Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hreyfing og fræðsla Þórdís og Filip ásamt Kolbrúnu Hebu Árnadóttur.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Jóga, qi-gong, tai-chi, kjarn-þjálfun, hugleiðsla, teygjurog styrkur, dans, hugar-leikfimi og möntrukvöld.
Allt þetta stendur til boða í Tveimur-
heimum, miðstöð sem feðginin Þór-
dís og Filip Woolford opnuðu á liðnu
hausti. Bæði eru sérfræðingar á sínu
sviði og höfðu ástundað líkamslistina
qi-gong og tai-chi um árabil áður en
þau létu drauminn rætast og stofn-
uðu eigin heilsumiðstöð.
Þórdís er menntaður qi-gong-
kennari og þerapisti frá Qi-gong
Institute of Rochester í New York
með áherslu á almenna kínverska
læknisfræði, næringarfræði og jafn-
vægisæfingar og hefur starfað sem
einka- og kjarnþjálfi í tólf ár. Á
næsta ári lýkur hún námi í kínversk-
um nálastungum og grasalækn-
ingum. Hún er einnig menntuð í
áfengis- og vímuefnaráðgjöf og hef-
ur haft átröskunarsjúklinga til með-
ferðar. Filip, sem er myndlistar-
menntaður, lærði tai-chi í sex ár og
hefur sótt fjölda námskeiða hér-
lendis sem og í Kína þar sem hann
dvaldi um skeið hjá tai-chi-meistur-
um til að til að dýpka og auka við
þekkingu sína. Sér til fulltingis hafa
þau feðginin sex kennara. Kolbrún
Heba Árnadóttir er einn þeirra og
sér auk þess um markaðs- og kynn-
ingarmál.
Margbreytileikinn
„Markmið okkar er að sameina
tvo heima, annars vegar menningu
og listir og hins vegar fjölbreytta
hreyfingu – næra bæði huga og lík-
ama og í rauninni að hreyfa við
sjálfri tilvist manneskjunnar í öllum
sínum margbreytileika,“ segir Þór-
dís.
Hugmyndafræðin sem Tveir-
heimar byggist á er með austrænum
og vestrænum áherslum í bland. Í
grunninn er litið á manninn sem eina
heild og til að styrkja tilvist hans
þarf hann að svitna, hlæja, teygja
sig, dansa, hugsa, hugleiða, rökræða,
hoppa, hlusta, læra, skilja og æfa
jafnvægi.
Jafnvægi er leiðarstefið á öllum
námskeiðunum. „Að næra huga og
líkama snýst fyrst og fremst um
ástundun og að njóta lífsins, en ekki
meinlæti af neinu tagi. Við boðum
ekki að fólk megi ekki borða hitt eða
þetta og þurfi að lifa eftir ákveðnum
formúlum; verða einhvers konar
staðalímyndir. Enginn stendur und-
ir slíku,“ segir Þórdís.
Öfganna á milli
„Margir sem koma til okkar
eiga það sameiginlegt að hafa reynt
ýmislegt í glímu sinni við andlega og
líkamlega kvilla og hafa farið öfg-
anna á milli í viðleitni sinni til að
verða betur á sig komnir. Annars
kemur hingað líka fólk sem hefur
ástundað qi-gong-hugleiðslu og tai-
chi um árabil og þeir sem vilja læra
eitthvað nýtt. Hver og einn hefur
sína hentisemi, velur tíma sem hon-
um hugnast best, enda engin skyldu-
mæting. Fyrirkomulagið er eins og
tíðkast á líkamsræktarstöðvum, fólk
kaupir sér kort. Við erum með
stundaskrá þar sem við bjóðum til
dæmis daglega upp á kjarnþjálfun
og qi-gong og tai-chi þrisvar í viku,
jóga tvisvar í viku, hugleiðslu tvisvar
í viku, og dans og heimspeki-
hugarleikfimi. Síðan breytum við
stundaskránni ef ástæða þykir til,
fjölgum væntanlega tímum eftir því
sem nýskráningum fjölgar. Utan
hefðbundinnar stundaskrár bjóðum
við upp á fjölbreytt námskeið og við-
burði allan ársins hring. Þóra Kar-
ítas Árnadóttir, leikkona og höf-
undur bókarinnar Mörk, og Einar
Már Guðmundsson, höfundur
Hundadaga, eru með hugleiðslu-
upplestur á aðventunni og eftir ára-
mótin heldur Þórey Sigþórsdóttir
leikkona sjálfstyrkingarnámskeiðið
Röddin – vöðvi sálarinnar.
Þórdís lætur vel af aðsókninni.
Hún segir að Tveirheimar hafi
spurst vel út á samfélagsmiðlum,
fólk sé forvitið, spyrjist fyrir, komi í
auknum mæli í prufutíma – og flestir
haldi áfram. Jafnvægi hugar og lík-
ama er enda eftirsóknarvert í dags-
ins önn og amstri, segir hún.
Listin að lifa
í jafnvægi
Jafnvægi er leiðarstefið á heilsumiðstöðinni Tveir-
heimar, sem feðginin Þórdís og Filip Woolford hafa
starfrækt frá því í haust. Markmiðið er að næra huga
og líkama; sameina tvo heima. Hugmyndafræðin á
rætur í bæði austrænni og vestrænni menningu.
Æft Filip kennir bæði qi-gong-jafnvægisæfingar og tai-chi-bardagaæfingar.
JÓGA - Endurheimtir styrk
Í jógatímunum sem byggjast á
hatha-jóga er fólki kennt að endur-
heimta styrk sinn og með mildum
hætti að efla sig andlega sem líkam-
lega. Óvæntu kryddi úr fjölbreyttum,
listrænum áttum er fléttað inn í sam-
veruna.
KJARNÞJÁLFUN -
Einstaklingsmiðuð aðferð
Kjarnþjálfun er einstaklingsmiðuð
aðferð, sem byggist á kínverskri
læknisfræði og hefðbundinni vest-
rænni þjálfun. Kjarnþjálfun krefst lík-
amlegrar þjálfunar og aga. Aðferðir
eru misjafnar eftir einstaklingum.
DANS - Flæði og losun
Í dansinum sleppir dansarinn sér í
innra flæði og hlustar á líkamann.
Líkaminn er hitaður upp við rólega
tónlist sem stigmagnast og dans-
arinn sleppir sér í villtum takti henn-
ar og losar út í flæðinu ótta, kvíða og
áhyggjur. Í lokin er tónlistin rólegri
og jarðtenging fæst. Danstíminn end-
ar á hugleiðslu.
HEILDRÆN HEILSU-
RÁÐGJÖF - Lífsgæðin efld
Heildræn heilsuráðgjöf er lausna-
miðuð og persónuleg ráðgjöf byggð á
náttúrulegum grunni ætluð til að
hjálpa einstaklingnum að taka
ábyrgð á og efla eigin heilsu. Hvort
sem fólk vill bæta heilsu sína, fyrir-
byggja eða vinna sig út úr veikindum.
TAI-CHI - Bardagaæfingar
Tai-chi eru fornar kínverskar bar-
dagaæfingar sem byggjast á að efla
eigin orku og styrk. Æfingarnar
stuðla að því að ná ró, yfirvegun og
styrk í eigin líkama með hægum
hreyfingum og einbeitingu. Leiðbein-
andi: Filip Woolford.
QI-GONG - Jafnvægisæfingar
Qi-gong eru fornar kínverskar lífs-
orku- og jafnvægisæfingar sem sam-
eina hreyfingu, öndun og einbeitingu.
Heilsu-qi-gong er kennt í Tveimur
heimum og einkennast æfingarnar af
öguðum líkamsburði, öndun og ein-
beitingu og henta þeim vel sem glíma
við stoðkerfisvandamál, háan blóð-
þrýsting, streitu, gigt, liðverki og
vöðvaverki.
HUGLEIÐSLA - Án umbúða
Hugleiðsla á grunni qi-gong. Að-
ferðir við hugleiðslu eru margar,
markmiðið er þó ávallt hið sama: að
skapa hugarró til að njóta betur alls
þess sem gert er og gerist. Hug-
leiðslan er umbúðalaus, allt sem til
þarf er kyrrð og einbeiting.
TEYGJUR OG STYRKUR -
Með austrænu ívafi
Teygjurnar eru hefðbundnar með
austrænu ívafi og teygt á öllum vöðv-
um líkamans. Mikil áhersla er lögð á
öndun, tekinn góður tími í hverja
teygju og í lok tímans er djúpöndun,
sem er slakandi og orkugefandi.
Markmið er að fólk finni fyrir líkam-
anum og stýri huganum í slökun.
MÖNTRUKVÖLD -
Jafnvægi hugans
Möntrur koma jafnvægi á hugar-
starfsemina og er ástundun í að vera
meðvitaður um hugsanir sínar.
Möntrur innihalda tíðni sem við vekj-
um þegar við kyrjum og skapa tónar
möntrunnar þá tíðni sem hefur ró-
andi áhrif á heila og líkama.
HUGARLEIKFIMI-
Heimspeki-kaffihús
Heimspekikaffihúsið er angi af al-
þjóðlegri hreyfingu sem gengur út á
að iðka heimspeki utan veggja há-
skóla. Í hugarleikfimi eru gestir sjálf-
ir sérfræðingarnir. Þjálfuð virk
hlustun, rökhugsun og tjáning.
Jóga, dans ofl.
mbl.is
alltaf - allstaðar
50-80% afsláttur
4.-6. desember - Smáratorgi
FACTORY OUTLET