Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 86

Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 86
86 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015 Dúkar & servíettur Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta Síðumúla 32, Reykjavík – Tjarnargötu 17, Keflavík – Glerárgötu 32, Akureyri Sími 588 5900 – alnabaer.is – Opið: mán -fös 11-18 Drapplitaður hördúkur með servíettum. Stærð 160x230, 160x280 Beis eða hvítur dúkur Stærðir: 150x220, 150x250, 150x300, 150x320 Hvítur dúkur Stærðir: 150x220, 150x250, 150x300 Hvítar servíettur 6 stk. í pakka Úrval af fallegum dúkum og servíettum í ýmsum stærðum og gerðum Lítið við og skoð ið úrvalið Blúnda ásamt undirdúk, 2 saman í kassa. Stærðir: 160x220, 160x250, 160x300 Strax í upphafskafla bók-arinnar Hersetan á Strönd-um og Norðurlandi vestragefur Friðþór Eydal tóninn að fróðlegri bók. Þar segir höfund- urinn í hnitmiðuðum tveggja blað- síðna texta hvernig kaupin gerðust þegar Ísland var hernumið í síðara stríði, sem aftur leiddi af sér mestu breytingar sem orðið hafa á ís- lensku þjóðlífi. Umsvif stríðs- rekstrarins náðu til landsins alls, þó í mismiklum mæli væri. Sumu frá þessum tímum hafa söguritarar lítið sinnt, svo sem því að herir Breta og síðar Bandaríkja- manna höfðu talsverð umsvif við Húnaflóa og í Skagafirði. Að því leyti er mikill akkur í þessari bók Frið- þórs, sem áður hefur skrifað margar bækur um þessa áhugaverðu átaka- tíma. Borðeyri og Reykir við Hrútafjörð voru mikilvæg bólvirki hersveita Bandamanna í síðara stríði. Þar var stórskotalið með strandvarnabyssur og ljóskastara sem drógu allt að sex kílómetra. Þetta og fleira sýnir og segir hve mikilvægt var að halda uppi varðstöðu á þessu svæði og þá varð sitthvað að víkja svo sem starfsemi Reykjaskóla sem lagðist af í nokkra vetur eða á meðan hermenn sátu staðinn. Og þarna þurfti bændasyni í Bretavinnu og þá sáu margir bein- harða peninga í fyrsta sinn. Í Skagafirði bárust nýir menning- arstraumar með hernum. Lengi hef- ur sú flökkusaga flotið að þýsk- bandaríska leik- og söngkonan Mar- lene Dietrich hafi lagt leið sína norður á Sauðárkrók og skemmt her- mönnum. Í bókinni eru nefnd ýmis rök fyrir því að Dietrich hafi senni- lega aldrei verið nyrðra, þótt menn verði sennilega aldrei sammála um niðurstöðuna. En hér er fyllt út í myndina. Sömuleiðis er mikilsvert að loksins sé sagt af þeim atburði þegar alls átján hermenn fórust snemma árs 1942 þegar litlum bátum sem þeir voru á hvolfdi á Hrútafirði. Þótt sagt hafi verið frá þessum atburði áður hafa þær frásagnir kannski ekki verið ítarlegar en hér er bætt úr, svo til fyr- irmyndar er. Til bóta hefði verið fyrir bók þessa ef höfundur hefði farið aðeins út fyrir rammann, ef svo má segja. Gaman hefði verið að vita meira um sambúð herliðs og Íslendinga og fá þannig svipmyndir úr mannlífinu. Einnig hefði mátt leika sér örlítið með stíl- brigði og orðalag, enda hefði það gert frásögnina líflegri. Niðurstaðan er samt sem áður sú að á borðinu liggur góð bók, sem er skrifuð af þekkingu af manni sem hefur ástríðu fyrir við- fangsefni sínu. Friðþór „… góð bók, sem er skrifuð af þekkingu af manni sem hefur ástríðu fyrir viðfangsefni sínu,“ segir rýnir um bók Friðþórs Eydal. Áhugaverðir átakatímar Fróðleikur Hersetan á Ströndum og Norðurlandi vestra bbbnn Eftir Friðþór Eydal. Hólar, 2015. Innbundin, 159 bls. SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON BÆKUR Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna, voru kynntar í Aðalsafni Borgarbóka- safns Reykjavíkur í gær. Alls eru níu bækur tilnefndar til verð- launanna, þrjár í hverjum flokki, þ.e. flokki fagurbókmennta, fræðibóka og barna- og unglingabóka. Í flokki barna- og unglingabóka eru tilnefndar bækurnar: Vetrarfrí eftir Hildi Knútsdóttur; Kopar- borgin eftir Ragnhildi Hólmgeirs- dóttur og Randalín, Mundi og aft- urgöngurnar eftir Þórdísi Gísla- dóttur og Þórarin M. Baldursson. Dómnefnd skipuðu Júlía Margrét Alexandersdóttir, Þorbjörg Karls- dóttir og Þórey Mjallhvít H. Ómars- dóttir formaður. Í umsögn dómnefndar um Vetr- arfrí segir: „Vetrarfrí er lipurlega skrifuð og ákaflega spennandi ung- lingabók með mikilvægan boðskap og sterka ádeilu.“ Um Koparborgina segir: „Í Kop- arborginni birtist einstakur sögu- heimur, margslunginn og vel hugs- aður í framandi og leyndar- dómsfullri fantasíu. Sagan er spennandi frá fyrstu blaðsíðu, falleg og hrikaleg í senn […]“ Um Randalín, Munda og aft- urgöngurnar segir: „Yfir sögunni er skondinn og léttur tónn og höfundur hefur næmt auga fyrir því eilítið skrýtna og skemmtilega í dags- daglegu […]“ Skrifuð af hlýju og einlægni Í flokki fagurbókmennta eru til- nefndar bækurnar: Humátt eftir Guðrúnu Hannesdóttur; Mörk eftir Þóru Karítas Árnadóttur og Tvöfalt gler eftir Halldóru K. Thoroddsen. Dómnefnd skipuðu Ragnheiður Margrét Guðmundsdóttir, Salka Guðmundsdóttir og Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir formaður. Í umsögn dómnefndar um Humátt segir: „Humátt er eftirminnileg, innihaldsrík og vönduð ljóðabók sem einkennist af skörpu innsæi, aðdáun- arverðum stílbrögðum og óbilandi tilfinningu fyrir möguleikum ljóðs- ins.“ Um Mörk segir: „Mörk er skrifuð af mikilli hlýju og einlægni. Hún er látlaus og dvelur ekki við ofbeld- islýsingar, án þess að vera með tepruskap. Bókin nær að vera klisju- laus og þetta er nýr vinkill á sögu þolanda. Þetta er ekki saga um ónýtt líf heldur um manneskju sem nær að vinna úr hryllingnum og stendur uppi sem sigurvegari, þótt ekkert sé dregið úr alvarleikanum.“ Um Tvöfalt gler segir: „Halldóru Thoroddsen tekst sérlega vel að lýsa miklum tilfinningum í fáum en dýr- mætum orðum. Sagan Tvöfalt gler er lágstemmd og fögur og stíllinn tær, ljóðrænn og sindrandi.“ Tímabær bók Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis eru tilnefndar bækurnar: Heið- ur og huggun – Erfiljóð, harmljóð og huggunarkvæði á 17. öld eftir Þór- unni Sigurðardóttur; Ástin, drekinn og dauðinn eftir Vilborgu Davíðs- dóttur og Rof – Frásagnir kvenna af fóstureyðingum eftir Silju Báru Óm- arsdóttur og Steinunni Rögnvalds- dóttur. Dómnefnd skipuðu Erla Elías- dóttir Völudóttir, Sigurrós Erlings- dóttir og Erna Magnúsdóttir for- maður. Í umsögn dómnefndar um Heiður og huggun segir: „Auk fræðilegrar dýptar hefur bókin mikla breidd í efnistökum. Þórunn skoðar fé- lagslegt og sálrænt hlutverk kvæð- anna út frá samfélagsviðmiðum við ritunartíma og ber saman við hug- myndir nútímans.“ Um Ástina, drekann og dauðann segir: „Höfundur tekst á við áleitnar spurningar um lífið og dauðann og horfist í augu við hvort tveggja af hugrekki og æðruleysi. Bókin er skrifuð af mýkt og einlægni, Vilborg nálgast dauðann sem hluta af lífinu og vekur máls á kimum mannlífsins sem fólk veigrar sér við að ræða.“ Um Rof segir: „Rof er tímabær bók um þýðingarmikinn hluta af reynsluheimi kvenna sem legið hef- ur að mestu í þagnargildi til þessa. Í bókinni eru frásagnir 76 kvenna af fóstureyðingum sem höfundar hafa greint af kostgæfni og skipt í flokka. Greining höfunda setur frásagnirnar í samfélagslegt og fræðilegt sam- hengi og dýpkar þannig upplifun les- andans. Lesandinn kemst ekki hjá því að horfast í augu við að á Íslandi er ákvörðun um fóstureyðingu ekki að fullu í höndum kvenna, heldur eru þær framkvæmdar í krafti kerfis sem vill svo til að er hliðhollt konum og þeirra ákvörðunarrétti. Þannig gæti kerfið á sama hátt dregið til baka þessi réttindi, sem konum eru í raun ekki tryggð með núgildandi lögum.“ Morgunblaðið/Golli Höfundar Mikil ánægja ríkti meðal kvennanna sem tilnefndar eru í ár. Níu bækur tilnefndar  Fjöruverðlaunin voru fyrst veitt hérlendis árið 2007  Bókmenntaverðlaun kvenna verða afhent á nýju ári Eldhundar nefnist dagskrá um Eld- klerkinn og Hundadagakonunginn sem haldin verður í Norræna hús- inu í kvöld kl. 20. Þar koma fram Pétur Eggerz, höfundur Eldklerks- ins, einleiks um séra Jón Stein- grímsson, og Einar Már Guðmunds- son, höfundur Hundadaga, skáld- sögu með Jörund hundadaga- konung í lykilhlutverki. „Eldklerkur og Hundadagar fjalla um afdrifaríka tíma í Íslands- sögunni og raunar veraldarsög- unni, eldgos, byltingar, ný- lendustefnu og styrjaldir, en líka ástina og gleðina, lífið og söguna. Verkin kallast á þar sem séra Jón, aðalpersóna Eldklerksins, er líka fyrirferðarmikil persóna í Hunda- dögum. Þau byggjast á sömu heim- ildum auk þess sem Hundadagar Einars Más sækja innblástur til Eld- klerks Péturs Eggerz og nýta sér verk hans sem heimild,“ segir í til- kynningu. Aðgangur er ókeypis. Eldhundar í Norræna húsinu í kvöld Pétur Eggertz Einar Már Guðmundsson Sigrún Eldjárn sýnir verk og kynnir nýút- komna bók sína, Strokubörnin á Skuggaskeri, í Borgarbóka- safni, Menning- arhúsi Gróf, við Tryggvagötu 15 í dag kl. 17. Á sýningunni má sjá brot af þeim verkum sem Sigrún vann meðan hún dvaldi annars vegar í Róm og hins vegar í París. Sýningin stend- ur til 10. janúar 2016. Sigrún Eldjárn Sigrún Eldjárn opnar sýningu Áttunda og síð- asta höf- undakvöld haustsins verður haldið í Gunn- arshúsi, húsi Rit- höfunda- sambandsins, við Dyngjuveg 8, í kvöld kl. 20 . Þá mun Björn Hall- dórsson spjalla við skáldin Eirík Örn Norðdahl, Valgerði Þóroddsdóttur og Halldór Halldórsson, auk þess sem höfund- arnir lesa úr nýjum bókum sínum. Síðasta höfunda- kvöldið haldið Eiríkur Örn Norðdahl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.