Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 92
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 337. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Svona á ekki að losa bílinn
2. Komu Einari vel á óvart
3. Birti myndband af árekstrinum
4. Feðgar selja íbúðahótel
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Andri Björn Róbertsson bass-
barítónsöngvari hefur verið ráðinn til
að syngja hlutverk Angelotti í óp-
erunni Tosca eftir Puccini sem verður
sýnd í English National Opera í Lond-
on næsta haust. Þá hefur hann þegar
verið bókaður til að syngja hlutverk í
nýrri óperu í Royal Opera House í
Englandi vorið 2018. Andri Björn er
bókaður víðar; í vor mun hann til að
mynda syngja í óperunni Artúr kon-
ungi eftir Purcell og Töfraflautu Moz-
arts við Óperuhúsið í Zürich í Sviss
en hann starfaði við stúdíó Óperu-
hússins í fyrravetur og söng þá í
nokkrum uppsetningum þar. Íslend-
ingum gefst kostur á að hlýða á
Andra Björn á hádegistónleikum Ís-
lensku óperunnar á þriðjudaginn
kemur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Andri Björn bókaður
víða næstu misserin
Baldvin Oddsson trompetleikari
leikur einleik í trompetkonsert Alb-
inionis á aðventutónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands í kvöld. Bald-
vin hefur verið tilnefndur til Íslensku
tónlistarverðlaunanna sem „bjart-
asta vonin“, hefur komið fram á tón-
leikum í Evrópu og Norður-Ameríku
og hlotið fjölda viðurkenn-
inga fyrir leik sinn.
Auk konserts Albin-
ionis hljóma á tón-
leikunum þrjár sin-
fóníur eftir J.S.
Bach en
stjórnandi
er Matt-
hew
Halls.
Baldvin blæs á
aðventutónleikum
Á föstudag Gengur í hvassa norðaustanátt, en stormur nyrst á
landinu um kvöldið. Úrkomulítið suðvestanlands, annars víða snjó-
koma, en slydda með austurströndinni. Minnkandi frost, yfirleitt 0
til 5 stig um kvöldið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 3-10 m/s og víða él en bjartviðri
norðaustanlands. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
VEÐUR
Gylfi Þór Sigurðsson hefur
átt erfitt uppdráttar með
Swansea á þessari leiktíð,
sérstaklega í samanburði
við síðasta vetur. Morgun-
blaðið leitaði til þriggja
álitsgjafa og spurði þá út í
stöðuna hjá besta leik-
manni íslenska karlalands-
liðsins í knattspyrnu, þegar
hálft ár er þar til Gylfi fer
með liðinu í lokakeppni Evr-
ópumeistaramótsins í
Frakklandi. »2
Lætur þessa lægð
ekki vara lengi
Atvinnukylfingurinn Ólafur Björn
Loftsson, úr GKG, gekkst undir að-
gerð á mjöðm um miðjan síðasta
mánuð og þarf að taka það rólega á
næstunni. „Beinið í kringum
mjaðmarkúluna hafði
stækkað og taka þurfti af
því en einnig voru ein-
hverjar rifur í kringum
þetta svæði,“ út-
skýrði Ólafur
þegar Morgun-
blaðið hafði sam-
band við hann í
gær en nánar er
rætt við hann í
íþróttablaði dags-
ins. »1
Útvöxtur á beini háði
Ólafi í golfsveiflunni
„Verðlaunapeningar okkar fólks
á alþjóðlegum mótum eru marg-
ir á síðustu árum og þeim sem
stunda íþróttina fjölgar jafnt og
þétt. Það er bjart framundan í
kraftlyftingum hér á landi,“
segir Sigurjón Pétursson, for-
maður sambandsins og nýkjör-
inn varaforseti Alþjóðakraftlyft-
ingasambandsins. »4
Bjart framundan í
kraftlyftingunum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Síðustu tíu dagana má segja að við
Hilmar höfum búið saman. Við unn-
um bókstaflega myrkranna á milli
og ég svaf einhverjar nætur inni í
barnaherbergi heima hjá honum.
Svo vaknaði maður, drakk orku-
drykki og hringdi til að taka fleiri
viðtöl,“ segir Björn Bragi Arnarsson
um lokasprettinn í vinnu að bókinni
Áfram Ísland sem gefin var út í síð-
ustu viku. Í henni fara þeir Björn
Bragi og Hilmar Gunnarsson yfir
árangur íslenska karlalandsliðsins í
knattspyrnu í undankeppni EM.
Eins og flestir vita tryggði liðið
sér sæti sitt í lokakeppninni í
Frakklandi. Í bókinni eru viðtöl við
landsliðsmenn í bland við fróðleik og
umfjöllun um leiki liðsins í undan-
keppninni. Við skrif bókarinnar
nutu þeir Björn Bragi og Hilmar lið-
sinnis Einars Lövdahl. „Við vildum
hafa viðtölin tiltölulega fersk og
ekki taka þau nema við værum
nokkuð vissir um það hver örlög
liðsins yrðu,“ segir Björn Bragi.
Fyrir vikið upphófst mikil törn í
haust. „Þetta var ekkert leiðinleg
vinna þar sem maður er forfallinn
fótboltasjúklingur. Við tókum flest
viðtölin þegar þeir voru á landinu
fyrir Lettaleikinn, enda voru þeir
ekkert tilbúnir að vera með stórar
yfirlýsingar fyrr en sætið var
tryggt,“ segir Björn Bragi en leik-
urinn við Letta var 10. október.
Hann segir þó að vinnan hafi farið á
fullt eftir eftirminnilegan sigur á
Hollandi í Amsterdam 3. september.
Óttaðist líkingu við Björn Borg
Hann segir það hafa komið
skemmtilega á óvart hve leikmenn
voru tilbúnir að opna sig. Þar á með-
al tjáði Eiður Smári Guðjohnsen sig
um það þegar hann var án félags
haustið 2014 þegar undankeppnin
hófst. „Það var frábært að fylgjast
með liðinu og sjá hvernig það byrj-
aði keppnina. En auðvitað var það
líka erfitt þegar ég var sjálfur að
æfa einn, án þess að vita hvort ég
væri yfirhöfuð að fara að spila fót-
bolta aftur,“ segir í bókinni.
Í byrjun nóvember gekk Eiður
óvænt til liðs við Bolton, liðið sem
hann hafði leikið með 14 árum fyrr.
Hann fór vel af stað á Englandi og
fyrri hluta árs 2015 fékk hann upp-
hringingu frá Heimi Hallgrímssyni.
„Þjálfararnir voru á því að ég gæti
ennþá hjálpað liðinu mikið og að
nærvera mín hefði góð áhrif. Ég
hugsaði hvort þetta yrði eitthvað í
líkingu við endurkomu Björns Borg,
þegar hann mætti aftur að keppa
með gamla tréspaðann, en svo var
það nú ekki alveg þannig,“ segir
Eiður sem skoraði strax eftir 20.
mínútna leik í Kasakstan í fyrsta
leik sínum í undankeppninni.
„Er forfallinn fótboltasjúklingur“
Kíktu á bak við
tjöldin hjá íslenska
landsliðinu
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Áfram Ísland Björn Bragi Arnarsson og Hilmar Gunnarsson fagna útkomu bókarinnar.
Fagnað Ísland fagnar einu af mörkum sínum í undankeppninni.