Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 3. D E S E M B E R 2 0 1 5 Stofnað 1913  284. tölublað  103. árgangur  HEIMILI HAG- LEIKSMANNS MINJASAFN RÍKISSTJÓRNIN VEÐJAR Á RAFBÍLA SEGIR ÍSLENSKUNA MÖGULEGA Í ÚT- RÝMINGARHÆTTU VIÐSKIPTAMOGGINN GOTT EÐA VONT MÁL 10BÁTSMAÐUR 28 Ofur- kældur eldislax  Aukin ending ferskra afurða Laxeldisfyrirtækið Arnarlax á Bíldudal hefur, fyrst laxeldisfyr- irtækja, fest kaup á vinnslubúnaði frá 3X Technology á Ísafirði og Skaganum á Akranesi. Búnaðurinn undirkælir meðal annars afurðir fyr- irtækisins, lengir endingu afurða og tryggir betri og jafnari vinnslu. Vel er fylgst með rannsóknum á ofur- kælingu á fiski og ekki síður reynslu sem fengist hefur um borð í togar- anum Málmey frá Sauðárkróki. Norsk laxeldisfyrirtæki eru áhuga- söm um framvinduna, en laxeldi er stór atvinnugrein í Noregi. „Við erum sannfærðir um að það sé rétt að taka þetta stökk og veðja á ofurkælinguna á laxinum og við- skiptavinir okkar í Bandaríkjunum eru með okkur í ráðum,“ segir Vík- ingur Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Arnarlax. Fyrsta laxinum úr kvíum við Haganes verður slátrað í janúar í nýju sláturhúsi á Bíldudal. Þar er unnið að því að koma upp nú- tímalegu frystihúsi þar sem áður var hefðbundin fiskvinnsla. »32 Fara þarf meira en 30 ár aftur í tímann til þess að finna dæmi um viðlíka snjódýpt og nú er í borginni. Í gærmorgun var 42 sentímetra jafn- fallinn sjór í Reykjavík og hefur desembersnjór aldrei mælst svo mikill. Næst í tíma er met frá 5. febrúar 1984 þegar snjórinn var 43 cm og 55 cm árið 1937. En þrátt fyrir þetta allt hefur allt gengið snurðulaust fyrir sig og margir hafa raunar gaman af þessu vetrarríki sem gefur fólki líka tilefni til að fara út að ganga eða moka til dæmis frá ruslatunnunum svo hreinsun gangi greiðlega fyrir sig. »4 Morgunblaðið/Eva Björk Gengið yfir Tjarnarbrúna í vetrarríkinu Ekki hefur mælst jafn mikill jafnfallinn snjór í borginni í marga áratugi Sunna Ósk Logadóttir sunna@mbl.is Nokkur þeirra 34 sýrlensku barna og unglinga sem væntanleg eru til Íslands frá Líbanon á næstu vikum hafa neyðst til að vinna mikið. Vinna barna í landinu er fylgifiskur ört vaxandi skuldavanda flótta- fólksins sem stafar af því að það fær ekki atvinnuleyfi og fjárhags- aðstoð stofnana og samtaka hefur verið skert verulega síðustu miss- eri. „Satt best að segja fer ástandið sífellt versnandi,“ segir Violet War- nery, aðgerðastjóri UNICEF á vett- vangi í Líbanon, um aðstæður sýr- lensku flóttamannanna. „Þetta er lífsbarátta, sá hæfasti lifir af. Þeg- ar þau komu fyrst hingað til Líb- anons áttu þau mörg hver sparifé. Voru með von í hjarta. Gátu unnið. Þau höfðu tækifæri. Það er búið að taka þetta allt frá þeim.“ Flóttinn á enda hjá 55 manns „Ég er ekki lengur manneskja, ég er númer,“ segir Jamal, 12 ára, við blaðamann Morgunblaðsins sem kynnti sér aðstæður flóttafólksins í Líbanon í síðustu viku. Jamal býr í tjaldi í Bekaa-dalnum, vistarveru sem vart er hægt að kalla heimili. Líbanon hefur tekið við 1,1 millj- ón sýrlenskra flóttamanna á 5 ár- um. 55 þeirra hafa nú þegið boð um að koma til Íslands fyrir jól og setj- ast hér að. Þar með verður flótta þeirra loks lokið. „Ég er ekki lengur manneskja, ég er númer“ Morgunblaðið/Sunna Ósk Á flótta Sýrlensk stúlka við tjald sitt í Bekaa-dalnum í Líbanon.  Flóttabörnin sem koma til Íslands hafa neyðst til að vinna MÚr helvíti »22-24 Þingvallanefnd hefur samþykkt að hafinn verði undirbúningur að byggingu veitinga- og móttökuhúss á Hakinu við Almannagjá. Slíka að- stöðu hefur þótt vanta á staðnum eftir að Hótel Valhöll brann sum- arið 2009. Byggingin verður nærri gestastofunni sem þarna er, en senn hefjast framkvæmdir við stækkun hennar um nærri 800 fer- metra. Með stærri stofu batnar að- staða Þingvallagesta til muna, en þar verða salir og yfirgripsmiklar sýningar um náttúru staðarins og sögu. »20 Veitingahús sam- þykkt og gesta- stofan stækkuð Þingvellir Gestastofa á góðum stað. Nældu þér í eintak af jólagjafahandbókinni í næstu verslun Lyfju. - Lifi› heil www.lyfja.is Allir fá þá eitthvað fallegt... 21 GLUGGI TIL JÓLA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.