Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 48
48 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Vísindamenn telja að hnúfubökum í Kyrrahafi
og fleiri hvalategundum stafi hætta af loftslags-
breytingum. Meiri sjávarhiti hefur orðið til þess
að minna er af átu, helstu fæðu hnúfubaka, far-
tími þeirra hefst fyrr en áður og þeir þurfa að
ferðast lengri vegalengdir milli fæðusvæða og
æxlunarsvæða. Hvölunum stafar einnig hætta af
súrnun sjávar vegna aukins koltvíoxíðs, að sögn
bandaríska vísindamannsins Rogers Payne.
Hvalir taldir í hættu vegna loftslagsbreytinga
Fæðusvæði Æxlunarsvæði Farleiðir
Hnúfubakur
Heimildir: Whale and Dolphin Conservation, IUCN, Cetacean Conservation Center, UNEP
5 metra löng bægsli
Mesta lengd: 18,5 m (kýr), 17m (tarfar)
Mesta þyngd: 40 tonn (kýr)
Söngur
Mesti hraði Lífslíkur
Við fæðingu: 4-5m
Helsta
fæða
Fullvaxta hvalur getur étið næstum 1.500
kíló af átu á dag
Tarfarnir gefa frá sér löng og fjölbreytileg hljóð
á fartíma á haustin og fengitíma að vetri og
þau heyrast stundum í þúsunda kílómetra fjarlægð
Hnúfubakar veiða stundum í hópum. Þeir
umkringja fisktorfur og búa til eins konar
loftbólunet sem fanga fiskinn
Bægsli eru ljósari á hnúfubökum í Atlantshafi
en í þeim sem lifa í Kyrrahafi
7 cm
Áta
Fæðuhegðun
Helstu einkenni
Á höfði og neðri kjálka
eru hringlaga hnúðar
Sporðblaðka: Er með litamynstur sem hægt
er að nota til að greina einstaklinga, líkt og fingraför
25 km/klst 50 ár
Steypireiður
33 m
Búrhvalur
18 m
Sunnansléttbakur
17 m
Hrefna
11 m
Hnúfubakur
18 m
Megaptera novaeangliae
Helstu ógnir
Ástand stofnsins
Efna- og hávaðamengun,
hnignun búsvæða
Árekstur við skip, olíu- og
gasvinnsla á hafi úti
Hættan á að hvalir
festist í fiskinetum
Hnúfubakur notar skíði, hyrniþynnur í
skoltinum, til að sía fæðuna frá sjónum,
þrýstir sjónum út í gegnum skíðin og gleypir átuna
Sjór
ÚtdauðurÍ hættu
Í minnstri
hættu
Stjórnlagadómstóll Spánar ógilti í
gær ályktun sem héraðsþing Kata-
lóníu samþykkti um að hefja að-
skilnað frá Spáni. Mariano Rajoy,
forsætisráðherra landsins, fagnaði
ákvörðun dómstólsins og sagði að
allir ellefu dómarar hans hefðu sam-
þykkt hana.
Ályktunin var samþykkt á þingi
Katalóníu eftir að flokkar sjálf-
stæðissinna fengu meirihluta þing-
sæta í kosningum sem fram fóru í
september og um 48% atkvæðanna.
Leiðtogar flokkanna segjast ætla að
virða ákvörðun stjórnlagadómstóls-
ins að vettugi.
Í þingsályktuninni segir meðal
annars að ljúka eigi aðskilnaðinum
frá Spáni innan átján mánaða og að
spænskar stofnanir geti ekki hnekkt
lagafrumvörpum eða ályktunum
sem þing Katalóníu samþykkir.
bogi@mbl.is
Sjálfstæði
Katalóníu
hafnað
Stjórnlagadómstóll
Spánar ógilti ályktun
Mark Zuckerberg, stofnandi Face-
book, og eiginkona hans, Priscilla
Chan, skýrðu frá því í fyrrakvöld
að þau hygðust gefa 99% hlutabréfa
sinna í félaginu til góðgerðarmála.
Þetta kemur fram á Facebook-síðu
Zuckerbergs, og hjónin greindu
þar einnig frá því að þau hefðu
eignast dóttur, Max. Hlutabréf
hjónanna í Facebook eru metin á
um 45 milljarða dollara, eða 6.000
milljarða króna.
BANDARÍKIN
Ætla að gefa 99%
bréfa í Facebook
Örlát Zuckerberg, kona hans og barnið.
Farandmenn reyna að halda í sér
hita á meðan þeir bíða eftir því að
komast í flóttamannabúðir í Make-
dóníu við landamærin að Grikk-
landi. Her Makedóníu hefur lokið
við að reisa þriggja kílómetra langa
og 2,5 metra háa girðingu við
landamærastöðina Gevgelija, sem
er á aðalveginum milli grísku
hafnarborgarinnar Saloniki og
Skopje, höfuðborgar Makedóníu.
Stjórn landsins segir að flóttafólki
frá stríðshrjáðum löndum verði
hleypt yfir landamærin en ekki far-
andfólki frá löndum sem teljist vera
örugg.
AFP
Beðið í kuldanum
Her Makedóníu lýkur við landamæragirðingu
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af
öryggisvörum