Morgunblaðið - 03.12.2015, Page 16

Morgunblaðið - 03.12.2015, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015 Glæsilegur kvenfatnaður & fylgihlutir Kringlunni 4c – Sími 568 4900 Fylgist með okkur á faceboock Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Við horfum fram á hallarekstur í ár og það verður erfitt að ná saman óbreyttum rekstri á næsta ári miðað við það sem fyrir liggur í frumvarpi til fjárlaga,“ segir Bjarni Jónasson, for- stjóri Sjúkrahússins á Akureyri, spurður um horfur í rekstri sjúkra- hússins á næsta ári. Bjarni líkt og fleiri stjórnendur heilbrigðisstofnana í landinu bíður spenntur eftir því hvað gerist í 2. um- ræðu um fjárlagafrumvarpið fyrir ár- ið 2016. Fram hefur komið í máli stjórnenda Landspítalans og fleiri stofnana að framlög í frumvarpinu dugi ekki að óbreyttu til rekstrarins á næsta ári. Sjúkrahúsið á Akureyri er næststærsta heilbrigðisstofnun landsins. Aukin aðsókn Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir ríflega 6,2 milljörðum króna til sjúkrahússins á næsta ári en Bjarni telur ljóst að í almennan rekstur þurfi að minnsta kosti um 110 milljónir króna til viðbótar. Launakostnaður er um 70% af rekstrinum en Bjarni segir enn óljóst hve mikið fjármagn fylgir framlögum eftir nýgerða kjara- samninga. Reiknar hann með að þeir verði að fullu fjármagnaðir. Það eru ekki bara kjarasamningar sem kalla á aukið fé. Bjarni segir aukna aðsókn á sjúkrahúsið þýða aukin verkefni, einkum á bráðamót- töku og stóru bráðalegudeildinni og aukning hafi jafnframt orðið í göngu- deildarþjónustu. „Meginskýringin er sú að sjúkling- ar eru að koma annars staðar frá í auknum mæli, ekki bara héðan af Eyjafjarðarsvæðinu. Breyting hefur orðið á rekstri smærri sjúkrahúsa í kringum okkur og það hefur áhrif, fólk leitar meira til okkar. Aldur fólks fer einnig hækkandi og það kallar á aukna þjónustu og meiri mannafla. Annar rekstrarkostnaður eykst, eins og lyf, lækningavörur og rannsókna- vörur. Fólk gerir einnig meiri kröfur en áður um heilbrigðisþjónustu,“ seg- ir Bjarni. Hann segir stjórnendur sjúkra- hússins hafa ítrekað komið áhyggjum sínum á framfæri við heilbrigðisráð- herra, fjárlaganefnd, þingmenn og fleiri sem málið varðar. 600 starfsmenn – 460 stöðugildi „Það er sífelld umræða í gangi. Við bíðum spennt eftir að sjá hvað gerist í 2. umræðu fjárlaga. Við vonumst að sjálfsögðu til þess að komið verði til móts við okkur.“ Aðspurður segist Bjarni búast við einhverjum halla í rekstri þessa árs en vonandi ekki miklum. Komist hafi verið hjá því að skera niður þjónustu eða fækka starfsfólki. Stöðugildi á sjúkrahúsinu eru um 460 í dag, tíu fleiri en í fyrra, og starfsmenn um 600 talsins. „Starfsmenn eru eitthvað fleiri en á síðasta ári, enda hefur verkefnum fjölgað eins og ég kom inná áðan. Sér- hæfingin er orðin meiri og það kallar á annan aðbúnað en þann sem er fyrir hendi á smærri stofnunum,“ segir Bjarni að endingu. Þurfa 110 milljónir til viðbótar  Sjúkrahúsið á Akureyri þarf meira fé af fjárlögum í reksturinn  6,2 milljarðar króna duga ekki til  Launakostnaður um 70% af rekstrinum  Meira álag á bráðamóttöku og göngudeildarþjónustu Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fjárlög Sjúkrahúsið á Akureyri er næststærsta heilbrigðisstofnun landsins. „Það verður erfitt að ná saman óbreyttum rekstri á næsta ári.“ Bjarni Jónasson „Það er sérstaklega gaman að ná þessum árangri á heimavelli Þjóð- verja,“ segir Guðmundur Mar Magn- ússon, bruggmeistari hjá Ölgerð- inni, en bjórinn Boli fékk silfurverðlaun í flokknum „German Style Festbier“ á alþjóðlegu bjórsýn- ingunni European Beer Star sem fram fór í nóvember. Pfaffenhofen fékk gullverðlaun og Kaufbeuren fékk bronsið en báðir eru þeir bruggaðir í Þýskalandi. Um 2000 bjórtegundir frá 45 lönd- um kepptu á hátíðinni sem er mjög virt í heiminum en 23 brugghús unnu til verðlauna, meðal annars OUD beersel frá Belgíu, Firestone Walker, Boston Beer Company og Left Hand Brewing Company sem koma frá Bandaríkjunum og Aegir Bryggeri frá Noregi. Guðmundur segir að verðlaunin séu fyrst og fremst alþjóðleg við- urkenning á gæðum. „Það skemmir auðvitað ekki að fá viðurkenninguna frá Þýskalandi þar sem bjórstíll Bola er þýskur í grunninn og flokkast sem Festbier eða Marzen, og á ættir sínar að rekja til Októberfest- hátíðar.“ Hann segir að sérstaða Bola sé að í hann sé notað að hluta ómaltað íslenskt bygg. Salan á Bola hefur rúmlega tvö- faldast undanfarin tvö ár. „Við áætl- um að klára árið í rúmlega 650 þús- und lítrum sem jafngildir um 2 milljónum flaskna á árinu,“ bætir hann við. Hann segir framleiðsluferli Bola vera mun lengra en á hinum hefð- bundnu ljósu lagerbjórum. „Gæðin eru meðal annars fólgin í framleiðsluferlinu. Bjórinn er það sem kallað er tvímeskjaður og svo gerjaður í lengri tíma við lægra hita- stig en flestar aðrar bjórtegundir. Það tekur okkur því um mánuð að framleiða hverja lotu af bjórnum.“ benedikt@mbl.is Þýskt silfur í bjórkeppni  Boli verðlaunaður í Þýskalandi Silfur Guðmundur Mar Magnússon, bruggmeistari hjá Ölgerðinni. Tíð var lengst af hagstæð í nóv- embermánuði, að því er fram kemur í yfirliti Trausta Jóns- sonar, veðurfræðings, á heima- síðu Veðurstofunnar. Skamm- vinnt kuldakast gerði í kringum þann 20. og aftur var kalt í lok mánaðarins. Þá snjóaði óvenju- mikið á höfuðborgarsvæðinu. Meðalhiti í Reykjavík var 1,8 stig, 0,7 stigum ofan meðallagsins 1961 til 1990, en -0,8 stigum und- ir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn 0,9 stig, 1,6 stigum ofan meðallags 1961 til 1990 og 0,2 ofan meðal- lags síðustu tíu ára. Mjög þurrt var norðanlands langt fram eftir mánuðinum og sérlega úrkomu- samt um landið sunnanvert. Nokkuð skipti um eftir miðjan mánuð. Úrkoma í Reykjavík mældist 129,0 mm og er það 77 prósent umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Þetta er mesta úrkoma í nóvember í Reykjavík síðan 1993, en þá var hún reyndar tvöföld á við það sem nú var. Á Akureyri mældist úrkoman 73,5 mm, um 35 prósent umfram meðallag. Hæsti hiti mánaðarins mældist á Hornbjargsvita þann 22., 12,8 stig. Hæsti hiti á mannaðri stöð mældist á Sauðanesvita sama dag, 11,7 stig. Mest frost í mán- uðinum mældist á Brúarjökli þann 29., -23,1 stig. Mest frost í byggð mældist á Grímsstöðum á Fjöllum og við Mývatn þann 20., -19,1 stig. Sólskinsstundir mældust 42,3 í Reykjavík, 3,7 umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 25,5, 11,2 fleiri en í meðalári. Í nóv- ember hafa sólskinsstundir mælst flestar 30,9, það var árið 1937. Tíð var lengst af hagstæð í nóvembermánuði, en hiti í mánuðinum var þó undir meðallagi síðustu 10 ára Ekki meiri úrkoma í mánuð- inum í Reykjavík frá 1993 Morgunblaðið/Eggert Úrkoma Haustið hefur verið vætusamt og regnhlífar oft verið þarfaþing.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.