Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 53
UMRÆÐAN 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015 Kia Soul SUV Í Soul fyrir jól — Kia Soul á frábæru verði Fylgdu okkur á Facebook. facebook.com/kiamotorsisland ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Kia á Íslandi. Reynsluaktu hátíðlegum Kia Soul Kia Soul bíður þín í Öskju. Komdu og prófaðu. Kia Soul —1,6 dísil, 6 gíra, beinskiptur,128 hö. Verð frá 3.490.777 kr. Kia Soul er glæsilegur á að líta. Hann er þægilegur í akstri, rúmgóður og þú situr hátt í honum. Soul hefur ótal spennandi eiginleika eins og hita í stýri og sætum, loftkælingu, bakkmyndavél, bakkskynjara, 4,3" litaskjá og 16" álfelgur. Þú getur fengið Soul sem rafbíl eða disilbíl, sjálfskiptan eða beinskiptan — og á alveg frábæru verði. 7 ára ábyrgð fylgir öllum nýjum Kia bílum. 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Litlar breytingar í keppninni um Súgfirðingaskálina Þriðja lota um Súgfirðingaskálina var spiluð á snjóþungu kvöldi í fyrri hluta ýlis. Fjórtan pör mættu til leiks og styrktu félagsauðinn. Úrslit kvöldsins, meðalskor 156 stig: Hnikarr Antons. - Guðbjartur Halldórs. 184 Flemming Jessen - Sigurður Þorvaldss. 177 Kristján Pálss. - Ólafur Karvel Pálss. 172 Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 164 Hafliði Baldursson - Árni Guðbjörnsson 163 Mortan Hólm - Sigurjón Guðröðarson 161 Hnikarr og Guðbjartur enduðu á toppnum með 59,1% skor eftir sviptingasamt kvöld en nokkur pör tylltu sér á toppinn. Staðan eftir þrjár lotur. Flemming Jessen - Kristján H. Björnss. 544 Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 525 Hafliði Baldursson - Árni Guðbjörnss. 509 Kristján Pálss. - Ólafur Karvel Pálss. 499 Eðvarð Sturluson - Mortan Hólm 489 Rafn Haraldsson - Jón Sveinsson 482 Staða þriggja efstu para breyttist ekkert. Næsta lota, sú fjórða í röðinni, verður spiluð á nýju ári og hefst í byrjun þorra. Frí frá spilum í mörs- ugi. Rótin fagnar aukinni umræðu um kynferðisbrot í samfélaginu, ekki síst þeirri sem snýr að val- deflingu þolenda. Þar má nefna Druslugöngu, Free the Nipple- og Beauty tips-byltingar þar sem þöggun, vinnubrögð lögreglu og refsileysi er mótmælt. Kynferðis- ofbeldi skilur hins vegar eftir sig djúp spor sem oft getur verið betra að vinna með í trún- aðarsamtölum við fagfólk áður en slík áföll eru rædd opinberlega. Það er að sjálfsögðu allaf á valdi þolenda hvort og hvenær þeir ræða sína sögu við fjölmiðla og slík umræða hefur marga kosti. Rótin gaf nýlega út bæklinginn „Ef fjölmiðlar hafa samband. Leiðbeiningar fyrir brotaþola og aðstandendur“ sem ætlaður er þolendum ofbeldisglæpa. Hann inniheldur leiðbeiningar um sam- skipti við fjölmiðla eftir áföll vegna ofbeldis. Bæklingurinn er þýddur úr ensku með leyfi Ca- nadian Resource Centre for Vic- tims of Crime. Mannréttindaráð Reykjavíkur og Sorpa/Góði hirð- irinn styrktu gerð bæklingsins. Aðdragandi þess að Rótin ákvað að ráðast í þýðingu og útgáfu bæklingsins er sá að færst hefur í aukana að fólk tjái sig um kyn- ferðisbrot og önnur ofbeldisbrot í fjölmiðlum. Stundum er fólk að opna á slíka reynslu í fyrsta skipti. Við teljum að leiðbeining- arnar geti hjálpað þolendum of- beldis að gera upp hug sinn um það hvernig þeir vilja haga sam- skiptum við fjölmiðla. Tilgangur Rótarinnar er ekki að draga úr þeim sem kjósa að deila sinni sögu opinberlega heldur skapa umræðu um kosti þess og galla fyrir þol- endur. Bæklingurinn getur hjálpað þol- endum að vinna með fjölmiðlum á markvissan og þægilegan hátt eða að hafna því að gera það. Það er þýðingarmikil ákvörðun fyrir þol- endur að vera í sambandi við fjöl- miðla. Fjölmiðlaumfjöllun getur haft jákvæð eða neikvæð áhrif á bataferli þeirra. Ef þú eða ástvin- ur þinn hefur orðið fyrir alvar- legum glæp vilja fjölmiðlar tala við þig. Þeir sem ekki hafa áhuga á að tala við fjölmiðla geta hafnað því boði þegar þeim hentar, of- beldið á ekki að svipta þig rétt- inum til einkalífs. Allir hafa val um það hvort þeir tala við fjöl- miðla eða ekki. Hvernig er rétt að bera sig að? Ef þolandi velur að ræða við fjölmiðla er mikilvægt að átta sig á því að hann hefur litla stjórn á því sem sagt er frá og hvernig það er kynnt almenningi. Einnig getur verið mikilvægt að ráðfæra sig við lögfræðing, eða aðra sem þjónusta brotaþola, um hvað megi segja. Ef lögreglurannsókn er í gangi eða málarekstur í undirbúningi getur fjölmiðlaumfjöllun haft áhrif á málaferlin. Það getur verið erfitt að vernda einkalíf sitt og rétt að vera viðbúinn því að fjölmiðlar birti hvers eðlis málið er og ein- stök atriði þess jafnvel þó útgáfu- bann sé á upplýsingum um málið. Fjölmiðlar geta flutt fréttir af glæpnum, rannsókninni og mála- ferlunum hvenær sem er, líka eftir að þeim lýkur. Fréttaflutningur þeirra getur komið brotaþolum að óvörum mánuðum og árum síðar. Áhugi og umfjöllun fjölmiðla er mismikil eftir málum og minnkar eftir því sem frá líður. Frétta- flutningur veltur á því hvort sagan er talin „fréttnæm“ og á öðrum fréttum sem berjast um birtingu á sama tíma og tónninn í fjölmiðla- umfjölluninni getur breyst hvenær sem er. Til dæmis geta fjölmiðlar dregið upp jákvæða mynd af brotaþola og síðan getur umfjöll- unin skyndilega orðið mjög nei- kvæð. Oft er ábyrgðin á glæpnum sett á brotaþola, t.d. ef í ljós kem- ur að hann er á sakaskrá. Bæklingurinn er aðgengilegur á vef félagsins: www.rotin.is/ef-fjolmidlar-hafa- samband. Hagnýt ráð til þolenda ofbeldis Eftir Guðrúnu Ebbu Ólafs- dóttur, Katrínu Guðnýju Alfreðsdóttur, Kristínu I. Pálsdóttur og Þórlaugu Sveinsdóttur »Rótin gaf nýlega út bæklinginn „Ef fjöl- miðlar hafa samband. Leiðbeiningar fyrir brotaþola og aðstand- endur“ sem ætlaður er þolendum ofbeld- isglæpa. F.v. Katrín Guðný Alfreðsdóttir, Kristín I. Pálsdóttir, Guðrún Ebba Ólafsdóttir og Þórlaug Sveinsdóttir. Höfundar eru í ráði Rótarinnar. mbl.is alltaf - allstaðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.