Morgunblaðið - 03.12.2015, Síða 36

Morgunblaðið - 03.12.2015, Síða 36
36 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015 RÚGBRAUÐ SVIÐSLJÓS Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Laugardalshöll var tekin í notkun 4. desember 1965, fyrir um 50 ár- um, og er einn helsti hornsteinn- inn í sögu handknattleiks á Íslandi auk þess sem hún opnaði mögu- leika á því að halda stórviðburði eins og tónleika, heimsmeist- aramót, fjölsóttar hátíðir og viða- miklar vörusýningar. „Höllin breytti öllu,“ segir Sig- urgeir Guðmannsson, fyrsti fram- kvæmdastjóri Laugardalshallar. „Það voru geysileg tímamót að fara úr Hálogalandi í Höllina, grunnurinn að framförum hér- lendis í handbolta.“ Mörg ljón á veginum Í fróðlegri samantekt Sig- urgeirs, sem er aðgengileg á vef Hallarinnar (ish.is), rekur hann aðdragandann að byggingunni. Fram kemur að íþróttahús Jóns Þorsteinssonar við Lindargötu, sem var reist 1935, hafi verið fyrsta íþróttahúsið með aðstöðu fyrir áhorfendur, en rými var fyrir um 150 manns á svölum við annan endann. Þar hófst opinber keppni í handbolta 1940, í 20x11 m sal. Bandaríski herinn reisti Háloga- land, íþróttahús á mótum Suður- landsbrautar og Skeiðarvogs 1942. Keppnisgólfið var 30x11 m og áhorfendarými við langhliðarnar fyrir um 800 manns. Húsið var ekki hugsað fyrir handbolta, en veturinn 1944-’45 fóru þar fram mótaleikir í handbolta og hand- knattleiksmót framhaldsskólanna. Í kjölfarið keypti nýstofnað Íþróttabandalag Reykjavíkur, ÍBR, þetta bráðabirgðaíþróttahús af sölunefnd varnarliðseigna. Í frumvarpi Jóhanns Hafstein á Alþingi 1946 var gert ráð fyrir að ríkissjóður og Reykjavíkurborg reistu æskulýðshöll í Reykjavík og lagði bæjarstjórnin til lóð við Sig- tún fyrir Bandalag æskulýðsfélaga í Reykjavík, BÆR, sem voru ný- stofnuð samtök ungliðafélaga stjórnmálaflokka, skáta, templara, iðnnema og stóru íþróttafélag- anna. Grafin var hola fyrir grunn- plötu og þar við sat, en BÆR og ÍBR ræddust við fram til 1955 um byggingu mannvirkja á lóðinni. Árið eftir samþykkti borgarráð samkomulag um framkvæmdir í Laugardalnum milli Suðurlands- brautar og Þvottalaugavegar. Koma skyldi upp íþróttahúsi með aðstöðu meðal annars fyrir sýn- ingar iðnrekendasamtakanna og annarra, leiksviði og veitingasal. Staðsetningin var ekki síst ákveð- in með samnýtingu bílastæða í huga. Í nóvember 1957 undirrit- uðu fulltrúar ÍBR, BÆR, Sýn- ingarsamtaka atvinnuveganna svo og borgarstjóri samning um byggingu sýninga- og íþróttahúss. Frumteikingar lágu fyrir í ársbyrjun 1959 og var grafin gryfja fyrir grunni en þá var ákveð- ið að minnka umfangið vegna kostnaðar. Byggingin var boðin út 1961 og árið eftir gekk BÆR úr skaftinu. Sýningarsamtökin stóðu ekki í skilum með greiðslur og borgin stöðvaði framkvæmdir í tvö ár en 1970 yfirtók borgin eignarhlut samtakanna og átti eftir það 92% á móti 8% ÍBR. „Það voru allskonar ljón á veg- inum, tafir út af einhverjum hlið- arstökkum,“ rifjar Sigurgeir upp. Hann segir að nánast allt fjár- magn borgarinnar hafi farið í að malbika götur og leggja hitaveitu. „Það var ekki fyrr en þessum verkum var lokið að einhver skrið- ur komst á byggingu íþróttahúss- ins. Þetta var eins og með Laug- ardalsvöllinn þar sem unnið var fyrir smápening á hverju sumri.“ Vegna þessa ástands voru landsleikir í handbolta spilaðir á 20 x 40 m velli í íþróttahúsi bandaríska hersins á Keflavík- urflugvelli. Þar var aðstaða fyrir um 3.00 áhorfendur, en fram- kvæmdir gengu hægt og sígandi í Laugardalnum og fyrsti leikurinn í nýju húsi var laugardaginn 4. desember 1965 á milli Reykjavík- urúrvalsins og tékkneska liðsins Karviná, sem kom til landsins í boði Fram. Ekkert benti til þess að Höllin yrði tilbúin en þá tóku Framarar undir stjórn Karls Benediktssonar, þjálfara karlaliðs Fram og karlalandsliðsins, til sinna ráða og gengu frá lausum endum með aðstoð annarra sjálf- boðaliða. Rigning betri en sól Sigurgeir segir að um hálfum mánuði fyrir opnun hússins hafi Gísli Halldórsson, þáverandi for- maður ÍBR, sagt við sig að ein- hver þyrfti að bera ábyrgð á miða- sölu og rekstri. „Hann bað mig um að taka þetta að mér enda hafði ég reynsluna frá Háloga- landi,“ segir Sigurgeir. Til að byrja með var ekki miða- sala í Höllinni heldur voru miðar seldir í bókabúðum Lárusar Blön- dal. Fljótlega var leikið við Dani og segir Sigurgeir að miðarnir hafi selst upp á tveimur dögum. „Það var rými fyrir 3.800 manns í stæði og ég man eftir því að þegar ég leit út um gluggann að morgni leikdags var grenjandi rigning og ég hrósaði happi. Hefði verið sól- skin hefði þurft að aflýsa leiknum vegna þess að þá hefði markmað- urinn austanmegin ekki séð neitt fyrir kvöldsólinni. Skömmu síðar kom franska landsliðið en þá vildi svo vel til að flugvélinni, sem dóm- arinn var í, seinkaði og leikurinn hófst ekki fyrr en sólin var sest. En þetta voru bara byrjunarörð- ugleikar.“ Hallarbylting í Laugardal  Laugardalshöllin tekin í notkun fyrir um 50 árum  Höllin breytti allri aðstöðu og var grunnur að miklum framförum Íslendinga í handbolta  Skapaði nýja möguleika til að halda ýmsa stórviðburði Laugardalshöll Framkvæmdir við bygginguna hófust 1961og þakhvelfingin var steypt á fjórum sólarhringum í september 1963. 12. desember 1965 Fyrsti landsleikurinn í Laugardalshöll var á milli Íslands og Sovétríkjanna. Sigurgeir Guðmannsson var framkvæmdastjóri ÍBR frá 1954 til 1995 og hefur verið viðloðandi bandalagið síðan. „Ég hélt upp á 61 árs starfsafmæli í vor,“ segir hann hlæjandi. Samhliða rekstri ÍBR var hann framkvæmdastjóri Laugardalshallarinnar 1965 til 1969. Arkitektarnir Gísli Halldórsson og Skarphéðinn Jóhannsson teiknuðu Höllina, sem er um 6.500 m² íþrótta-, tónleika-, sýn- ingar- og ráðstefnuhöll. Sam- tengdur henni er um 9.500 m² fjölnota frjáls- íþróttasalur, sem fram- kvæmdir hóf- ust við 2005. Öll aðstaðan er um 20.000 m². Hefur helgað lífið íþróttum SIGURGEIR GUÐMANNSSON Sigurgeir Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Einvígi aldarinnar Heimsmeistaraeinvígi Boris Spasskys til vinstri og Bobby Fischers í skák fór fram í Laugardalshöll 1972 og er frægasti viðburðurinn í Höllinni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.