Morgunblaðið - 03.12.2015, Síða 78
78 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Kristján Hjálmarssoner viðskipta- og al-mannatengsla-
stjóri hjá H:N Markaðs-
samskiptum, en hann var
áður fréttastjóri á Frétta-
blaðinu. „Ég var þar í 14
ár og var alinn upp við
fordóma í garð auglýs-
ingamarkaðarins og
þeirra sem störfuðu þar.
Eftir að ég skipti um
vinnu fyrir um einu og
hálfu ári komst ég að því
að þetta eru ekki svo ólík
störf – skapandi heimar
með skemmtilega klikk-
uðu fólki. Fólkið sem ég
vinn með hjá H:N er í það
minnsta alveg ótrúlega
skemmtilegt. Það vill svo
heppilega til að stofan er í
Bankastrætinu, einu elsta
steinhúsi borgarinnar.
Mér finnst alveg magnað að hafa miðbæinn beint í æð alla daga.
Það getur að vísu verið svolítið erfitt fyrir forvitinn mann eins og
mig því ég stend kannski oftar en hollt getur talist við gluggann og
fylgist með mannlífinu.“
Kristján var að koma úr afmælisferð til Færeyja. „Pabbi gamli,
Hjálmar Árnason, er einn fjórði Færeyingur og var þar oft á sumr-
in. Við bræðurnir höfðum aldrei komið þangað og skelltum okkur
því með pabba um helgina. Vorum frá föstudegi til mánudags og
dvöldum í góðu yfirlæti hjá Waag-ættinni í Klakksvík en hún á og
rekur Föroyja-bjórverksmiðjurnar. Við vorum svo heppnir að fá að
kynnast ættingjum okkar þar, upplifa gullbrúðkaupveislu og
jólafrokost hjá starfsfólki bjórverksmiðjunnar. Við fengum góða
innsýn í hvernig Færeyingar skemmta sér og smökkuðum rast-
súpu sem er eins og baunasúpa nema með úldnu kjöti. Þessi ferð
okkar feðga var með þeim skemmtilegri sem ég hef farið í.“
Kristján er ekki viss hvort hann ætli að halda veislu í tilefni af-
mælisins. „Næstu dagar eru bókaðir í veislur hjá jafnöldrum mín-
um og svo er jólahlaðborð hjá vinnunni þannig að ef ég slæ upp
stórri veislu verður það ekki fyrr en í janúar.“
Eiginkona Kristjáns er Vera Einarsdóttir, blaðamaður á Frétta-
blaðinu. Sonur þeirra er Einar Steinn 13 ára en dóttir Kristjáns er
Þórhildur 20 ára.
Í góðu yfirlæti
hjá Færeyingum
Kristján Hjálmarsson er fertugur í dag
„Mad Man“ Kristján Hjálmarsson.
E
inar fæddist í Reykjavík
3.12. 1965 og ólst upp í
Árbænum: „Ég á góðar
minningar úr því góða
hverfi sem þá var ný-
byggt. Við skautuðum á Rauðavatni á
kyrrum vetrarkvöldum, óðum og
busluðum í Elliðaánum í sólinni á
sumrin og tíndum ber upp í Skáladal
og á Hólmsheiðinni á haustin. Þarna
var gott að alast upp og stutt út í
ósnortna náttúruna í flestar áttir.
Ég var í Árbæjarskólanum sem
var ekkert verri en aðrir barnaskólar
en mér var margt betur gefið en að
sitja stilltur á skólabekk lungann úr
deginum.“
Einar æfði og keppti í knattspyrnu
með yngri flokkum Fylkis og en
missti áhugann um það leyti sem það
stóð til að senda hann í drengjalands-
liðið.
Einar lauk grunnskólaprófi úr Ár-
bæjarskóla, stundaði nám við
Menntaskólann við Sund og lauk
þaðan stúdentsprófi 1986. Hann gerði
stuttan stans í hjúkrunarfræði við
Háskóla Íslands í eitt ár en fór síðan
að vinna. Á námsárunum starfaði
Einar á sumrin hjá Íþróttavöllum
Reykjavíkurborgar: „Ég fór þá vítt
og breitt um bæinn og sló alla keppn-
isvelli knattspyrnufélaganna. Eftir að
þessu skemmtilega starfi lauk var ég
tvisvar fenginn til að mynda rendur í
vellina sem gert er með þar til gerð-
um valtara. Ég hefði því geta orðið
úrvals knattspyrnuvallasérfræðingur
ef ég hefði lagt það fyrir mig.“
Einar lauk meiraprófi 1986 og
rútuprófi 1987 og hefur verið viðloð-
andi akstur allar götur síðan. Hann
vann á vörubíl hjá Vélamiðstöð
Reykjavíkurborgar við snjómokstur,
vélaflutninga og malbikum 1987-98
og hefur ekið hópferðarbílum hjá
Einar Clausen söngvari – 50 ára
Fjölskyldan Einar og Guðrún með börnunum, Láru Ruth, Elvari Smára og Bjarti, sem öll bera ættarnafið Clausen.
Söngvari af söngvaraætt
Út í vorið Karlakvartettinn með Signýju Sæmundsdóttur og Bjarna Þór
Jónatanssyni píanóleikara. Myndin var tekin á því herrans ári 2000.
Reykjavík Þorsteinn
Dreki Friðriksson
fæddist 11. nóvember
2014, kl. 21.16. Hann
vó 3.244 g og var 49
cm langur. Foreldrar
hans eru Ásthildur
Þorsteinsdóttir og
Friðrik Þór
Friðriksson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Fullkominn skurður með
Hypertherm málmskurðvél
Plasmaskurðvélar
Öruggur og nákvæmur skurður
Dalshrauni 14 • 220 Hafnarfjörður • Sími 555 2035 • jak.is