Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 80
80 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
Ísnet Húsavík s. 5 200 555
Ísnet Akureyri s. 5 200 550
Kristbjörg Ólafsfjörður s. 5 200 565
Ísnet Sauðárkrókur s. 5 200 560
Hafðu samband og
kynntu þér vöruúrvalið
og þjónustuna
Vertu viðbúinn vetrinum
Mest seldu snjókeðjur á Íslandi
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Félagi lætur skoðun í ljós sem er ólík
þinni. Hætt er við að þú látir freistast og far-
ir yfir strikið í dag og heilsan bíði tjón af.
Vertu hvort tveggja.
20. apríl - 20. maí
Naut Þótt þú hafir lagt þig allan fram um að
koma máli þínu til skila, er einhver sem vill
ekki hlusta. Notaðu tækifærið á meðan þú
hefur vindinn í seglin.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sá sem getur helst hjálpað þér er
nálægt þér. Sannleikurinn er sá, að hug-
ulsemin sem þiggjandanum er sýnd dugar
yfirleitt til þess að finna viðeigandi gjöf.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ef þú ert alltaf að búast við vand-
ræðum, leita þau þig uppi. Frá og með deg-
inum í dag er þetta úr sögunni og þú getur
haldið fram veginn léttari en ákveðnari í
spori.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er alltaf ráðlegt að fara varlega í
samskiptum sínum við ókunnuga og hleypa
þeim ekki lengra en efni og aðstæður eru til.
En allur oflátungsháttur er þó til bölvunar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Varaðu þig á fjárfestingum í dag því
þú gætir ofmetið heppni þína. Veltu þessum
hlutum fyrir þér í einhvern tíma.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vertu opin/n fyrir ráðleggingum vina
þínna í dag, sérstaklega þeirra sem eru eldri
og reyndari en þú. En í raun og veru voru
þeir hvorki einfaldir né auðveldir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu ekki gráma hversdagslífs-
ins ná tökum á þér. Uppáhalds viðfangsefnin
eru viðskipti yfir höfin, nýtt tungumál eða
daður við dularfulla manneskju sem kemur
langt að.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ekkert er sjálfsagt í henni veröld.
Loksins taka yfirmenn þínir eftir gríðarlegum
hæfileikum þínum. Skellið ekki skollaeyrum
við þeim heldur gaumgæfið þær.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér er nauðsyn að finna tíma fyrir
sjálfan þig. Reyndu líka að taka til hendinni
heima fyrir sem best þú getur. Í dag er góð-
ur dagur til að fara yfir óunnin verkefni og
koma skikki á hlutina
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu það ekki buga þig þótt
verkefni þitt sé erfiðara en þú bjóst við.
Reyndu að leysa málin á sanngjarnan hátt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú gætir þurft að ráðleggja þig við
kennara eða sérfræðing á einhverju sviði í
dag. Haldtu áfram að vinna vel því nú munu
draumar þínir rætast.
Þessar kattarvísur eftir Jósefínu
Dietrich eru skemmtilegar:
Ég að öllum háska hlæ og hoppa í
snjónum
þó mér verði kalt á klónum.
Töluvert hvað tíkargjólan tekur í.
Ýfist rófan út af því.
Það getur verið skemmtilegt að
taka upp gamlar hendingar, þegar
það er vel gert eins og hér. Þá verð-
ur vísan kunnugleg. Níels skáld seg-
ir í Fransrímum:
Ég að öllum háska hlæ
á hafi Sóns óþröngu,
mér er sama nú hvort næ
nokkru landi eða öngu.
Jón tíkargjóla bjó í Örfirisey og dó
árið 1816. Hann „var veiðimaður í
kappsfyllra lagi og skaut á sel, en sel-
urinn raknaði svo úr rotinu. Sá Jón
þá þann grænstan að þrífa í dindilinn
og láta selinn draga sig,“ segir í
Griplu. Jón var orðlagður hörku-
maður og sjósóknari. Kallaði það
„tíkargjólu“ á sjó, þegar öðrum þótti
rok og ófæra. Um hann orti Grímur
Thomsen kvæðið „Jón tíkargjóla“ :
Á Skerjafirði skaut hann sel,
en skaut hann ei til fulls í hel;
selurinn enn var syndur vel
og sýndi honum ið gráa stél.
Veiðibráður var hann Jón,
vildi sels ei bíða tjón;
hugaður eins og harðfengt ljón
henti hann sér í laxafrón.
En – seggurinn eigi syndur var
sökk hann því til hálfs í mar,
sels hann hreifa hremmdi snar
og hélt sér dauðahaldi þar.
Kópur hann í kafi dró,
kempan nóg þar drakk af sjó;
upp í sker þeir skoluðust þó;
skalf hann Jón, en – selinn sló.
„Mikið varstu fífl og flón
að fleygja þér í sjóinn, Jón!
síður en eigi syndur.“ – Tón
sendi Jón um ýsu frón: –
„Þó fljóti ég lítið betur en blý,
bræður góðir! treysti eg því,
að selurinn er sökkva-frí
og sjórinn nógur að drífa í“
Það hefur legið vel á Ólafi Stef-
ánssyni þegar hann orti:
Eftir dufl og dægurmas,
sem drýgir máttinn,
fá sér ískalt freyðiglas
fyrir háttinn.
Sigmundur Benediktsson svaraði
að bragði:
Fráleitt Óli fær í glasið fyrir háttinn,
fönguleg hans faldagáttin
fullvel getur aukið máttinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kattarvísur og Jón tíkargjóla
Í klípu
„ÞETTA ER EINI STAÐURINN ÞAR SEM MÉR
FINNST ÉG VERA NÆGILEGA ÖRUGGUR
TIL ÞESS AÐ TJÁ REIÐI MÍNA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ERTU VISS UM AÐ ÉG MUNI GETA
SYNT MEÐ HANA Á MÉR?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það sem gerir jólin
svo sérstök.
HÁRKOLLUR
ÉG GÆTI ALDREI
BORÐAÐ KATTAMAT!
EKKI EF ÞÉR ER
ANNT UM LÍFIÐ!
PABBI, HVERNIG
VEIT ÉG HVORT
EITTHVAÐ ER RÉTT
EÐA RANGT?
ÞEGAR EITTHVAÐ
ER GOTT FYRIR
ÞIG…
…ÞÁ ER
ÞAÐ
RÉTT!
ÞAÐ ER
LÉTT!
Víkverji íhugaði það vandlegahvort hann ætti að láta sig hafa
það og skipta um trúfélag fyrir
mánaðamótin. Hann er nefnilega
fæddur á þeim tíma þegar börn
voru sjálfkrafa skráð í trúfélag
móðurinnar og hefur einfaldlega
aldrei nennt að skrá sig úr Þjóð-
kirkjunni. Enda hver er tilgang-
urinn, þegar félagsgjaldið yrði
rukkað hvort sem er, en bara af-
hent einhverjum öðrum?
x x x
Á endanum ákvað Víkverji aðsitja sem fastast í Þjóðkirkj-
unni, þar sem hann dró stórlega í
efa um að Zúistafélagið myndi geta
efnt loforð sitt um að endurgreiða
sóknargjöldin. Í versta falli væri
Víkverji, ásamt þúsund öðrum, að
fjármagna ferð einhvers skugga-
baldurs til Ríó de Janeiro, en í
besta falli myndi hann þurfa að
borga skatt af skattinum sem hann
væri að reyna að endurheimta.
Hvorugt hljómaði þess virði að Vík-
verji myndi gera sér sérstaka ferð
niður í Þjóðskrá.
x x x
Víkverji skilur hins vegar alveg afhverju zúisminn heillaði svo
marga. Ímyndið ykkur að allir Ís-
lendingar væru nauðbeygðir til
þess að borga félagsgjöld til ein-
hvers íþróttafélags, jafnvel þó að
áhuginn á því að tilheyra slíku fé-
lagi væri minni en enginn. Svo þeg-
ar viðkomandi vildi skrá sig úr
íþróttafélaginu, þá skipti það engu
máli, því að ríkið myndi innheimta
gjaldið engu að síður, en bara láta
það renna í eitthvert annað málefni
sem viðkomandi hefði kannski enn
minni áhuga á.
x x x
Það hljómar svo sem ekkert svoilla í eyrum Víkverja, enda hef-
ur hann lengi gantast með það að
hann eigi sér líklega bara ein trúar-
brögð fyrir utan Máttinn í Star
Wars: Knattspyrnufélag Reykjavík-
ur. Hann mun því líklega bíða með
ferðina í Þjóðskrá þangað til ein-
hver framtakssamur Vesturbæing-
urinn stofnar trúfélag sem miðar að
því að skila sóknargjöldunum þang-
að sem Víkverji sækir flestar
„messurnar“. víkverji@mbl.is
Víkverji
Fel Drottni vegu þína og treyst hon-
um, hann mun vel fyrir sjá. Sálm. 37:5.