Morgunblaðið - 03.12.2015, Síða 79
SBA – Norðurleið frá þeim tíma.
Hann var búsettur á Akureyri 1998-
2002 en býr nú í Kópavogi. Auk þess
hefur hann stundað leiðsögn fyrir
ferðamenn með hléum.
Einar var trommuleikari í skóla-
hljómsveitum á unglingsárunum og
hefur sungið einsöng við ýmis tilefni,
svo sem við jarðarfarir, í brúðkaup-
um, á tónleikum og í veislum af ýmsu
tagi, en söngurinn er nú hans megin
starf. Hann söng einsöng með Sinfón-
íuhljójmsveit Íslanda við góðar und-
irtekitir í Carmina Burana árið 2013.
Einar hefur sungið með karla-
kvartettinum Út í vorið sl. 21 ár og
syngur að staðaldri með karlakórnum
Voces Masculorum. Hann hefur
sungið inn á fjölda diska, með hinum
ýmsum tónlistarmönnum, nú síðast
með æskuvini sínum, Helga Þór
Ingasyni, verkfræðingi og tónlistar-
manni. Sá diskur nefnist Gamla
hverfið og er einmitt tileinkaður Ár-
bæjarhverfinu.
Einar lumar á ýmsum áhuga-
málum en nefnir helst hjólreiðar,
skíði, tónlist, almenna útivist og er
auk þess með bíladellu: „Ég hef nýtt
hjól sem samgöngutæki meira og
minna sl. 15 ár og fékk Umhverfisvið-
urkenningu Kópavogsbæjar fyrir
framlag til umhverfis og samfélags
árið 2011.
Fjölskylda
Eiginkona Einars er Guðrún Lár-
usdóttir, f. 26.12. 1970, líffræðingur
og endurmenntunarstjóri hjá Land-
búnaðarháskóla Íslands. Foreldrar
hennar eru Lárus Ingólfsson, f. 26.7.
1948, framhaldsskólakennari, og
Ruth Jóhannsdóttir, f. 13.2. 1949,
starfsmaður hjá tryggingafélaginu
VÍS. Þau eru búsett í Kópavogi.
Börn Einars og Guðrúnar eru Lára
Ruth Clausen, f. 21.8. 2003, og Bjart-
ur Clausen, f. 28.11. 2006.
Sonur Einars frá því áður er Elvar
Smári Clausen, f. 11.7. 1998, nemi við
Menntaskólann í Kópavogi.
Systur Einars eru Svanbjörg Clau-
sen, f. 6.4. 1947, leikskólaliði í Reykja-
vík en maður hennar var Sverrir
Karlsson sendibílstjóri sem lést 2011;
Guðrún Olga Clausen, f. 1.6. 1950,
grunnskólakennari í Hveragerði en
maður hennar er Guðmundur Bene-
diktsson, tónlistarmaður; Elín Auður
Clausen, f. 1.3. 1956, búsett í Hol-
landi, og Kristbjörg Clausen, f. 28.10.
1960, bókasafnsfræðingur, nótna-
vörður hjá Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands og söngkona í Reykjavík en
maður hennar er Ragnar Ómarsson,
byggingatæknifræðingur.
Foreldrar Einars: Holger Peter
Clausen, f. 13.8. 1923, d. 27.12. 1998,
birgðavörður í Reykjavík, og k.h.,
Guðrún Sigríður Einarsdóttir Clau-
sen, f. 28.10. 1927, húsfreyja og fyrrv.
póstmaður í Reykjavík.
Úr frændgarði Einars Clausen
Einar Clausen
Solveig Bjarnadóttir
þjónustustúlka á Snæfellsnesi
Vigfús Jón Vigfússon
b. á Snæfellsnesi
Efemía Elín Guðbjörg Vigfúsdóttir
húsfreyja á Snæfellsnesi
Einar Jónsson
sjómaður og verkam. á
Snæfellsnesi og í Hafnarfirði
Guðrún Sigríður E. Clausen
húsfreyja í Rvík
Hólmfríður Jónsdóttir
húsfreyja í Mýrdal
Jón Tómasson
bóndi í Mýrdal
Arreboe Clausen
málaram. í Kópavogi
Óskar Clausen
rithöfundur
Jóhanna Vigdís Arnardóttir
leikkona og slöngkona
Ragnheiður Elín Clausen
fyrrv. fréttam. og þulur
Guðrún Sesselja
Clausen hrl.
Þórunn Erna Clausen
leikkona og söngkona
Andri Clausen yfirsálfræðingur
við LSH, leikari og söngvari
Michael Valur
Clausen barnalæknir
Kristrún Ingibjörg
Kristmundsdóttir
húsfr. á Snæfellsnesi
Árni Daníelsson
bóndi á Snæfellsnesi
Þóra Svanfríður Árnadóttir
húsfr. á Hellissandi og í Rvík
Axel Clausen
kaupm. á Hellissandi og í Rvík
Holger Peter Clausen
birgðavörður í Rvík
Guðrún Clausen Þorkelsdóttir
húsfr. í Rvík og á Snæfellsnesi
Holger Peter Clausen
kaupm. og fleira í Ástralíu, Bretlandi,
Danmörku og á Snæfellsnesi
Örn
Clausen
hrl.
Haukur
Clausen
tannlæknir
Arreboe Clalusen ráðherrabílstjóri
Alfreð Clausen
dægurlagasöngvari
Hjólreiðamaðurinn Einar á hjólinu.
ÍSLENDINGAR 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Kauptúni 3 | Garðabæ | Sími: 564 3364 | fisko.is
Erum í sama húsi en höfum flutt okkur um nokkur verslunarbil
Hunda- og kattafóður á frábæru verði
Ný stærri og glæsilegri verslun
Kíktu í
heimsók
n
L i f and i v e r s l un
95 ára
Sverrir Bergmann
85 ára
Anna Þóra Thoroddsen
Einar Kjartansson
Erla María
Sveinbjörnsdóttir
Sigríður Júlíusdóttir
80 ára
Elísabet Kristinsdóttir
Erna G. Sigurbaldursdóttir
Hanna Elíasdóttir
Sigurður Benedikt
Klemenzson
Stella Margrét
Sigurjónsdóttir
Valdimar Kjartansson
75 ára
Eydís Blomquist
Eyjólfsdóttir
Gunnar Kristófersson
Helga Ólafsdóttir
Karl Eron Sigurðsson
Pauline Magnússon
70 ára
Björg Gísladóttir
Gestur Björnsson
Stefanía Vigfúsdóttir
Steinunn Pétursdóttir
60 ára
Borghildur Gunnarsdóttir
Elinborg Bjarnadóttir
Freyja Ellertsdóttir
Gísli Bogi Jóhannesson
Kristján Þór Vilhjálmsson
Rúnar Páll Björnsson
Stefán Ingi Gunnarsson
Svava Sigurðardóttir
50 ára
Árni Davíðsson
Ásgeir Ægisson
Ástrós Sverrisdóttir
Eduardo Eðvarð Perez Baca
Einar Clausen
Elvar Þór Steinarsson
Engilbert Ómar Steinsson
Gísli Már Finnsson
Gottskálk Guðmundsson
Guðrún Björg Leósdóttir
Hallgrímur Hólmsteinsson
Helga Arna Guðjónsdóttir
Hilmar Thors
Ingibjörg B. Ingólfsdóttir
Jóhannes Örn Jóhannesson
María Jóhanna Sigurð-
ardóttir
Sigríður Sigurðardóttir
Sólveig Davíðsdóttir
Vésteinn Aðalgeirsson
40 ára
Linda Björg Reynisdóttir
Margrét Ólöf Sveinsdóttir
Marta Halldórsdóttir
Sigurður Elvar Viðarsson
Sólrún Óskarsdóttir
Svanberg Ingi Sturluson
30 ára
Einar Baldvin Haraldsson
Hjalti Þórhallsson
Hrafnkell Gauti
Sigurðarson
Kolbrún Gísladóttir
Mateusz Tempski
Stefán Geir Reynisson
Sylwester Kamil
Grzeszczuk
Til hamingju með daginn
30 ára Kolbrún ólst upp á
Álftanesi, býr í Kópavogi,
lauk B.Ed-prófi frá HÍ,
stundar M.Ed-nám og er
grunnskólakennari.
Maki: Pétur B. Pétursson,
f. 1979, lögfræðingur.
Sonur: Hrafnkell Hersir, f.
2014.
Foreldrar: Guðný Ólöf
Viðarsdóttir, f. 1959,
fulltrúi, og Gísli Viðar Þór-
isson, f. 1958, hár-
snyrtimeistari. Þau búa á
Álftanesi.
Kolbrún
Gísladóttir
40 ára Sigurður ólst upp
á Brakanda í Hörgárdal,
hefur búið þar alla tíð, er
nú bóndi á Brakanda og
leikur með áhugaleik-
húsum.
Systkini: Sigrún Alda, f.
1977; Sara Hrönn, f. 1984,
og Sesar Þór, f. 1986, d.
2006.
Foreldrar: Viðar Þor-
steinsson, f. 1952, og El-
ínrós Sveinbjörnsdóttir, f.
1953. Þau eru bændur á
Brakanda.
Sigurður Elvar
Viðarsson
40 ára Marta ólst upp í
Reykjavík, býr þar og er
skrifstofumaður hjá
ÁTVR.
Maki: Tryggvi Örn Vals-
son, f. 1974, húsasmiður.
Börn: Rakel Ýr, f. 1996;
María Rán, f. 2001, Ísar
Valur, f. 2005, og Viktor
Jökull, f. 2008.
Foreldrar: Halldór Svav-
arsson, f. 1952, versl-
unarmaður, og Vilborg
Marteinsdóttir, f. 1956, d.
2015, leikskólakennari.
Marta
Halldórsdóttir
Erla Björnsdóttir hefur varið dokt-
orsritgerð sína í líf- og læknavísindum
við Háskóla Íslands. Ritgerðin ber
heitið: Svefnleysi, þunglyndi og lífs-
gæði sjúklinga með kæfisvefn (In-
somnia, depression and quality of life
among patients with obstructive sleep
apnea). Umsjónarkennari var dr. Bryn-
dís Benediktsdóttir, prófessor við
Læknadeild Háskóla Íslands, og leið-
beinandi var dr. Jón Fr. Sigurðsson,
prófessor við sömu deild.
Sjúklingar með kæfisvefn sofa
gjarnan óvært, þjást af svefnleysi og
rannsóknir benda til aukinnar tíðni
þunglyndis meðal þeirra. Megintil-
gangur þessarar rannsóknar var að
kanna svefnleysi, þunglyndi og lífs-
gæði sjúklinga með kæfisvefn. Í fyrsta
lagi var algengi þessara þátta rann-
sakað sem og tengsl þeirra við alvar-
leika kæfisvefns. Í öðru lagi var skoðað
hvernig þessir þættir breytast við
meðferð kæfisvefns og að lokum hvort
þessir þættir hafi áhrif á meðferðar-
heldni við kæfisvefni. Niðurstöður
sýndu að meirihluti sjúklinga með
ómeðhöndlaðan
kæfisvefn er með
einkenni svefn-
leysis, lífsgæði
þeirra eru slök og
um fimmtungur
þeirra er með
þunglyndi. Það að
eiga erfitt með að
sofna á kvöldin og
að vakna of snemma á morgnana
lagast ekki þó svo að kæfisvefn sé vel
meðhöndlaður og þessi einkenni
svefnleysis hafa neikvæð áhrif á með-
ferðarheldni. Að vakna oft á nóttunni
lagast hjá þeim sjúklingum sem nota
svefnöndunartæki sem virðist þannig
einkenni ómeðhöndlaðs kæfisvefns
frekar en raunverulegt svefnleysi. Þeir
sem nota svefnöndunartæki auka lífs-
gæði sín ekki meira en þeir sem hætta
notkun svefnöndunartækis. Kæfisvefn
hefur margvíslega fylgikvilla, eins og
svefnleysi og þunglyndi, sem hafa nei-
kvæð áhrif á lífsgæði sjúklinga. Þessa
þætti þarf að taka til greina og með-
höndla frekar þegar þörf er á.
Erla Björnsdóttir
Erla Björnsdóttir fæddist árið 1982. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum
á Akureyri árið 2003 og BS-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2007. Erla
lauk cand. psych.-prófi frá Háskólanum í Árósum 2009 og innritaðist í dokt-
orsnám við Læknadeild Háskóla Íslands árið 2010. Hún starfar í dag sem sál-
fræðingur hjá Sálfræðiráðgjöfinni ásamt því að sinna rannsóknum sem nýdoktor
á Landspítalanum. Einnig rekur hún sitt eigið fyrirtæki, www.betrisvefn.is. Erla er
gift Hálfdani Steinþórssyni, framkvæmdastjóra GOmobile, og saman eiga þau
fjóra syni, Steinþór Snæ, Björn Diljan, Frosta og Bjart. Foreldrar Erlu eru Björn
Magnússon lungnalæknir og Anna Sigurveig Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Doktor
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is