Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 46
46 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015 Stafangri. AFP. | Gestir á veitinga- stöðunum kaupa freyðivín í stað kampavíns, fyrirtæki aflýsa jóla- veislum, atvinnuleysið eykst og fast- eignaverð lækkar: Stafangur, olíu- höfuðborg Noregs, fer ekki varhluta af timburmönnunum nú þegar verð á hráolíu hefur snarlækkað eftir að hafa verið hærra en nokkru sinni fyrr. „Þarna sérðu, enn ein höfnunin,“ sagði Roger Schurmeyer og hélt á einu af mörgum synjunarbréfum sem hann hefur fengið í leit sinni að atvinnu í Stafangri. Schurmeyer er 36 ára að aldri og starfaði fyrir Statoil á sviði hljóð- og myndmiðla þar til honum var sagt upp fyrir tæpu ári þegar ríkisfyrirtækið greip til sparnaðaraðgerða. „Ég hef unnið frá því að ég var sextán ára og aldrei verið atvinnulaus þar til nú. Þetta er skrýtin tilfinning,“ sagði hann í við- tali í íbúð sinni í bænum Sandnes, sunnan við Stafangur. „Ég hef heyrt af því að 300 eða 400 manns hafi sótt um sama starfið, þannig að þetta er erfiður markaður.“ Olíufyrirtæki draga saman seglin Atvinnuleysið í Stafangri mælist núna 4,1%, sem telst ekki mikið í öðrum löndum, en hefur aukist um rúm 80% á einu ári og er meira en í öðrum bæjarfélögum í Noregi. Meginástæðan er sú að olíuverðið hefur lækkað í 45 dali á fatið úr rúm- um 100 dölum frá því í byrjun síð- asta árs. Það hefur orðið til þess að fyrirtæki hafa dregið úr fjárfest- ingum sínum og fækkað starfs- mönnum. Stafangur var með rúmlega 52.000 íbúa árið 1960 en þeim snar- fjölgaði eftir árið 1969 þegar Norð- menn fundu olíulindir í Norðursjó. Íbúarnir eru nú um 130.000. Samdrátturinn í olíuvinnslunni hefur meðal annars orðið til þess að þremur þjónustuskipum hefur verið lagt og þau liggja við bryggju í jaðri borgarinnar. Flugfélagið SAS hefur hætt beinu áætlunarflugi milli Staf- angurs og bandarísku olíu- borgarinnar Houston í Texas. Telur að ástandið versni „Ég athuga verðið á olíu næstum því á hverjum degi,“ sagði Christine Sagen Vestbo, sem hefur verið borgarstjóri Stafangurs frá árinu 2011. Þegar hún tók við embættinu fólst helsta vandamálið í því að laða að nógu marga verkfræðinga til að ráða í öll störfin sem voru laus. Staf- angur var sú borg í Noregi þar sem markaðshlutdeild Porsche-bíla var hæst. Núna er það helsta úrlausnarefnið að halda þeim störfum sem eftir eru í olíuvinnslunni og stuðla að nýjum störfum í öðrum atvinnugreinum, þannig að borgin verði ekki eins háð olíuvinnslunni. „Ég held að ástandið versni á næsta ári,“ sagði Vestbo. „Við þurf- um að fjölga störfum í tæknigeir- anum almennt, í heilsugæslu, á sviði endurnýjanlegrar orku. Við getum notfært okkur tækniþekkinguna úr olíu- og gasvinnslunni til að reisa vindorkuver í sjó og á landi og hag- nýta sólarorkuna.“ Veitingastaðurinn Cafe de France, þar sem þriggja rétta máltíð kostar sem svarar 10.000 ísl. krón- um, hefur ekki farið varhluta af sam- drættinum. Jólaveislum fyrirtækja hefur fækkað og færri kaupsýslu- menn sækja staðinn. „Það verða allt- af gestir á vegum fyrirtækja en þau hafa strangari reglur núna um hve- nær viðskiptavinum þeirra er boðið á veitingastaði og við sjáum að fleiri fara frá borginni sama dag og þeir koma í stað þess að gista yfir nótt og snæða kvöldverð hérna,“ sagði eig- andi veitingastaðarins, Emil Heim- dal. „Nú er minna drukkið af kampa- víni en meira af Cremant de Bourgogne eða öðru freyðivíni. Fólk lifði líklega í of miklum vellystingum áður.“ Of fáir kaupendur Samdráttur hefur einnig orðið á fasteignamarkaðnum. Meðal- fermetraverðið var hærra í Staf- angri en í Ósló þar til nýlega. Verðið fer nú lækkandi í olíuborginni og miklu lengri tíma tekur að selja hús- in, að sögn Jans Georgs Bybergs, sem rekur fasteignasölu í Stafangri. „Við höfum of marga sem vilja selja og of fáa kaupendur,“ sagði hann. „Breytingin felst líka í því að við- skiptavinir okkar selja áður en þeir kaupa. Hugarfar þeirra hefur breyst og þeir hafa áhyggjur af því hvort þeir fái nógu mikið fyrir húsið sitt.“ Schurmeyer kveðst ekki vera orð- inn úrkula vonar um að hann finni atvinnu. Hann segist þó ætla að „stækka leitarsvæðið“ og leita að störfum í fleiri atvinnugreinum en áður. „Menn breytast þegar þeir hafa verið atvinnulausir í ellefu mán- uði. Ég sakna þess að hafa vinnu.“ Kreppir að olíuhöfuðborginni  Aukið atvinnuleysi í Stafangri vegna sparnaðaraðgerða olíufyrirtækja  Fasteignaverð lækkar og veitingastaðir fara ekki varhluta af samdrættinum  „Fólk lifði líklega í of miklum vellystingum“ AFP Olíuævintýrinu lokið? Kona sýnir barni eftirlíkingu af olíuborpöllum á Olíusafninu í norsku borginni Stafangri. Atvinnulaus Roger Schurmeyer hefur verið án vinnu í ellefu mánuði. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stjórnvöld í Rússlandi sökuðu í gær Tayyip Recep Erdogan, forseta Tyrklands, og fjölskyldu hans um aðild að smygli á olíu frá yfirráða- svæðum Ríkis íslams, samtaka ísl- amista, í Sýrlandi og Írak. Erdogan sagði ekkert hæft í þessari ásökun og lýsti henni sem rógburði. Mikil spenna hefur verið í sam- skiptum Tyrkja og Rússa frá því að tyrknesk herflugvél skaut niður rússneska herþotu við landamæri Sýrlands og Tyrklands 24. nóvem- ber. Tyrkir segja að rússneska þotan hafi farið inn í lofthelgi Tyrklands en Rússar neita því og hafa gripið til efnahagslegra refsiaðgerða gegn landinu vegna málsins. Anatolí Antonov, aðstoðarvarnar- málaráðherra Rússlands, sagði á blaðamannafundi í Moskvu í gær að Tyrkir keyptu megnið af þeirri olíu sem smyglað væri frá yfirráðasvæð- um samtaka íslamistanna. „Sam- kvæmt þeim upplýsingum sem við höfum eru æðstu embættismenn landsins, Erdogan forseti og fjöl- skylda hans, viðriðnir þessa glæpa- starfsemi,“ sagði aðstoðarvarnar- málaráðherrann. Hann ýjaði einnig að því að olíusmyglið tengdist tengdasyni Erdogans, Berat Albay- rak, sem var skipaður olíumálaráð- herra nýlega, og syni forsetans sem Antonov sagði stjórna einu af stærstu orkufyrirtækjum Tyrk- lands. Rússneska varnarmálaráðuneytið telur að tekjur samtaka íslamistanna af olíusmyglinu nemi jafnvirði rúmra 260 milljarða króna á ári. Áður hafði Erdogan neitað því að tyrknesk stjórnvöld tengdust olíusmyglinu og sagt að hann myndi segja af sér ef ásakanirnar reyndust réttar. Bendla Erdogan við olíusmyglið  Rússar þjarma að forseta Tyrklands AFP Neitar ásökun Erdogan á loftslags- ráðstefnunni í París á mánudag. Söluaðilar: Reykjavík: Gilbert úrsmiður, Laugavegi 62 | Gullúrið, Mjódd | GÞ skartgripir og úr, Bankastræti 12 | Meba, Kringlunni Meba-Rhodium, Smáralind | Michelsen Úrsmiðir, Kringlunni | Rhodium, Kringlunni | Jón Sigmundsson skartgripaverslun, Laugavegi 5 | Úra- og skartgripaverslun Heide, Glæsibæ | Hafnarfjörður: Úr og Gull, Firði | Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður, Hafnargötu 49 | Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður, Glerártorgi | Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður, Suðurgötu 65 | Egilsstaðir: Klassík, Selási 1 | Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður, Austurvegi 11 | Vestmannaeyjar: Geisli, Hilmisgötu 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.