Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015 Morgunblaðið/Árni Sæberg þakka fyrir það sem vel er gert held- ur en að benda sífellt á gallana.“ Önnu Sigríði finnst að Íslend- ingar mættu vera svolítið umburð- arlyndari, láta af íhaldsseminni og reyna að sætta sig betur við breyt- ingar í málinu. Hún nefnir þágufalls- sýkina, sem meirihluti þjóðarinnar hefur tileinkað sér, sem dæmi. „Sú málnotkun mætir mikilli andstöðu í þjóðfélaginu. Það er eins og fólk finni líkamlega til þegar það heyrir sagt „mér langar“, haldi að málið hrynji ef slíkt verður ofan á og algjör skandall ef þágufallssýki færi að ryðja sér til rúms í útvarpi allra landsmanna,“ segir Anna Sigríður og bætir við að þar á bæ ætli menn að vera síðasta vígið. Gætir kannski menntahroka að einhverju leyti? „Þjóðin er illa haldin af mál- hroka. Sumir hafa tilhneigingu til að líta niður á og setja sig á háan hest gagnvart þeim sem hafa ekki jafn- gott vald á málinu og þeir sjálfir. Við elskum öll íslenskuna og viljum veg hennar sem mestan, en höfum stund- um skrýtnar aðferðir til að tjá þessa ást okkar.“ Alvarleg ógn við tunguna Þótt Anna Sigríður óttist hvorki slettur né tökuorð, hefur hún áhyggjur af alvarlegri ógn sem steðj- ar að íslensku og gæti beinlínis út- rýmt henni í sífellt tæknivæddari heimi. „Við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að halda í við þróunina; til að geta talað við símana okkar, tölvurnar okkar, bílana okkar. Til þess þarf peninga og sem betur fer er núna í fyrsta skipti gert ráð fyrir fjárframlagi í fjárlaga- frumvarpinu til þróunar og rann- sókna á máltækni. Þrjátíu milljónir eru dropi í hafið en samt viðleitni. Hér hefur þó ýmislegt verið gert. Til dæmis er mikil rannsóknarvinna í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík og íslenskir hugsjóna- menn sem vinna hjá Google hafa í sjálfboðavinnu safnað raddsýnum til að kenna snjalltækjum að þekkja ís- lensku.“ Talið berst að eilífðarumræð- unni eins og Anna Sigríður kallar stöðugt karp hlustenda um tiltekin orð. Á að segja skúrin eða skúrinn í merkingunni regnskúr? Eða í merk- ingunni kofi ef því er að skipta? Eru bæði orðin kvenkyns eða karlkyns án tillits til merkingar þeirra? Annað hvort? Málið er flókið og hún þurfti að leggjast í mikla rannsóknarvinnu til að fá úr þessu skorið. Niðurstaðan var í grunninn sú að allt væri rétt, bara ekki sama hvar á landinu orðin væru notuð. Hán er ekki bannað Svo er það orðið hán, sem marg- ir sem hvorki skilgreina sig karl né konu, vilja nota sem persónufornafn. Anna Sigríður tók orðið hán til um- fjöllunar í þættinum Orð af orði fyrir hálfu öðru ári og lýsti sig fremur mótfallna upptöku þess, m.a. á þeirri forsendu að nýtt persónufornafn, öf- ugt við ný nafnorð, lýsingarorð og sagnorð, væri breyting á málkerfinu og slíkt væri bæði erfitt og flókið við- fangs. Aukinheldur ættum við í mál- inu persónufornafnið það sem væri alveg ágætt. „Ábendingarfornafnið þetta er aftur á móti niðrandi þegar talað er um fólk. Ég var kannski svo- lítið hvassyrt í þættinum, en ég er samt þeirrar skoðunar að hán eigi ekki sérstaklega greiða leið inn í málið. Auðvitað ætla ég ekki að standa í vegi fyrir að notað verði annað persónufornafn en það sem mér finnst henta, enda tel ég að minnihlutahópar sem berjast fyrir réttindum sínum eigi að hafa um það að segja hvaða orð eru viðhöfð um þá.“ Anna Sigríður lætur nefnilega ekkert fara í taugarnar á sér, er á móti boðum og bönnum í íslenskunni og vill ekki standa í stríði við einn eða neinn. „Að einhverju leyti hef ég talsvert vald um hvernig málið þróast, en þó ekki svo að ég geti eða vilji fara að ósk sumra hlustenda sem segja að þjóðin geti ekki talað á til- tekinn máta og spyrja hvort ég geti ekki einfaldlega bannað henni að tala svona.“ Karl Hallgrímsson sendi nýlega frá sér annan geisladisk sinn, Draumur um koss, og þar semur hann öll lög og texta. Kalli fékk úrvalstónlistar- fólk til liðs við sig, en hljómsveitina skipa ásamt honum þeir Davíð Þór Jónsson, Birgir Baldursson og Eðvarð Lárusson. Lögin og textarnir á disk- inum koma úr ýmsum áttum, þar er djass, klezmer, blús, rokk og fleira. Þeir félagarnir ætla að vera með tón- leika annað kvöld, föstudagskvöld á Rósenberg kl. 22 og á laugardags- kvöld í Aratungu í Biskupstungum kl. 21, þar sem Kalli bjó og starfar enn sem kennari. Tónleikar með einvalaliði á föstudag og laugardag Kalli á Rósenberg og í Aratungu Ljósmynd/Ívar Sæland Tónlistarmaður Nýi diskurinn hans Kalla heitir Draumur um koss. Hljómsveitin DALÍ verður með út- gáfutónleika á Gauknum í kvöld kl. 21 í tilefni nýúkominnar plötu. Sveitina skipa söngkonan og bassa- leikarinn Erla Stefánsdóttir, Helgi Reynir Jónsson gítarleikari, Fúsi Óttars trommuleikari og Franz Gunnarsson gítarleikari. Andri Ívars, uppistandari og gítarleikari, sér um upphitun. Dalí heldur tónleika í kvöld Tilnefndur Hermann, ofvirkur Bíld- dælingur, formaður, myrkur djákni úr Selvogi og fleiri snillingar ætla að lesa upp úr verkum sínum í kvöld á Bókakaffinu á Selfossi. Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og for- maður Rithöfundasambands Íslands fer fyrir fríðum hópi rithöfunda og verður húsið opnað kl. átta en lestur hefst hálftíma síðar. Kristín Helga les upp úr bók sinni Litlar byltingar, en þar eru sögð sögubrot af tíu konum sem dreymir um betri daga. Hermann Stefánsson les upp úr bók sinni Leið- in út í heim, sem er margslungið framhald af Palla sem var einn í heiminum, en bók Hermanns er til- nefnd til Íslensku bókmenntaverð- launanna. Guðmundur Brynjólfsson les upp úr Líkvöku, en þar segir frá manni sem ímyndar sér að hann sé djöfullinn endurborinn. Páll Bene- diktsson les úr Loftklukkunni, ætt- arsögu og minningum úr Norðurmýr- inni. Guðrún Guðlaugsdóttir les upp úr bók sinni Blaðamaður deyr, en þar segir frá Ölmu blaðakonu sem fær í hendurnar spillingarmál sem hún beitir ýmsum brögðum við að leysa. Guðrún Sæmundsen les upp úr bók- inni Hann kallar á mig, sem er bersögul samtímasaga þar sem fjallað er á áhrifamikinn hátt um fíkn, ofbeldi, vináttu og svik. Jóna Guð- björg Torfadóttir les upp úr barna- bókinni Ævintýragarðinum, þar sem saman koma íslenskur nútíma veru- leiki og ævintýraheimur með norn- um, ófreskjum og risum. Kakó, kaffi og bækur í Bókakaffinu hjá Bjarna Höfundar lesa upp á Selfossi Morgunblaðið/Einar Falur Rithöfundur Kristín Helga. Málfarsráðunauturinn Önnu Sigríði Þráinsdóttur finnst frábært og raunar einn skemmtilegasti þáttur starfsins að vera í sambandi við fólkið í landinu og er þakklát fyrir að fá ábendingar um málfar, fram- burð og þess háttar. „Við elskum öll ís- lenskuna og viljum veg hennar sem mestan, en höfum stundum skrýtn- ar aðferðir til að tjá þessa ást okkar.“ JÓLADÚNDUR TAX FREE af öllum snyrtivörum, ilmum og gjafakössum fyrir dömur og herra í desember. Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.