Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
Guðrún Vala Elísdóttir
vala@simenntun.is
Mótorhjólafélagið Unknown Bi-
kers Iceland vakti athygli á Þjó-
ðahátíð sem haldin var í Borg-
arnesi í nóvember. Þar sáu félagar
í klúbbnum um að kynna Pólland
og buðu upp á smakk af pólskum
mat, m.a. bigos og zurek.
Unknown Bikers var upphaflega
stofnað í Bandaríkjunum árið 1974
af ungum karlmönnum sem voru
áhugamenn um mótorhjól. Með
tímanum breyttust áherslur og í
samtökunum eru núna reyndir
mótorhjólamenn með mikla
ástríðu fyrir mótorhjólum, að-
allega Harley, segja þeir fé-
lagarnir.
Klúbburinn er með marga anga
í Bandaríkjunum og hefur nú
teygt sig til annarra landa, m.a.
Puerto Rico, Póllands og nú síðast
til Íslands. Allir meðlimir félags-
ins búa á Íslandi, þó flestir séu
Pólverjar. ‚,Íslenski klúbburinn
var stofnaður árið 2014 af nokkr-
um vinum sem vilja hjóla og
hanga saman. Allir sem hafa
áhuga á og elska mótorhjól geta
gengið í klúbbinn óháð þjóðerni,
en þeir verða að vera góðir
menn,“ segir Marcin Kolenda,
einn meðlima.
Eru bara venjulegt fólk
,,Markmið Unknown Bikers er
að hvetja til jákvæðrar ímyndar af
mótórhjólaklúbbum, við viljum
ekki að fólk líti á okkur í skugga
af einhverri steríótýpu af mót-
orhjólagengi. Við viljum láta gott
af okkur leiða, styðja við pólska
menningu og eyða tíma með öðru
fólki sem elskar mótorhjól. Við er-
um bara venjulegt fólk, eigum
fjölskyldur og erum í vinnu bara
alveg eins og aðrir. En í frítíma
okkar hittumst við í klúbbnum því
það er ástríða okkar.“ Félagarnir
tóku sem fyrr segir þátt í Þjó-
ðahátíðinni í Borgarnesi, en þeir
höfðu komist að því að engir Pól-
verjar ætluðu að taka þátt. Dags
daglega eru félagarnir ekki með
neitt sérstakt á prjónunum en sem
félagsskapur vilja þeir gjarnan
taka þátt í eða skipuleggja sam-
komur svona eins og þjóðahátíð í
framtíðinni. ,,Um leið og slíkt
tækifæri gefst getum við kynnt
pólska menningu og hvernig mót-
orhjólaklúbbamenning er best.
Félagsskapurinn er sjálfstæður
og óháður og nýtur ekki stuðnings
annarra. ,,Við reynum að eiga og
viðhalda jákvæðum og vinsam-
legum samskiptum við aðra mót-
orhjólaklúbba hér á landi og tök-
um þátt í ýmsum uppákomum sem
aðrir klúbbar standa fyrir. Og við
vonumst til að verða þekktir á já-
kvæðum nótum í framtíðinni,“
segir Marcin að lokum.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Samhentir Félagarnir í klúbbnum á Þjóðahátíð í Borgarnesi nýlega. Frá vinstri: Damian Geriak, Marcin Kolenda,
Grazyna Dobrzynska, Marcin Dobrzynska, Arkadiusz Zarzycki, Linda Zarzycka og Tomasz Drapala.
Vilja láta gott af sér leiða
og styðja pólska menningu
Mótorhjólafélagið Unknown Bikers Iceland var stofnað
af nokkrum vinum Allir meðlimir félagsins búa á Íslandi
Varðskipið Þór kom nýlega við í
Færeyjum og bætti olíu á eldsneyt-
istankana. Íslensk skip hafa gjarn-
an tekið olíu í Færeyjum vegna
hagstæðara olíuverðs þar en hér.
Ásgrímur L. Ásgrímsson, fram-
kvæmdastjóri aðgerðasviðs Land-
helgisgæslunnar, sagði að þegar
varðskipin væru stödd á miðunum
suðaustan við landið væri stutt að
skjótast yfir til Færeyja.
Eldsneytisgeymar vs. Þórs rúma
um 1,2 milljónir lítra.
„Við tókum í kringum 800 þúsund
lítra í ágúst og fyrst við vorum
þarna á miðunum suðaustanlands
fórum við núna og tókum 300 þús-
und lítra,“ sagði Ásgrímur. Skipið
eyðir um 100 þúsund lítrum á mán-
uði að meðaltali þannig að fullir
eldsneytisgeymar duga til siglinga í
heilt ár.
Ásgrímur segir að Landhelgis-
gæslan efni til örútboða vegna
kaupa á olíu og taki lægsta tilboði.
Haft er samband við íslensku olíufé-
lögin og þau gera tilboð og olían er
síðan tekin hjá samstarfsaðilum
þeirra í Færeyjum samkvæmt hag-
stæðasta tilboði. gudni@mbl.is
Ljósmynd/Eyjafréttir
Vestmannaeyjar Varðskipið Þór kom í fyrsta sinn í íslenska höfn í Vest-
mannaeyjum. Fyrsta varðskip Íslendinga var Þór frá Vestmannaeyjum.
Skrapp til Fær-
eyja og tók olíu
Hagstæðari olíukaup fyrir varðskip
Samtök atvinnulífsins (SA) gagn-
rýna ummæli Gissurar Péturssonar,
framkvæmdastjóra Vinnumálastofn-
unar, um Atvinnuleysistrygginga-
sjóð í Morgunblaðinu í gær.
Varaði Gissur við því að lækkun
tryggingagjalds myndi hægja á
söfnun fjár í sjóðinn. Nú sé lag að
búa í haginn fyrir mögru árin. Eigið
fé sjóðsins dugi aðeins fyrir greiðslu
atvinnuleysisbóta í eitt ár.
SA rifja upp í tilkynningu að þau
hafi lagt til að atvinnutrygginga-
gjald yrði hækkað eftir hrun.
„Samtökin viðurkenndu þannig
ábyrgð atvinnulífsins við að standa
undir kostnaði við greiðslu atvinnu-
leysisbóta. Á sama hátt krefjast
samtökin þess nú að gjaldið verði
lækkað til samræmis við minnkandi
atvinnuleysi … Tryggingagjaldið er
nú miklu hærra en það þyrfti að vera
til að fjármagna bætur til þeirra sem
nú eru atvinnulausir eða verða það á
næstu árum. Í Morgunblaðinu í dag
kemur fram að eigið fé Atvinnuleys-
istryggingasjóðs verði rúmir 11
milljarðar um áramótin. Forstjóri
Vinnumálastofnunar lýsir því þar yf-
ir að honum finnist nauðsynlegt að
atvinnulífið greiði áfram hærra gjald
en þarf til að fjármagna bæturnar …
Samtök atvinnulífsins hafa lagt
áherslu á að aðilar á vinnumarkaði
taki yfir stjórn og rekstur atvinnu-
leysistrygginga og telja að með því
megi ná mun meiri skilvirkni, auknu
eftirliti og betri þjónustu við at-
vinnuleitendur en með núverandi
fyrirkomulag þar sem Vinnumála-
stofnun virðist mylja undir sig sífellt
stærri hluta framlags atvinnurek-
enda til greiðslu atvinnuleysisbóta
til eigin reksturs.“ baldura@mbl.is
Vinnumálastofnun
sögð soga til sín fé