Morgunblaðið - 03.12.2015, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Útsöluaðilar: Útilíf Kringlunni – Smáralind – Glæsibæ I Debenhams I Englabörn
Intersport - Bíldshöfða - Akureyri - Selfossi I barnaheimar.is I Leiksport I Músik & Sport
K Sport Keflavík I Nína Akranesi I Sportver Akureyri I Toppmenn og Sport Akureyri
Borgarsport Borgarnesi I Hafnarbúðin Ísafirði I Siglósport Siglufirði I Sentrum Egilsstaðir
Sportbær Selfossi I Pex Reyðarfirði I Axel Ó Vestmannaeyjum I Efnalaug Vopnafirði
Verið getur að auglýstar vörur séu ekki til hjá útsöluaðila. Umboðsaðili: DanSport ehf.
fatnaður
Fótboltabuxur
Gjöf sem hittir í mark
Hummel
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Frá barnæsku hef ég verið safnari í
eðli mínu en þessum hlutum hef ég
mest safnað síðan ég hætti á sjónum
um sextugt. Þessi iðja hefur alveg
bjargað lífi mínu,“ segir Friðrik Frið-
riksson, fyrrverandi bátsmaður hjá
Eimskip, sem lumar á myndarlegu
sjóminjasafni heima hjá sér í Vest-
urbænum. Má með sanni segja að við
þeim sem heimsækja Friðrik blasi lít-
ill ævintýraheimur.
Einna fyrirferðarmest eru skips-
líkönin sem Friðrik hefur dundað sér
við að smíða; skútur, seglskip, varð-
skip, fiskibátar, kafbátar, olíuskip,
togarar og fraktskip, m.a. líkön af
Gullfossi, Dettifossi, Lagarfossi, Brú-
arfossi og Goðafossi, fyrsta varðskipi
Íslendinga, Þór, Herjólfi fyrsta, Jóni
forseta, gömlu Sæbjörginni, Súðinni
og fleiri nafntoguðum fleyjum. Á
sumum þeirra sigldi Friðrik um æv-
ina og hefur því sterkar taugar til
þeirra. Þá áskotnuðust honum ýmsir
innanstokksmunir úr varðskipinu
Þór, m.a. rúm og snyrtiborð úr for-
setaíbúðinni svonefndu.
Stofan og borðstofan „sleppa“
Friðriki var bannað að fara meira
til sjós eftir að hafa fengið hjartaáfall,
sextugur að aldri. Síðan eru liðin 18
ár og á þeim tíma segir hann gripina
hafa tínst til öðru hvoru. Fyrir átti
hann ýmsa muni frá föður sínum og
afa, auk þess sem hann sankaði að sér
hinu og þessu í fraktsiglingunum til
fjölda ára.
„Ég hlýddi nú læknunum ekki al-
veg í fyrstu og laumaðist á sjóinn með
Sæbjörginni hjá Slysavarnaskóla sjó-
manna. Síðan fór ég alfarið í land og
fór að dunda mér við þetta,“ segir
hann en Friðrik varð ekkjumaður í
sumar þegar eiginkona hans, Esther
Helga Pálsdóttir, lést. „Hún gaf mér
leyfi til að vera með alla þessa muni í
íbúðinni, hún var það mikill sjómaður
í eðli sínu að hún hafði bara gaman af
þessu. Ég hef alltaf séð um að þrífa
gripina sjálfur og passa upp á þá.
Hún tók af mér loforð um að halda
stofunni og borðstofunni frá þessu og
ég ætla að efna það,“ segir Friðrik.
Má ekki enda ofan í geymslu
„Það koma oft til mín í heimsókn
gamlir félagar af sjónum sem hafa
mikið yndi af því að skoða safnið.
Einnig hafa komið hér hópar í óvissu-
ferðir og fengið að fræðast um grip-
ina. Menn hafa verið að gauka að mér
hlutum sem þeir eiga og telja betur
geymda hjá mér en ofan í kjallara eða
úti í bílskúr. Ég vil miklu frekar geta
tekið á móti fólki heldur en að senda
munina frá mér sem enda svo ofan í
einhverri geymslu,“ segir Friðrik
sem gerir dálítið af því að gefa muni
ef hann hefur vissu fyrir því að farið
sé vel með þá og þeir séu einhvers
staðar hafðir til sýnis.
Friðrik vonast til þess að munirnir
fái verðugan sess eftir sinn dag, en
ýmsir aðilar hafa sýnt áhuga að fá
muni til sín, eins og Eimskip,
Byggðasafnið í Garði og Hrafnista.
Friðrik gerir töluvert af því að
gera við skipslíkön sem aðrir eiga.
„Stór partur af deginum fer í að
smíða líkön og laga, ætli fari ekki í
þetta einir þrír eða fjórir tímar á dag.
Ég hef mjög gaman af þessu, að sitja
og tálga og litlu hlutina er skemmti-
legast að gera,“ bætir hann við.
Varðandi skipslíkönin segir hann
að starfsmenn Eimskips hafi verið
ötulir við að hjálpa sér með teikn-
ingar af gömlum skipum. Eina slíka
er hann kominn með útbreidda á
borðstofuborðinu. Næsta verkefni
hans er að smíða Álafoss, sem Friðrik
sigldi lengi með hjá Eimskip.
Hjálmar úr öllum áttum
Það eru ekki bara skipslíkön sem
hann hefur smíðað, einnig má finna
Garðskagavitann, þann yngri, sem er
mikil völundarsmíð. Í yfirbyggðu
svalaskýli blikka ljósin á vitanunm,
innan um nokkur skipslíkön.
Friðrik er greinilega laghentur
maður. Hann hefur smíðað borð og
stóla úr gripum tengdum sjónum,
eins og tunnum og stýrum, og í einu
horninu er heimasmíðaður bar úr
rauðvínstunnum úr Brúarfossi, hífð-
ur upp á blökkum. „Þessi er lítið not-
aður nú orðið,“ segir hann brosandi.
Á heimili Friðriks má að auki sjá
margt annað en líkön. Má þar m.a.
nefna skipsbjöllur, klukkur, vélsíma,
luktir, baujur, björgunarhringi, stýri,
sjónauka, byssur, gamlan kafarabún-
ing og ótal margt fleira. Á nokkrum
hillum er hann með úrval herhjálma
úr flestum heimshornum, flesta úr
seinni heimsstyrjöldinni, og engir
tveir eru eins. Þarna er líka hjálmur
sem faðir hans, Friðrik Einarsson,
bar í heimavarnarliðinu. Þá fékk
hann sendan breskan lögregluhjálm
frá Humberside og meðal fleiri dýr-
gripa er fálkaorða með kórónu, frá
því fyrir 1944, sem Friðrik keypti í
Þýskalandi.
Enn fleiri muni geymir hann í
kössum og skápum og eru ekki sýni-
legir. „Ég hef ekki lengur tölu á
þessu öllu saman,“ segir hann, þegar
blaðamaður spyr hve margir munir
séu á heimilinu. Hann kann söguna á
bakvið hvern einasta grip og er haf-
sjór fróðleiks. „Ég hef ekki haldið
neina skrá um þetta, hef bara ekki
haft tíma í það en kannski vissara að
fara að huga að því á meðan eitthvert
minni er til staðar,“ segir hann að
endingu og brosir breitt.
Dettifoss Friðrik hefur smíðað tvö eintök af þessu fraktskipi. Fornfrægt Gamli Gullfoss er meðal stærstu líkana í safninu. Stríðsminjar Dettifoss og kafbátur sem sökkti skipinu 1945.
Bátsmaður með eigið minjasafn
Heimili Friðriks Friðrikssonar hefur breyst í lítið sjóminjasafn Smíðar skipslíkön og safnar að
sér ýmsum gripum tengdum sjómennsku og fraktsiglingum „Hefur alveg bjargað lífi mínu“
Ljósmyndir/Jón Páll Ásgeirsson
Safnari Friðrik Friðriksson við eitt stærsta líkanið sem hann hefur smíðað, seglskip sem hann bjó til sjálfur og án
teikninga eða fyrirmyndar. Hér sést í fleiri líkön og fyrir aftan hann er hluti herhjálmasafnsins.
Seglskip Garðskagavitinn, sem Friðrik smíðaði, innan um líkön af segl-
skipum sem hann bjó til eða gerði við. Hvert sem litið er blasa skipin við.
Fyrir utan
safngripina
ber heimili
Friðriks þess
merki að
hann er vel
sigldur. Hann
er ekki bara
fyrrverandi
bátsmaður
heldur einnig
riddari. Á
einum veggnum er skjal frá 1965
þegar Karl Einarsson Dunganon,
hertoginn af St. Kildu, sló Friðrik
og félaga hans til riddara í Kaup-
mannahöfn. „Ég þekkti Dung-
anon vel, hann kom oft um borð í
Gullfoss og borðaði hjá okkur,“
segir Friðrik, sem lumar á ýmsu
úr fórum þessa fræga lífskúnst-
ners.
Riddaratign
frá Dunganon
FRIÐRIK VEL SIGLDUR
Karl Einarsson
Dunganon
Vopn Haglabyssuna hægra megin á veggnum átti afi Friðriks en byssan er
belgísk og talið að hún hafi verið smíðuð á árunum 1850-1860.