Morgunblaðið - 03.12.2015, Qupperneq 32
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Við erum sannfærðir um að það sé rétt að taka
þetta stökk og veðja á ofurkælinguna á laxinum
og viðskiptavinir okkar í Bandaríkjunum eru
með okkur í ráðum,“ segir Víkingur Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Arnarlax á Bíldudal. „Í
stóra samhenginu erum við mjög lítið peð á
markaðnum og með auknu geymsluþoli, meiri
líftíma og góðri meðhöndlun sköpum við okkur
jákvæða sérstöðu á markaðnum.“
Í janúar verður fyrsta laxinum úr kvíunum
við Haganes slátrað í nýju sláturhúsi Arnarlax
á Bíldudal. Þar er unnið hörðum höndum við að
koma upp nútímalegu frystihúsi þar sem áður
var eldri, hefðbundin fiskvinnsla. Tæki frá
Marel, 3X, Baader og fleiri fyrirtækjum verða
komin á sinn stað þegar að slátrun kemur.
Laxinum dælt lifandi í land
Einnig er reiknað með að nýr brunnbátur
verði keyptur á næstunni og hann verði kominn
í gagnið þegar slátrun hefst. Laxinum verður
þá dælt úr kvíunum í sjó í lestum bátsins, sem
flytur hann lifandi að landi.
Þaðan verður laxinum dælt í gegnum stórt
rör inn í húsið þar sem slátrun fer fram. Að lok-
inni pökkun verður fiskurinn fluttur landleiðina
í flug frá Keflavík eða sjóleiðis til viðskiptavina
erlendis.
Nú starfa um 20 manns hjá Arnarlaxi á
Bíldudal og í seiðaeldisstöðinni á Gileyri í
Tálknafirði. Víkingur reiknar með að 10-12
manns bætist við er kemur að slátrun og
brunnbáturinn verður kominn til landsins.
Áætlað er að slátra um 3.300 tonnum af laxi á
næsta ári og dreifist slátrun á flestar vikur árs-
ins.
Fjórða hver flugvél flytur ís og krapa
„Fyrst í stað fer laxinn frá okkur til Banda-
ríkjanna, en við horfum líka til Asíu og fleiri
markaða,“ segir Víkingur. „Það verður algjör
bylting að þurfa ekki að flytja ís og krapa langar
leiðir til að kæla fiskinn og lækkar flutnings-
kostnað gífurlega. Fróður maður sagði mér að
nú mætti líkja þessu við að fjórða hver flugvél
sem flygi með lax til Asíu flytti eingöngu ís.
Við horfum á þessa keðju sem eina heild, frá
eldi, slátrun og pökkun alla leið til neytandans
og það er mikið ímyndarmál að gæðin séu í há-
vegum höfð alla leiðina. Þar skiptir ofurkæl-
ingin miklu máli til að tryggja ferskleika og
gæði alla leið til neytandans erlendis. Við vænt-
um þess að þessi sérstaða tryggi okkur betra
verð og gefi íslenska laxinum okkar sérstöðu
sem hágæða hráefni á kröfuhörðustu mörk-
uðum fyrir lax.
Fyrirhugað var að hefja slátrun nú í byrjun
desember, en vegna framkvæmdanna ákváðum
við meðal annars að seinka henni aðeins. Haust-
ið er líka gott í sjónum fyrir vestan og vöxtur
laxins var fínn í haust. Við erum því komin með
mjög góðan fisk og í safninu eru núna um 10%
af 7-8 kílóa fiski. Svo stór fiskur hentar vel þeim
mörkuðum sem við ætlum að selja inn á.“
Frekari fjárfestingar handan við hornið
Fyrsta kynslóð eldislax hjá Arnarlaxi er í kví-
unum við Haganes, tilbúin til slátrunar en þar
voru seiði sett í sjó 2014, önnur kynslóð er í kví-
um við Tjaldanes og sú þriðja í seiðaeldinu á Gi-
leyri.
Fyrirtækið bíður eftir leyfi fyrir eldi á 10 þús-
und tonnum á laxi árlega, en núgildandi leyfi er
fyrir 3.400 tonnum. Þær framkvæmdir sem nú
standa yfir eru kostnaðarsamar, en enn meiri
fjárfestingar bíða þess að frekara leyfi verði
gefið út sem gert er ráð fyrir að verði í byrjun
árs 2016.
Arnarlax veðjar á ofurkælingu
Viðskiptavinir frá Bandaríkjunum með í ráðum Aukinn líftími og bætt meðhöndlun skapar já-
kvæða sérstöðu Fyrsta laxaslátrun á Bíldudal í janúar Reiknað með nýjum brunnbáti á næstunni
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Á Bíldudal Víkingur Gunnarsson fyrir framan þjónustubátinn Garðar Jörundsson BA.
Málmey SK, skip FISK Seafood á Sauð-
árkróki, hóf róðra í febrúar með búnað til
ofurkælingar um borð. Vel hefur gengið
og stöðugt betur eftir því sem á hefur lið-
ið. Í nýliðnum nóvember landaði togarinn
fimm sinnum, alls 912 tonnum af slægð-
um fiski. Allur þessi afli var kældur um
borð án þess að ís eða krapi kæmu þar
nærri.
Góður gangur í
Málmey SK
912 TONN Í NÓVEMBER
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Osta fondue-veisla
Komdu þínum á óvart
4.990,-ámann
bóka þarffyrirfram
Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is
Laxeldisfyrirtækið Arnarlax á Bíldudal hefur, fyrst
laxeldisfyrirtækja, fest kaup á vinnslubúnaði frá 3X
Technology á Ísafirði og Skaganum á Akranesi. Bún-
aðurinn undirkælir meðal annars afurðir fyrirtæk-
isins, lengir líftíma afurða og tryggir betri og jafnari
vinnslu. Vel er fylgst með rannsóknum á ofurkælingu
á fiski og ekki síður reynslu sem fengist hefur um
borð í togaranum Málmey frá Sauðárkróki. Norsk
laxeldisfyrirtæki eru áhugasöm um framvinduna, en
laxeldi er stór atvinnugrein í Noregi.
Albert Högnason, þróunarstjóri 3x, og Gunnar
Þórðarson, útibússtjóri hjá Matís á Ísafirði, gerðu í
síðustu viku tilraunir með ofurkælingu á tíu tonnum
af laxi hjá Greig Seafood í Alta í Norður-Noregi. Þeir
fylgdu síðan fiskinum sem var fluttur til áframvinnslu
hjá Hätälä í Oulu í Finnlandi og Norway Seafood í
Gardaa í Danmörku.
Við ofurkælingu er laxinn kældur niður í -1,5°C sem
tryggir mikla kæliorku án þess að kristallar myndist
við kælingu sem skemmt geta prótein, en frostmark
laxins er við 2,2 gráður. Samkvæmt upplýsingum frá
Gunnari hélt ofurkældi fiskurinn mínus 1½ gráðu alla
leið á áfangastað og eftir sex daga í 250 kílóa körum
hafði hitastigið ekki hreyfst.
Þá voru nýlega þrír 30 lítra frauðplastkassar af
ofurkældum íslausum laxi fluttir með flugi til Tokyo
frá Alta í gegnum Ósló. Laxinn skilaði sér á nákvæm-
lega sama hitastigi og þegar hann lagði af stað,
-1,5°C. Í flutningum heimsálfa á milli sparar ofurkæl-
ing mikla fjármuni þar sem enginn ís er með í för og
umhverfisáhrif því mjög jákvæð. Gerðar hafi verið líf-
tímarannsóknir á laxi og eftir 16 daga hafi ísfiskurinn
verið orðinn skemmdur, en sá ofurkældi dugði í 25
daga, samkvæmt upplýsingum Gunnars. Aukinn líf-
tími skipti gífurlega miklu máli.
„Þetta leit allt mjög vel út og ofurkælingin gæti
orðið næsti tæknihvellur,“ segir Albert. Ávinning-
urinn felst í minna álagi á samgöngutæki þar sem
ekki þarf að flytja ís á milli landshluta, svo ekki sé tal-
að um heimsálfur. Þá fæst aukin nýting úr hráefni
sem kælt er með þessum hætti. Albert segir að hann
verði var við það í Noregi og víðar að þrýst sé á fyr-
irtæki sem slátra laxi að þau komi sér upp búnaði til
ofurkælingar. aij@mbl.is
Aðferðin „gæti orðið
næsti tæknihvellur“
Norsk laxeldisfyrirtæki eru áhugasöm um framvinduna
Nákvæmni Hitastigið var óbreytt þegar komið var til
Oulu í Finnlandi, Matti Isohätälä og Albert Högnason.
Tilraun Gunnar Þórðarson við mælingar á laxi í Alta þar
sem gerð var tilraun með ofurkælingu á tíu tonnum.
Búnaðurinn fyrir ofurkælingu í laxavinnslunni hjá Arnarlaxi á Bíldudal
samanstendur af blæðingartanki annars vegar sem tryggir fullkomna og
jafna blæðingu og kælitanki hins vegar sem ofurkælir hratt og vel. Til að
vinna tíma hefst kæling þegar í blæðingartankinum. Vinna við verkefnið
er nú í fullum gangi á Ísafirði, en einnig er hluti verkefnisins unninn hjá
Skaganum á Akranesi.
3x er með annað stórt verkefni í gangi, sem er ný fiskvinnsla Bakka-
frosts í Runavik í Færeyjum, í samvinnu við Marel. Unnið er um kvöld og
helgar hjá 3x til að anna þeim verkefnum sem eru í gangi.
Nóg að gera hjá 3X á Ísafirði
TVEIR TANKAR FYRIR BLÆÐINGU OG KÆLINGU
Mikill munur Bæði flökin hafa verið kæld í átta daga, það til vinstri með ofurkælingu