Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
MADONNA ÍTALÍU VIKULEGA FRÁ 16. JAN. – 27. FEB.
Eitt vinsælasta skíðasvæði
Íslendinga er aftur komið
í sölu. Flogið vikulega frá
16. jan.-27. feb. með Icelandair.
Farastjóri, Níels Hafsteinsson 99.900 KR.
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 585 4000 | uu.is
VERÐ FRÁ
SÉRTILBOÐ
16. JAN - 23 JAN.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þorsteinn Pálsson, talsmaður
Blómaþings, segir áformað að hefja
niðurrif á Frakkastíg 8 á næstu vik-
um. Um er að ræða áberandi hús og
eru elstu hlutar þess frá þriðja ára-
tug síðustu aldar.
Byggingarfulltrúi í Reykjavík
samþykkti niðurrifið í fyrradag og
bíða framkvæmdaaðilar nú eftir leyfi
frá heilbrigðiseftirlitinu.
Þorsteinn segir það munu taka
um hálfan mánuð að rífa bygg-
inguna. Síðan taki við hreinsunar-
starf. Jarðvegsvinna hefst í kjölfarið
og er áformað að uppsteypu nýs fjöl-
býlishúss verði lokið í ágúst 2016.
Þorsteinn segir stefnt að því að
fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar til af-
hendingar í lok næsta sumars. Tæp-
lega 70 íbúðir verða á reitnum.
Elsti hlutinn er á jarðhæð
Svonefndur Frakkastígsreitur
er kenndur við Frakkastíg 8 og af-
markast af Hverfisgötu, Laugavegi
og Frakkastíg, hálfa leið að Vatns-
stíg. Fram kemur í auglýsingu
vegna breytts deiliskipulags á reitn-
um að upphafleg bygging á Frakka-
stíg 8 er jarðhæð á suðurhelmingi
hússins, reist árið 1925.
„Byggt er við jarðhæðina í fjór-
um áföngum á árunum 1926-1939 til
norðurs, suðurs og vesturs og húsið
hækkað. Þá var húsið komið í núver-
andi stærðir ef undanskildar eru við-
byggingar til suðurs og norðurs frá
árinu 1988. Húsakönnun gerir ekki
tillögu um sérstaka verndun,“ sagði
þar meðal annars um sögu hússins.
Tónleikastaður víkur
Meðal fyrirtækja sem hafa haft
aðsetur á Frakkastíg 8 er tónleika-
staðurinn Ob-La-Di, Ob-La-Da.
Davíð Steingrímsson veitinga-
maður er í forsvari fyrir staðinn.
Hann segist hafa lokað dyrum í
byrjun nóvember, þegar ljóst var að
niðurrif var yfirvofandi.
„Ég er að leita að nýju húsnæði.
Það er lítið hægt að gera í dag ef
maður hefur ekki mikla peninga
milli handanna,“ segir Davíð og
bendir á hátt fasteignaverð í mið-
borginni. Hann gagnrýnir vaxandi
einsleitni í miðborginni og vísar til
þjónustu við ferðamenn. Hann seg-
ist fyrst og fremst hafa rekið Ob-La-
Di, Ob-La-Da af hugsjón. Listamenn
hafi fengið forgang á greiðslur.
Níutíu ára gamalt hús
við Frakkastíg verður
rifið á næstu vikum
Næsti áfangi í uppbyggingu Frakkastígsreits
Morgunblaðið/Baldur Arnarson
Gamalt Gula húsið verður rifið. Hornhúsið við Hverfisgötu er þegar farið.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Mikil óvissa er um framhald sáttatil-
rauna í kjaradeilunni í álverinu í
Straumsvík, sem er í fastari hnút en
nokkru sinni fyrr. Næsta skref er að
funda með starfsmönnum um fram-
haldið í dag eða á morgun, að sögn
Kolbeins Gunnarssonar, formanns
verkalýðsfélagsins Hlífar.
Verkfallinu var aflýst í fyrrakvöld
og því er ekki hægt að boða til annars
verkfalls nema að hefja á ný ferli at-
kvæðagreiðslu meðal starfsmanna.
„En það er hægt að grípa til annarra
úrræða en allsherjarverkfalls. Það
mætti til dæmis horfa á yfirvinnu-
bann og á útflutningsbann en það
verður að taka inn í framtíðarmúsík-
ina hver niðurstaðan verður.“
Samninganefnd starfsmanna upp-
lifði stöðuna þannig í fyrrakvöld að
Rio Tinto, eigandi álversins, hefði
stillt þeim upp við vegg, að sögn Kol-
beins. Ef verkfallið skylli á, þá yrði
verksmiðjunni lokað og stjórnendur
álversins hefðu strax haldið því fram
að starfsmennirnir hefðu sjálfir lokað
fyrirtækinu. Samninganefndin hefði
komist að þeirri niðurstöðu vegna
hagsmuna starfsfólksins að skásti
kosturinn væri að aflýsa boðuðu verk-
falli.
,,Við aflýsum verkfallinu og kjara-
deilan heldur áfram. Við höfum ekki
náð að semja um þær launahækkanir
sem búið er að semja um á almennum
markaði. Þeir hafna algjörlega að
semja við okkur um sambærileg laun
og búið er að semja um á almennum
markaði, á þeim forsendum að þeir
vilja ekki ræða við okkur fyrr en við
höfum opnað verktakayfirlýsinguna.
Staðan í dag er sú að við erum ekkert
á því að opna þessa verktakayfirlýs-
ingu og þar af leiðandi hefur þetta far-
ið í þennan harða hnút,“ segir Kol-
beinn.
Hann segir það ekki eðlilegar
kjaraviðræður þegar forsvarsmenn
fyrirtækisins setji einhliða skilyrði um
að kjarasamningur verði ekki gerður
nema verktakayfirlýsingin verði opn-
uð. Í eðlilegum kjaraviðræðum setjist
menn yfir kröfur sem liggja fyrir,
ræði málin og leysi þau. „Það er ekki
alltaf svo að allir nái sínu fram,“ segir
hann.
Í yfirlýsingu Rannveigar Rist, for-
stjóra Rio Tinto Alcan á Íslandi, í gær
segir að kjaradeila starfsmanna ál-
versins snúist um þá staðreynd að fyr-
irtækið sitji ekki við sama borð og
önnur hvað varðar möguleika á útvist-
un verkefna. Hömlurnar á fyrirtækið
eigi sér enga hliðstæðu á Íslandi. Það
sé skýr krafa að þær verði rýmkaðar.
Útflutningsbann í myndinni
Hnúturinn herðist í álverinu Hægt er að grípa til annarra úrræða en
allsherjarverkfalls, að sögn formanns verkalýðsfélagsins Hlífar um álversdeiluna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Álver Verkfalli var aflýst í fyrra-
kvöld en deilan heldur áfram.
Ekki er útséð um að hægt verði að
sigla áfram í Landeyjahöfn í vetur.
Herjólfur mun sigla í Þorlákshöfn
a.m.k. til 4. desember.
„Ef það gefur gott veður til dýpk-
unar og við sjáum fram á góða daga
og að geta opnað höfnina, þá mun-
um við gera það,“ sagði Sigurður
Áss Grétarsson, framkvæmdastjóri
siglingasviðs Vegagerðarinnar.
Síðustu dýptarmælingar sýndu
grynningar á litlu svæði í hafnar-
mynninu sem ollu því að Herjólfur
komst aðeins þar um á háflóði.
Ölduhæð hefur einnig verið til traf-
ala. Dýpið gæti verið breytt nú en
það verður aftur mælt áður en
ákveðið verður um frekari dýpkun.
Til eru fjármunir fyrir henni að
sögn Vegagerðarinnar.
Á þessu ári er búið að fjarlægja
yfir 700.000 rúmmetra af sandi úr
höfninni og úr siglingaleiðinni næst
henni og til hliðar við höfnina.
Dýpkað var á stóru svæði utan
hafnarinnar.
Sjálft mannvirkið Landeyjahöfn
er stöðugt til skoðunar og hvernig
megi bæta það. Vegagerðin hefur
látið setja upp vatnslíkan af höfn-
inni og er verið að byrja að keyra
það. Þá verða ýmsir kostir skoð-
aðir, að sögn Sigurðar. Líkanið var
sett upp í líkanastöð Vegagerð-
arinnar í Kópavogi.
Nýi Herjólfur rafdrifinn
Ný Vestmannaeyjaferja er hönn-
uð til að verða eingöngu rafdrifin.
Hún verður „tvinnferja“ og munu
dísilvélar um borð hlaða rafmagni
inn á rafgeyma. Þetta kom fram í
svari Ólafar Nordal innanríkis-
ráðherra við fyrirspurn Oddnýjar
G. Harðardóttur alþingismanns um
rafdrifinn Herjólf.
Oddný spurði m.a. um hleðslu-
stöðvar í höfnum fyrir ferjuna. Ólöf
sagði að miðað við tæknina í dag
þyrfti að styrkja raforkukerfið eða
koma fyrir hleðslustöð í höfnunum.
Áætluð ársnotkun dísilolíu er um
1.200 tonn. Miðað við olíuverð í dag
munu sparast um 170 milljónir
króna árlega vegna olíukaupa,
samkvæmt lauslegu mati. Miðað við
20 ára endingu yrði sparnaðurinn
3,4 milljarðar kr. Frá dregst síðan
kostnaður við rafmagnskaup.
gudni@mbl.is
Yfir 700.000 m3 dýpkun í ár
Ekki er útséð um siglingar í Landeyjahöfn í vetur Kannað með
dýpkun um leið og veður batnar Vatnslíkan af Landeyjahöfn
Umsókn Dags B.
Eggertssonar
borgarstjóra um
leyfi til að breyta
íbúðarhúsnæði í
smávöruverslun
með matvæli hef-
ur verið sam-
þykkt. Um er að
ræða kjallara
húss á lóð nr. 8b
við Óðinsgötu í
Reykjavík. Verður útbúinn nýr inn-
gangur á vesturgafli hússins.
Þetta kemur fram í nýrri fundar-
gerð byggingarfulltrúa í Reykjavík.
Segir þar að umsækjandi hafi far-
ið fram á undanþágu frá kröfum um
aðgengi fyrir alla í kjallara.
Fjölskyldan býr á efri hæðum
Dagur og fjölskylda búa á efri
hæðum hússins, sem er á horni
Óðinsgötu og Spítalastígs.
Dagur og eiginkona hans, Arna
Dögg Einarsdóttir, keyptu kjall-
arann af fyrri eigendum í fyrravor.
Kjallarinn er skráður 65,4 fermetrar
en efri hæðirnar þrjár, að meðtöldu
risi, eru rúmir 186 fermetrar.
Húsið er byggt árið 1909 og hljóð-
ar fasteignamatið upp á samtals
84,15 milljónir króna. Þau Dagur og
Arna Dögg keyptu tvær efstu hæðir
hússins árið 2002 og bættu svo við 1.
hæð árið 2010 og svo kjallaranum í
fyrra, skv. eigendasögu fasteigna-
skrár. Ekki náðist í Dag en hann var
á fundi í París. baldura@mbl.is
Verslun í
húsi borg-
arstjóra
Dagur B.
Eggertsson
Umsókn Dags B.
hefur verið samþykkt
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur hollensku pari, karli
og konu, vegna fíkniefnasmygls.
Ákæran hafði ekki verið birt parinu í
gær og því fékkst hún ekki afhent.
Parið var handtekið eftir að mikið
af fíkniefninu MDMA fannst í húsbíl
þess um borð í Norrænu, sem kom
til Seyðisfjarðar 8. september sl.
Efnin fundust þegar tollverðir tóku
fólkið í úrtaksleit. Um er að ræða
eitt stærsta fíkniefnamál sem komið
hefur upp hér á landi.
Maðurinn og konan eru bæði fædd
árið 1970. Hann var úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 2. desember og
hún var í farbanni til sama dags.
Hollenskt
par ákært