Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015 BÆKUR R ithöfundar létu sjaldan vita af því hvað þeim fannst um skrif okkar – stundum saknaði ég þess að enginn vildi fara í fótspor Elíasar Marar sem skrifaði ágæta grein til að mót- mæla ritdómi í Þjóðviljanum um Sóleyjarsögu hans. Ég nefni þó fá- ein dæmi svo sem til gamans. Snemma á mínum ferli gengur Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur snúðugt inn um dyr hjá mér og spyr: „Veist þú hvað þú hefur gert, drengur?“ Nei, ég vissi það ekki. „Þú hefur kallað mig bókmennta- lega hóru!“ Ég hafði skömmu áður leyft mér smávegis háð í umsögn um nýtt bindi af „Íslenskum örlagaþáttum“ sem þeir Sverrir og Tómas skáld Guðmundsson tóku saman – í þá veru að fulllítið legðist fyrir slíka kappa í þessum mannlýsingum. En hvað gat ég sagt? Sverrir stikaði um gólf um stund og barði niður staf sínum en ég þagði eins og hundur sem hefur velt um koníaks- glösum þar til þessi meistari stíls og skarprar rökvísi dregur upp sérríflösku og segir: „Jæja, fáðu þér einn.“ Þegar Guðmundur Hagalín var áttræður skrifaði ég grein um hann og minntist þar á nokkrar bækur hans sem ég las ungur og fann þeim ýmislegt til ágætis. Guð- mundur hringdi í mig og þakkaði mér mörgum orðum fyrir pistilinn. Hann lét þess getið um leið að eig- inlega hefði hann alltaf verið vel róttækur maður. Mér er nær að halda að Guðmundur hafi haldið að með þessari grein minni hafi hin rauða kirkja Íslands ákveðið að taka sig í sátt, að hér hefði mikil stefnubreyting átt sér stað sem kallaði á jákvæð viðbrögð. Hann hafði vanist á það að reikna sín dæmi á þann veg. Skáld eru að jafnaði örlátari á skammir en að þau þakki það sem þeim líkar vel. Því kom það mér á óvart þegar ég hitti Stefán Hörð Grímsson á DAS, þar sem hann bjó sín síðustu ár, hve undarlega ham- ingjusamur hann var yfir umsögn sem ég hafði þá skrifað um nýja ljóðabók hans, Tengsl. Svo bætti hann við þessum einkennilegu orð- um: „Ég er viss um að aðrir höfundar hata mig núna. Best að fara ekki úr húsi.“ Hann sagði líka: „Þú ert sjálfur skáld, ég efa það ekki. Þú skrifar þannig …“ Mikið var ég sjálfur sæll með mig þennan dag. En hvað sem á gekk: ég lít um öxl og sé að þetta var indælt stríð. Hvernig gat bókaormi og lestr- arhesti fundist annað? Gat nokkurn skugga borið á þá skemmtun að stunda listina að lesa? Varla. Nema hvað lífsklukkan gengur, tímans tönn er þolinmóð og nagar hvað sem er. Til dæmis hæfileikann til að hrífast sem er illt án að vera þeim sem opnar nýja bók og vill um hana hugsa og fjalla. Þá kemur upp í hugann samtal sem ég átti við Sigfús Daðason skáld sumarið 1988. Við fórum að tala um það að nú væru allir hættir að skrifa bréf: „Menn gefa ekki svo glatt út bréfasöfn frá seinni hluta okkar aldar,“ sagði ég. „Bættur sé skaðinn,“ sagði Sig- fús. „Ojæja,“ sagði ég. „Bréf eru nú góð ábót.“ „Já, ef maður er forlyftur í höf- undi þá grípur maður feginn hvaða snifsi frá hans hendi sem er.“ „Verst að það eldist af manni að vera forlyftur í nýjum höfundum, grípa í uppnámi nýja bók og hugsa: hvað er hann að fara þessi,“ sagði ég. „Gerir ekkert til,“ sagði Sigfús. „Maður les bara betur þá gömlu. Það er gott að lesa Virgil, það er í honum súbstans. Þótt hann geti nú verið djöfull leiðinlegur líka.“ „Já, þetta eldist af manni,“ end- urtók ég. „Miklu frekar getur mað- ur orðið forlyftur í kvenmanni.“ Nú hló Sigfús. „Það eldist af manni líka,“ sagði hann. „Ekki jafn andskoti hratt og hrifning af bókmenntum …“ Ég held reyndar að fyrir utan spellvirki aldursins hafi það þegar leið á minn gagnrýnandaferil haft sitt að segja að ég fór að sjálfur að skrifa bækur. Ég tók eftir því að meðan ég sjálfur var með skáldsögu í smíðum fannst mér aðrar skáld- sögur um stund næsta óþarfar. Lík- lega er þetta óumflýjanlegur hluti af þeirri sjálfhverfu sem er allt að því atvinnusjúkdómur þeirra sem setja saman bækur. En það kemur satt að segja líka fyrir bestu skáld að finnast flest ómerkilegt sem aðr- ir eru að setja saman. Rússneska skáldkonan Anna Akhmatova sagði eitt sinn við góða vinkonu sína: „Skáld þarf ekki annars manns kvæði, það ber í sér heilan heim.“ Eins gott að þessi hugsun ráði ekki yfir öllum dögum gamals lestr- arhests. Raunir gagnrýnandans  Eitt á ég samt, endurminningar Árna Bergmanns, grein- ir frá ferli hans sem lykilmanns í íslensku menningarlífi  Hann var lengi blaðamaður og ritstjóri á Þjóðviljanum, helsta málgagni íslenskra vinstrimanna, og skrifaði jöfnum höndum um bókmenntir og alþjóðamál  En Árni var einnig fjölhæfur skáldsagnahöfundur, heimspekingur, eig- inmaður og faðir sem tengst hefur Rússlandi og gyðingum á sérstakan hátt  Mál og menning gefur út. Fyrsti ritstjórnarfundur Þjóðviljans í Síðumúlanum Frá vinstri: Árni Bergmann, Guðjón Sveinbjörnsson, Rúnar Ármann Arthúrsson, Sigurdór Sigurdórsson, Guðjón Friðriksson, Dagur Þorleifsson, Gunnar Steinn Pálsson, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson og Svavar Gestsson. Stigið út fyrir Árið 1971 var settur saman hópur til að búa til vikulegan sjónvarpsþátt um alþjóðamál: Haraldur Ólafsson, Jón H. Magnússon, Baldur Guðlaugsson og Árni. Á myndina vantar Sonju Diego og Björn Bjarnason. holar@holabok.is — www.holabok.is Ævisaga Jóns Magnússonar skipstjóra, útgerðar- og athafnamanns á Patreksfirði á erindi til allra sem áhuga hafa á sögu sjávarútvegs á Íslandi. Hann hefur ekki alltaf fylgt straumnum, heldur fer hann óhikað sínar leiðir ef svo ber undir. Þetta var nú bara svona er lífleg og skemmtileg bók þar sem orðalag og frásagnargleði Jóns fær að njóta sín. ÞETTA VAR NÚ BARA SVONA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.