Morgunblaðið - 03.12.2015, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Útsvar verður 14,48% af útsvars-
stofni á næsta ári á Akureyri eins og
í ár. Það er leyfilegt hámark. Tillaga
þess efnis var samþykkt með öllum
atkvæðum í bæjarstjórn.
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verð-
ur opnað í dag, í fyrsta skipti í vetur.
Opið verður frá kl. 18 til 21, á morg-
un frá kl. 16-19 og um helgina verður
opið báða dagana frá kl. 10 til 16.
Mikið hefur snjóað í Eyjafirði
síðustu daga, bæði af himnum ofan
og úr þar til gerðum byssum, og
flestar skíðaleiðir í Hlíðarfjalli til-
búnar. Skíðasvæðið verður opið frá
fimmtudegi til sunnudags til jóla.
Fullveldis Íslands var minnst í
Háskólanum á Akureyri 1. desem-
ber að vanda, nú með málþingi sem
tileinkað var mannréttindum, lögum
og stjórnarskrá. Íslandsklukkunni
var síðan hringt, sem einnig er siður
á þessum degi. Það gerði nú Sabrina
Rosazza, nemandi við Mennta-
skólann á Akureyri.
Eyjólfur Guðmundsson rektor
sagði gjarnan horft til baka á þess-
um degi en nú vildi skólinn hleypa
unga fólkinu að. Heimurinn væri sí-
fellt að minnka og táknrænt að Sab-
ina hringdi klukkunni; hún væri
fædd í Suður-Ameríku, alin upp þar
og á Íslandi, hefði lært um tíma í
Svíþjóð og stundaði nú nám sitt á
Akureyri.
Úthlutað var í þrettánda sinn úr
Háskólasjóði KEA á fullveldisdag-
inn, alls fjórum og hálfri milljón
króna. Veittir voru tólf rannsókn-
arstyrkir en 22 umsóknir bárust
sjóðnum. „Góður háskóli verður ekki
að veruleika öðruvísi en með metn-
aðarfullu rannsóknarstarfi. Af um-
sóknum sem berast Háskólasjóði
KEA má dæma að það er metnaður í
rannsóknarstarfi skólans,“ sagði
Halldór Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri KEA, m.a. við úthlutunina.
Eyþór Gylfason hlaut 1. verðlaun
í ritlistasamkeppninni Ungskáld
2015 fyrir söguna Lést samstundis.
Tilgangur samkeppninnar, sem er
fyrir ungmenni á aldrinum 16-25
ára, er að hvetja þau til að iðka ritlist
og draga fram í dagsljósið það sem
þeim liggur á brjósti. Eyþór er ein-
mitt 25 ára. Alls bárust 48 verk í
samkeppnina.
Margrét Guðbrandsdóttir hlaut
2. verðlaun fyrir ljóðið Samið og 3.
verðlaun hlaut Antonía Sigurðar-
dóttir fyrir ljóðið Tíminn. Peninga-
verðlaun voru veitt fyrir efstu þrjú
sætin, bókaverðlaun frá menningar-
félaginu Hrauni og verðlaunaverkin
verða gefin út af Skáldahúsunum á
Akureyri.
Þetta er í þriðja skipti sem verk-
efnið er skipulagt en það er sam-
vinnuverkefni Ungmennahússins í
Rósenborg, Amtsbókasafnsins, Ak-
ureyrarstofu, framhaldsskólanna
tveggja í bænum, MA og VMA, og í
góðri samvinnu við Framhaldsskól-
ann á Húsavík, menningarfélagið
Hraun og Skáldahúsin á Akureyri.
Uppbyggingarsjóður Norðurlands
eystra styrkir verkefnið.
KEA veitti á dögunum 35 styrki úr
Menningar- og viðurkenningarsjóði,
alls rúmlega sex og hálfa milljón kr.
Tólf hlutu almenna styrki, hvern að
fjárhæð 150 þúsund krónur. Til
ungra afreksmanna voru veittir tólf
styrkir, samtals 1,8 milljónir króna.
Til þátttökuverkefna var úthlutað
1,4 milljónum króna og hlutu fjórir
slíkan styrk. Sjö íþróttastyrkir voru
veittir, samtals 1,51 milljón kr.
Hæstu styrki hlutu Aflið – sam-
tök gegn heimilis- og kynferðisof-
beldi, 700.000 kr., til að fjármagna
sjálfshjálparhópa, þar sem þátttak-
endur koma saman og sækja sér
styrk til að takast á við vandamálin,
og Sögufélag Eyfirðinga, 300.000
kr., til að gera nafnaskrá við ritið
Eyfirðingar framan Glerár og Varð-
gjár. Jarða- og búendatal, og vegna
lokafrágangs fyrir prentun.
Hljómsveitin Hvanndalsbræður
og grínararnir Sólmundur Hólm og
Gísli Einarsson láta móðan mása í
tali og tónum á Græna hattinum á
laugardagkvöldið.
Jóla- og friðartónleikar Karla-
kórs Akureyrar-Geysis verða í Ak-
ureyrarkirkju eftir viku, fimmtudag-
inn 10. desember, kl. 20:00.
Aðventukvöld verður í Davíðs-
húsi í kvöld og hefst kl. 20. Þar
fjallar Valgerður H. Bjarnadóttir
um veturinn eins og hann birtist í
ljóðum Davíðs.
Nemendur ritmísku deildar-
innar við Tónlistarskólann á Ak-
ureyri sýna næsta þriðjudagskvöld í
Hofi söngleikinn Yfir alheiminn (Ac-
ross the Universe), sem byggður er
á bestu lögum Bítlanna. Leikstjóri
er Ívar Helgason.
Jólastarfsdagur verður í
Gamla bænum og Gestastofunni í
Laufási á sunnudaginn frá klukkan
13.30 til 16.00. Fyrst flytur séra Bolli
Pétur Bollason aðventuhugvekju í
kirkjunni og síðan verður heimilis-
fólk við vinnu í bænum að undirbúa
jólin 1915!
Útsvar áfram
við hámarkið
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Styrkir Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, standandi lengst til
hægri, ásamt styrkþegum úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fullveldisdagur Sabrina Rosazza, nemendi í Menntaskólanum á Akureyri, hringir Íslandsklukkunni á lóð HA.
„Ég tek stöðuna dag hvern og
þannig reynum við að skipuleggja
okkur eftir bestu getu, en það er al-
veg á hreinu að það verða ekkert
allir sem fá jólaaðstoð,“ segir Ás-
gerður Jóna Flosadóttir, formaður
Fjölskylduhjálpar Íslands, og bend-
ir á að komandi jól verða þau erfið-
ustu í sögu samtakanna.
Til að standa straum af hjálpar-
starfinu reiða samtökin sig á sölu
kerta, fatamarkað, styrki frá fyrir-
tækjum og einstaklingum og mán-
aðarlegt framlag frá Reykjavíkur-
borg sem er um 130 þúsund krónur.
Í þessum mánuði verða alls fjórar
stórar matarúthlutanir á vegum
Fjölskylduhjálpar á tveimur stöð-
um, þ.e. í Reykjavík og Reykjanesi.
En að sögn Ásgerðar Jónu voru fyr-
ir seinustu jól keyptar kjötvörur
fyrir 10 milljónir króna. Í ár verður
talan hins vegar nærri sex millj-
ónum sökum mikilla útgjalda vegna
mataraðstoðar á þessu ári. Neyðast
samtökin því til að forgangsraða í
úthlutun sinni fyrir komandi hátíð.
Flóttafólk fari annað
„Um þessi jól munum við vísa til
Rauða krossins og Velferðarsjóðs
Suðurnesja öllum hælisleitendum,
flóttafólki og öðrum sem sækja eiga
aðstoð sína þangað. Á sama tíma
munum við leggja áherslu á að
hjálpa eldri borgurum, öryrkjum,
fátækum lágtekjufjölskyldum og
einstæðum foreldrum,“ segir Ás-
gerður Jóna og bendir á að íbúum í
Kópavogi og Hafnarfirði, sem þeg-
ið hafa aðstoð frá Fjölskylduhjálp
til þessa, verður einnig vísað annað
í desember og þá til hjálparsam-
taka innan þeirra sveitarfélaga.
„Það er alveg á hreinu að fram-
undan er mjög erfiður tími hjá
mörgum,“ segir hún, en tekið verð-
ur á móti umsóknum um jólaaðstoð
í dag og á morgun milli klukkan 13
og 16. khj@mbl.is
Nauðstöddu fólki
verður vísað frá
Erfiðustu jól samtakanna til þessa
Morgunblaðið/Rósa Braga
Aðstoð Ekki verður hægt að hjálpa
öllum og verður fólki vísað frá.