Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 75
Hljóðfæri Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Kíktu á heimasíðuna lifstykkjabudin.is Mikið úrval Póstsendum Ullar- og silkinær- fatnaður Góð jólagjöf Smáauglýsingar Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015 Elsku afi Ölli hefur nú kvatt okkur, söknuður- inn er mikill en við hlýjum okkur við margar og góðar minningar. Við systkinin vorum svo heppin að fá að vera mikið hjá afa og ömmu þegar við vorum yngri. Afi Ölli hafði mikla þolinmæði fyrir okkur og minnumst við þess ekki að hann hafi skammað okkur, nema kannski hann hafi hastað á okkur ef við vorum með of mikil læti þegar hann horfði á fótboltaleiki í sjónvarpinu. En það gerðist ekki oft, frekar að hann hlægi að uppátækjum okkar. Kannski var ástæðan sú að hann var svo mikið með okkur þegar við vorum hjá þeim. Hann passaði vel upp á að við sinntum skólanum vel og fylgd- ist áhugasamur með okkur vinna heimanámið. Eitt sinn þegar grunnskólakennarar fóru í verkfall fengu Vala og Arna að vera hjá þeim á meðan mamma og pabbi voru í vinnunni. Afi tók sig þá til og setti upp afaskóla. Þar voru skipulagðar kennslustundir, frímínútur og allt sem skólastarfi tilheyrir og þegar verkfall leystist útskrif- aði hann þær með skírteini. Þannig var afi, hann gerði allt af alvöru. Íþróttaáhugi okkar systkinanna er örugglega að miklu leyti frá afa og ömmu kominn. Þau kynntu okkur fyrir alls- konar íþróttum og þegar fjöl- skyldan kom saman var nánast alltaf farið í einhverskonar keppni, það gat verið fótbolti, blak, keila eða botsía. Afi tók okkur líka gjarnan með á völl- inn hvort sem var á fótbolta- eða handboltaleiki. Það var líka mikið spilað í Kvistó og kenndi afi okkur mörg spil. Almarr var sá eini sem fékk áhuga á skák og gátu þeir setið löngum stundum við eldhús- borðið og teflt. Það er samt einn staður umfram aðra sem við tengjum afa við, en það er bílskúrinn hans. Það var hans griðastaður og það leið örugg- lega ekki sá dagur sem hann skrapp ekki út í skúr að brasa eitthvað á meðan heilsan leyfði. Þar fengum við oft að brasa með honum, skilyrðin sem hann setti voru að maður átti að ganga vel um og ganga frá eftir sig enda vissi hann nákvæm- lega hvar allt var í bílskúrnum. Afi smíðaði, lagfærði og tálgaði ýmislegt í skúrnum og það var alltaf hægt að stóla á afa þegar kom að fylgihlutum með ösku- dagsbúningunum hvort sem um var að ræða sjóræningjasverð, skjöld eða töfrasprota, alltaf gat afi reddað því. Elsku afi, takk fyrir allt, við lofum að passa vel upp á ömmu fyrir þig. Þín, Erla, Almarr, Vala og Arna. Örlygur Ívarsson, einn af okkar bestu vinum, er fallinn frá eftir langvarandi erfið veik- indi. Okkar kynni hófust fyrir um hálfri öld í Óðinsvéum í Danmörku. Ég sá hann fyrst í mannþröng fyrir utan fótbolta- völlinn í bænum, dökkan á hár og kvikan í hreyfingum, en kunningi minn benti mér á að þarna færi Íslendingur. Fljót- lega hittumst við og kynni okk- ar hófust. Ekki leið á löngu þar til við Örlygur Ívarsson ✝ Örlygur Ív-arsson fæddist 2. apríl 1931. Hann lést 19. nóvember 2015. Útför hans fór fram 30. nóvember 2015. hjónin treystum hálfókunnugm manninum til að passa kornunga dóttur okkar kvöld- stund, á meðan við skruppum í heim- sókn. Fundum okk- ar Svönu við Ölla, eins og hann var jafnan kallaður, og Bryndísi fjölgaði, þegar á leið dvölina í Danmörku. Við skiptumst á heimsóknum og margt var spjallað og brall- að og líka rædd málin í sam- bandi við námið. Þau hjónin settust tímabundið að í Borg- arnesi, og síðan var flutt til Ak- ureyrar, heimabæjar Bryndís- ar. Ölla líkaði strax vel á Akureyri og byggðu þau sér mátulega stórt hús í Kvista- gerði 6. Þetta varð til þess að Ölli varð harður Akureyringur, sem jaðraði við Gaflara þeirra Hafn- firðinga. Honum fannst á stundum að of mikið væri látið með Reykjavík. Margar urðu ferðir okkar til þeirra, sem alltaf voru tilhlökk- unarefni. Gjarnan sest beint til borðs í dansk frokost. Glatt varð á hjalla, spilað brids, sem Ölli var bestur í, og oftar en ekki tekið lagið, t.d. „Ég vil vitja þín æska“, sem Ölli vildi syngja í Foster-stíl. Við fórum saman í leikhús, sáum sýning- ar, skoðuðum bæinn, næsta ná- grenni o.m.fl., vorum bara tals- vert menningarleg. Margar voru ferðirnar, sem við fórum saman til útlanda. Fjölmargar til að hitta okkar dönsku skóla- félaga, sem alla tíð hafa haldið hópinn, sigling á Adríahafi með stóru skemmtiferðaskipi og ferð til Nottingham, þegar son- ur þeirra var liðsmaður Nott- ingham Forest. Margar fleira mættti telja. Akureyri er mikill íþrótta- bær og ekki síst mikil rækt lögð við fótboltann. Ölli var alla tíð með brennandi fótbolta- áhuga, enda sjálfur liðtækur og eignuðust þau Bryndís afreks- menn á því sviði og dóttirin frá- bær í fimleikum. Ölli var virkur í félagsstarfi tengdu knatt- spyrnunni og lagði mikið af mörkum í því sambandi. Ölli hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum og færði sín rök fyrir þeim. Rökfesta og útskýr- ingar nýttust honum vel við kennslu sem var hans aðalstarf í mörg ár. Hann var listrænn, eins og fleiri í ættinni, handlaginn við viðgerðir og smíðar auk þess að vera menntaður járniðnaðar- maður áður en hann fór í tækninámið. Hann tálgaði ýsu- bein svo úr urðu fuglar, gerði allskyns litla listmuni, skreytti sendibréf og kort og málaði myndir. Ölli var einstaklega barngóð- ur maður. Við minnumst þess sérstaklega þegar hann var að útbúa litla pakka til að hengja á jóladagatalið. Þetta kunnu þau að meta og voru honum góð og hjálpsöm alla tíð. Ekki er hægt að ljúka þessu stutta ágripi minninga um Ölla án þess að lýsa aðdáun á umönnun og þreki Bryndísar í um þau fjög- ur ár sem hann þurfti á hjálp og aðhlynningu að halda nótt sem dag. Hún fann það að hann vildi helst vera heima og gerði hún allt til þess að það gæti verið svo. Ölli hélt skýrri hugsun og heyrn alveg fram undir það seinasta, en sjónin var orðin döpur. Samt er ekki langt síðan hann sat inni í herberginu sínu límdur við tölvuna að horfa á fótbolta. Ég reyndi að leggja eitthvað til málanna en hann taldi mig ekki hafa mikið vit á íþróttinni. Við þökkum Ölla allar við- burðaríkar samverustundir. Guð blessi minningu hans. Elsku Bryndís. Við sendum þér og fjölskyldunni okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Svanhildur (Svana) og Steinn. Við, fyrrverandi stjórnar- menn í knattspyrnudeild KA sem störfuðum með Örlygi Ív- arssyni, Ölla, í stjórn deildar- innar fyrstu árin eftir að farið var að senda lið í nafni félags- ins til þátttöku í Íslandsmótum, söknum vinar í stað, en Ölli lést hinn 19. nóvember. Hann hafði átt við vanheilsu að stríða nokkur ár, einkum síðustu fjög- ur árin eftir að hann fékk al- varlegt áfall og var bundinn við hjólastól eftir það. Hann hélt samt nánast óskertu minni en örðugleikar við að tjá sig urðu til þess að við höfðum ekki samskipti við hann eins og vert hefði verið. Það gekk upp og ofan á knattspyrnuvellinum þessi fyrstu ár, liðið komst fljótlega í efstu deild en náði ekki að festa sig þar og sveiflaðist milli efstu og næst efstu deilda uns kom að stóru stundinni þegar KA varð Íslandsmeistari 1989 og þá voru synir Ölla og Bryndísar konu hans, þeir Ormarr og Þor- valdur, meðal burðarása liðsins og áttu stóran þátt í árangri liðsins. Þessum glæsilega árangri var fagnað í Kvistagerðinu sem annars staðar, enda ótrúlega góður árangur. Við gömlu samstjórnarmenn Ölla sendum Bryndísi, Ormari, Þorvaldi, Hörpu Maríu og fjöl- skyldum þeirra innilegar sam- úðarkveðjur og vitum að minn- ing um góðan dreng mun ylja þeim um ókomin ár. F.h. gömlu samstjórnar- mannanna, Gunnar Kárason, Stefán Gunnlaugsson. Kveðja frá Knatt- spyrnufélagi Akureyrar Örlygur Ívarsson, fyrrver- andi formaður knattspyrnu- deildar KA, lést þann 20. nóv- ember sl. 84 ára að aldri. Örlygur var stjórnarmaður í knattspyrnudeild KA til fjölda ára og gegndi hann þar flestum stöðum, þar á meðal formanns- stöðu. Í raun má segja að hann hafi verið í öllum embættum í stjórn knattspyrnudeildar sem völ var á á þessum árum. Heimili þeirra hjóna, Örlygs og Bryn- dísar Þorvalds, var um margra ára skeið sem félagsheimili KA. Ölli, eins og hann var kallaður, var ætíð til í að leggja hönd á plóg og seinni árin var hann ekki síður til í að gefa góð ráð er menn leituðu til hans. Kær félagi er kvaddur með virðingu og þökkum fyrir allt. Hörpu þinnar, ljúfa lag lengi finn í muna. Því ég minnist þín í dag, þökk fyrir kynninguna. (Á.K.) Knattspyrnufélag Akureyrar vottar eftirlifandi eiginkonu hans, Bryndísi Þorvaldsdóttur, börnum þeirra og afkomendum innilegustu samúð. Hrefna Gunnhildur Torfadóttir, formaður KA. HINSTA KVEÐJA Elsku langafi Ölli, við söknum þín svo mikið. Þú ert núna engill sem passar upp á okkur og við skulum passa langömmu fyrir þig. Þín, Karlotta Björk og Heiðmar Tumi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.