvellir
við Hrauneyjafoss og fleiri virkj-
anir meðan á framkvæmdum
þar stóð. Einnig lét Land-
græðsla ríkisins útbúa flugvelli
á nokkrum stöðum meðan flug-
vélar voru notaðar við áburðar-
dreifingu, svo sem í Gunnars-
holti og við lón Blönduvirkjunar.
Jafnframt eru dæmi um mann-
virki sem voru notuð í fá ár, svo
sem herflugvelli á Garðskaga og
Kaldaðarnesi í Flóa, skammt
neðan við Selfoss. Sá völlur var
útbúinn árið 1940 og var í notk-
un þrjú til fjögur ár eftir það, en
þá fluttist starfsemi flugherj-
anna á Íslandi til Reykjavíkur.
Áburður og
hernaður
SUMIR FLUGVELLIR AÐEINS
SKAMMAN TÍMA Í NOTKUN
Dreifing Fyllt á áburðarvélina
Pál Sveinsson. Mynd frá 1995.
Samgöngur Ernir held-
ur uppi áætlunarflugi til
nokkurra staða á land-
inu. Sú starfsemi er íbú-
um mikilvæg og segja
má að flugvellirnir séu
lífæð byggðanna.
VIÐKVÆM HÚÐ?
PRÓFAÐU
ALLA LÍNUNA…
ÞVOTTAEFNI | HREINLÆTISVÖRUR | HÚÐVÖRUR | ANDLITSLÍNA | BARNAVÖRUR
ASTMA- OG OFNÆMISFÉLAG ÍSLANDS
MÆLIR MEÐ VÖRUM FRÁ NEUTRAL
…fyrir heimilið, fjölskylduna og þig.
Neutral er sérstaklega þróað fyrir viðkvæma húð og inniheldur
engin ilmefni, litarefni eða paraben – þannig hjálpar Neutral
þér að vernda húð allra í fjölskyldunni.
Skoðaðu allar Neutral vörurnar í næstu verslun eða kíktu á Neutral.is
ÍS
L
E
N
SK
A
SI
A
.I
S
N
A
T
71
68
2
02
/1
5