Morgunblaðið - 03.12.2015, Side 66
66
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
BÆKUR
ONDA
handsturtuhaus
1.790 kr.
Verð áður
2.460 kr.
SKINNY
handsturtuhaus
1.490 kr.
Verð áður
1.967 kr.
FONTE
handsturtuhaus
790 kr.
Verð áður
1.076 kr.
TVÖFALDUR
STURTUBARKI
150 CM
1.290 kr.
Verð áður
1.887 kr.
EMOTION sturtuhaus 10 cm
2.990 kr.
Verð áður 3.942 kr.
SPRING sturtuhaus 20 cm
6.500 kr.
Verð áður
9.337 kr.
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
HRESSANDI
STURTUTILBOÐ
Frískaðu upp á baðherbergið fyrir jólin.
JÓLATILBOÐ
Austurveri, Háaleitisbraut 68 • sími 568 4240
Hágæða leðurskór frá
Opið: mán.–fös. 10–18, lau. 10–15
Stærðir
34-47
JUPITER m/stáltá
Verð: 17.999
PLUTO
Verð: 14.999
ORION
Verð: 19.999
Þegar ég var í Prússlandi,Berlín, í námi, tók ég uppþann stíl sem þar ríkti; stílhörku, nákvæmni, gagn-
rýnisáráttu og að þykjast alltaf
vita betur en aðrir („Besserw-
isserei“).
Hugmyndafræði hippanna
sleppti hörkunni og nákvæmninni,
en einkenndist af gagnrýnisáráttu,
en hipparnir töldu – og ég þar
með talinn – nær allt skipulag
þjóðfélagsins og stofnana þess
arfavitlaust og að við ættum að
fara í nánast „heilagt stríð“ til að
afhjúpa það og síðan helst… ef við
gætum… reyna að koma einhverju
jákvæðu til leiðar.
Mér hafði gengið mjög vel í
náminu sem ýtti undir sjálfs-
traustið. Óð ég nú áfram innan
borgarkerfisins og í blöðum – eftir
að ég var kominn til Íslands – for-
dæmandi allt og boðandi hinar
„réttu“ skoðanir. Út af þessu gáfu
þeir á gatnadeildinni mér fljótlega
heitið „SjálfsTrausti ÚrValsson“.
Ég hafði í Berlín að mestu tapað
húmornum fyrir sjálfum mér, svo
ég er ekki viss um að ég hafi skilið
almennilega sneiðina sem í þessu
nýja nafni á mér fólst.
Þegar ég byrjaði á að ganga
meira og meira á veggi – og nefið
á mér orðið ansi flatt – sá ég að
hérna á Íslandi voru menn ekki
eins hrifnir af hörku-framgangs-
mátanum eins og þeir í Þýska-
landi. Og svo sá ég að slakari
hippamennska hérna heima, hafði
ekki linað eins mikið upp gömul
viðhorf eins og hafði orðið í Berlín.
Íslendingar voru á þessum tíma,
enn dálítið líkir þvermóðskufullum,
ferköntuðum sveitaköllum: „Svona
hefur þetta alltaf verið, og ég fer
nú ekki að breyta neinu í mínum
háttum eða aðferðum.“ Þessum
týpíska Íslendingi hefur Laxness
lýst með persónunni Bjarti í Sum-
arhúsum í Sjálfstæðu fólki.
Það merkilega í þessu prívat-
stríði, sem ég hafði nú hafið á Ís-
landi, var að aðeins hluti af mér er
stríðsmaður, en hinn hlutinn mað-
ur sátta… en yfirgnæfandi per-
sónueinkenni mitt er þó, alveg frá
bernsku, að vera á móti viðteknum
reglum og vilja ráðast á þær. Heit-
ið á þessari manngerð á erlendum
tungumálum, er „iconoclast“
(helgimyndabrjótur).
Mér hafði t.d. í Berlín ofboðið
svo múgmennskan og and-
ameríkanisminn, að ég tók ekki
upp hið fyrirskipaða útlit hipp-
anna; skegg, sítt hár og rifna
garma, sem oft voru úr verslunum
fyrir notaðan herklæðnað. Sem
andóf við þessum „dress code“ lét
ég klippa á mig bursta, fékk mér
fjólubláar, stuttar buxur og hafna-
boltahúfu… kom mér svo upp yf-
irvararskeggi, og gekk síðan með
myndavél á maganum. Með þessu
leit ég út eins og hinir hötuðu Am-
eríkanar í miðri hippahjörðinni.
Þegar ég kom heim til Reykja-
víkur blöskraði mér hinsvegar hve
unga fólkið var borgaralegt, og
borgaralega klætt, þannig að eitt
af því fyrsta sem ég gerði var að
fara niður í Sölunefnd varnarliðs-
eigna og kaupa mér notaða land-
gönguliða- og sjóliðabúninga, og
láta mér vaxa sítt hár og skegg.
Þannig mætti ég svo í vinnuna,
sem einn af aðalskipuleggjendum
borgarinnar.
Málið var sem sagt hjá mér; að
ögra, og að ganga fram af fólki!
Var þetta í góðri meiningu gert
því ég taldi að fólk væri almennt í
hlekkjum hugarfarsins, og að það
kynni að meta það þegar væri búið
að ögra því til að hugsa frjálsar.
Gildi þess að „hrista upp“ hafði
ég séð er t.d. dadaisminn gekk
fram af fólki og sýndi óvenjulegar
hugmyndir í byrjun 20. aldar, sem
hjálpaði til við að losa um frosna
hugsun í þjóðfélögum hins vest-
ræna heims.
Allur þessi gassagangur í mér
leiddi til þess að ég tók að þjást af
stressverkjum og ristilkrampa. Af
þessu sá ég að ég þyrfti einhvern
veginn að draga úr hörkunni og
árekstrum í lífi mínu. Tók ég nú
að leita í rit um mjúkan lífsstíl, en
slík rit höfðu að vísu verið hluti af
bókaheimi hippa.
Ég hafði reyndar líka tekið eftir
að það gæti stundum gefið betri
Helgimyndabrjótur kynnist mýktinni
Mótun framtíðar er ævi-
og starfssaga Trausta Vals-
sonar Persónusagan er
þó ekki í forgrunni, heldur
þeir straumar og stefnur
sem ríkt hafa í skipulagi og
hönnun sl. 50 ár Hann á
auðvelt með að lýsa hvað
hefur helst mótað breyting-
arnar á síðustu hálfri öld
Fjölvi gefur út
Helgimyndabrjóturinn Trausti Valsson skipulagsfræðingur krúnurakaði sig á námsárunum í Berlín sem mótmæli við múgmennska hippana.