Morgunblaðið - 03.12.2015, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 03.12.2015, Qupperneq 51
51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015 Móttökur Þingmenn allra flokka heiðruðu Einar K. Guðfinnsson, forseta Alþingis, á þingfundi í gær í tilefni 60 ára afmælis hans og starfsfólk Alþingis klappaði honum lof í lófa. Golli Þriðjudaginn 24. nóvember var mér boð- ið að sitja ráðstefnu um „lyfjaglæpi“ sem er þýðing á nýyrðinu „medicrime“. Ráð- stefnan var haldin í höfuðstöðvum OECD í París en formlega á vegum Evrópuráðsins sem hefur haft forystu um að efna til al- þjóðlegs samstarfs gegn lyfjaglæp- um. Umfangið Gríðarlegt umfang er orðið á sölu falslyfja og þá ekki síst á netinu. Eðli máls samkvæmt er ekki vitað ná- kvæmlega í hverjum mæli falslyf berast sjúklingum en fram kom á ráðstefnunni að tæplega sjötíu pró- sent af öllum póstsendingum sem tollyfirvöld í Evrópusambandinu taka til skoðunar væru lyf, en í toll- leit á ytri landamærum væri hlut- fallið um tíu prósent. Mikið af þess- um meintu lyfjum væru blekkingarvara. Hin fölsuðu lyf spanna vítt svið allt frá astma, krabbameini og HIV til megrunar og örvunar fyrir íþróttamenn. Falslyf geta verið hættuleg Á ráðstefnunni röktu sérfræð- ingar hvaða áhrif blekkingar af þessu tagi gætu haft. Ekki aðeins væri það siðferðilega rangt að beita sjúkt fólk blekkingum í hagn- aðarskyni heldur væri iðulega um það að ræða að blekkingarlyfin yllu líkamlegu tjóni. Menn hafa reynt að áætla hve um- fangsmikill falsiðn- aðurinn er, og voru nefndar himinháar upphæðir á ráðstefn- unni, 57 milljarðar evra og 75 milljarðar Bandaríkjadala. Þetta eru nokkuð ótrúlegar tölur en ef þetta er rétt væri um að ræða um átta þúsund milljarða íslenskra króna! Vand- inn væri sá, var okkur sagt – og þess vegna væri samhæfð nálgun mikilvæg – að skilgreiningar skorti og refsing víðast hvar léttvæg gegn þessum alvarlegu glæpum og þar af leiðandi lítil áhætta fyrir þá sem stæðu að baki sölunni. Þetta skýrði að einhverju leyti öran vöxt í þessum glæpum sem nú væri sagður gefa af sér margfalt meiri tekjur en sala á eiturlyfjum. Ekki er allt sem sýnist Lyfjaiðnaðurinn – hinn „löglegi“ – kallar ekki allt ömmu sína í hags- munagæslu sinni. Hið jákvæða er að hann beitir sér gegn augljósum fals- glæpum. Vandinn er hins vegar að hann vill iðulega ganga lengra í við- leitni til að verja einkaleyfarétt sinn og þá ekkert síður gagnvart fátæk- um þjóðum en ríkum. Reyndar eru afskipti af þessu tagi sárgrætilegust gagnvart snauðum þjóðum sem ekki hafa efni á rándýrum lyfjum og framleiða fyrir bragðið eftirlíkingar sem duga vel til lækninga. Þetta á til dæmis við um Indland. Það er engin tilviljun að þegar Bandaríkjaforseti sækir Afríku og Asíuríki heim að þá skuli hann jafnan á fyrsta degi víkja að mikilvægi einkaleyfa og eign- arréttar! Þarna gætir án efa áhrifa lyfjaiðnaðarins. Í ljósi alls þessa hef ég grun um að taka þurfi sumar framangreindar tölur með varúð og spyrja hvað falli undir þær. Árvekni þörf Í sáttmála Evrópuráðsins um lyfjaglæpi er skýrt tekið fram að það taki ekki til eftirlíkinga, einvörð- ungu til falslyfja sem seld eru á grundvelli misvísandi eða upplog- inna fullyrðinga. Þetta þýðir að mikillar árvekni er þörf í umræðu um þessi mál og er mikilvægt að stjórnvöld leggi rækt við þennan málaflokk þannig að við byggjum jafnan á traustum upplýs- ingum og yfirvegaðri og upplýstri umræðu. Í ræðu kom fram að á Ítalíu væri þess farið að gæta að stolið væri rán- dýrum lyfjum af sjúkrahúsum. Þetta gæti gerst víðar þegar markaðs- verðmæti lyfjanna væri haft í huga. Ég gat þess í mínu innleggi að þetta minnti á hve himinhárra upphæða lyfjaiðnaðurinn krefðist í mörgum tilvikum fyrir afurðir sínar. Með hliðsjón af gróða þeirra þyrfti ekki að undrast að hjá einhverjum vakn- aði löngunin til að eiga í honum hlut- deild, jafnvel með ólögmætum hætti. Glæpamenn á internetinu Internetið kom til umræðu og var varað við afskiptum af því, „svo lengi sem það er ekki notað af glæpa- mönnum í ólöglegum tilgangi“, svo vitnað sé í texta sem lá fyrir ráð- stefnunni. Þetta er gamalkunnur vandi sem við þekkjum úr annarri umræðu og vísa ég þar til umræð- unnar um leiðir til að sporna gegn því að sölumenn barnakláms geti þrengt sér inn í heim barna og ung- linga. Sáttmáli Evrópuráðsins undirritaður 2011 Í ársbyrjun 2016 gengur í gildi fyrrnefndur sáttmáli Evrópuráðsins um samræmda skilgreiningu og að- gerðir gegn lyfjaglæpum því þá hafa nægilega mörg ríki undirritað sam- komulagið. Ég undirritaði það fyrir Íslands hönd, sem innanrík- isráðherra ásamt Guðbjarti Hann- essyni, þáverandi heilbrigð- isráðherra, í október árið 2011 og voru Íslendingar á meðal þeirra fyrstu til að undirrita. Nú hafa nítján af fjörutíu og sjö aðild- arríkjum Evrópuráðsins undirritað sáttmálann en aðeins fjögur þeirra hafa lögleitt hann. Ísland er ekki þar á meðal – enn sem komið er. Þess má geta að þegar eru ríki ut- an Evrópuráðsins byrjuð að sýna málinu mikinn áhuga og hafa nokkur þeirra undirritað og eitt lögleitt sátt- málann þannig að alls hafa fimm ríki lögleitt hann. Þörf á vitundarvakningu Ráðstefnan í París gegn lyfja- glæpum var haldin til þess að vekja athygli á hve knýjandi málefnið er. Því var velt upp hvers vegna svo fá ríki hefðu lögleitt sáttmála Evr- ópuráðsins gegn lyfjaglæpum sem raun ber vitni og var það skýrt í ljósi þess að miðvitund um vandann skorti. Til samanburðar var tekinn Lanzarote-sáttmálinn, sem er ætlað að vernda börn gegn ofbeldi, að þá fyrst hafi hann fengið vængi að hrint hafði verið af stokkunum vitund- arvakningu á vegum Evrópuráðsins um málefnið. Fjöldi sérfræðinga hélt erindi á ráðstefnunni í París og fram stigu einstaklingar sem sjálfir höfðu orðið fyrir barðinu á aðilum sem logið höfðu inn á þá platlækningu og þar með valdið þeim ómældu tjóni. Í er- indum kom fram að þess væru dæmi að til Afríku hefði verið sent „sprautulyf“ sem reynst hefðu föls- uð. Þúsundir hefðu verið sprautaðar með þessum platlyfjum. Ísland í fararbroddi Á ráðstefnunni varð ég var við að það hafi ekki farið framhjá þeim sem standa í fararbroddi þessarar vinnu, að Ísland var á meðal fyrstu ríkjanna til að undirrita samning Evrópuráðsins gegn lyfjaglæpum og er ástæða til að vekja athygli á því að á þessu sviði gegna Íslendingar afgerandi hlutverki. Þannig er fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins, Einar Magnússon, sem fer fyrir lyfjamálum í ráðuneytinu, formaður nefndar Evrópuráðsins, sem hefur lyfjamálin undir sinni regnhlíf. Hjá Evrópuráðinu er horft til vinnu á vegum þessarar nefndar hvað varð- ar alla stefnumótun. Fram hefur komið að í heilbrigð- isráðuneytinu er nú unnið að gerð nýrrar lyfjastefnu og drögum að frumvarpi til nýrra lyfjalaga sem sýnir að þessi mál eru áfram í fram- fara farvegi. Geri ég mér vonir um að þessi vinna muni leiða til þess að Evrópuráðssamningurinn um lyfja- glæpi verði lögleiddur og væri það vel. Eftir Ögmund Jónasson »Hin fölsuðu lyf spanna vítt svið, allt frá astma, krabbameini og HIV til megrunar og örvunar fyrir íþrótta- menn. Ögmundur Jónasson Höfundur er fulltrúi á þingi Evrópuráðsins. Ísland gegn lyfjaglæpum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.