Morgunblaðið - 25.02.2016, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Mikil gerjun á sér stað í brugghúsum
og bjórmenningu landsins, í orðsins
fyllstu merkingu. Á skömmum tíma
hefur litlum brugghúsum fjölgað og
þau sem fyrir eru leggja sífellt meiri
áherslu á að kynna sína framleiðslu
fyrir ferðamönnum. Sköpuð hefur
verið aðstaða í brugghúsunum til að
taka á móti gestum og íslenskar
ferðaskrifstofur eru farnar að skipu-
leggja sérstakar bjórferðir fyrir
ferðamenn. Nokkur vísir er því kom-
inn að bjórferðamennsku, sem löng
hefð er fyrir erlendis í tengslum við
brugghús og stórar bjórhátíðir.
Dreifist um landið
Á annan tug brugghúsa er starf-
andi í flestum landshlutum hér á
landi, allt frá stórum aðilum eins og
Ölgerðinni og Vífilfelli til lítilla
brugghúsa, svonefndra örbrugghúsa.
Þá er vitað um nokkra áhugasama
aðila með svipuð áform, m.a. tvö félög
á Austurlandi. Dreifing þessara
brugghúsa um landið sést nánar á
meðfylgjandi korti. Ný brugghús eru
komin í gang á Siglufirði; Segull 67,
og í Vestmannaeyjum; Brothers Bre-
wery, og tvö í Reykjavík; Hún/Hann
brugghús í húsnæði Matís í Graf-
arholti og Bryggjan brugghús við
Grandagarð.
Aðilar á Ísafirði höfðu uppi áform
um að stofna þar brugghús en ekkert
hefur orðið af því ennþá. Miðað við
síðustu fréttir gæti staðan hins vegar
farið að breytast á Austurlandi. Þar
hófst bruggun á bjórnum El Grillo á
Seyðisfirði fyrir nokkrum árum en
Ölgerðin tók síðan að sér brugg-
unina. Hið austfirska bruggfélag hef-
ur verið stofnað á Breiðdalsvík og
þar er áformað að opna brugghús
næsta haust. Áhugasamir aðilar á
Héraði hafa verið að safna fjármagni
til að stofna brugghúsið Austra í
Fellabæ. Vonir stóðu til að byrja á
síðasta ári en það mun eitthvað tefj-
ast.
Bjórferðamennskan er stunduð af
kappi í höfuðborginni. Nokkrum
sinnum í viku koma t.d. hópar ferða-
manna í skoðunarferðir í Gestastofu
Ölgerðarinnar þar sem þeim gefst
kostur á fróðleik og kynningu á ís-
lenskri sögu og menningu tengt bjór
og víni. Taste the Saga nefnast skoð-
unarferðirnar og hafa þær gefið góða
raun, segir Jarþrúður Ásmunds-
dóttir, forstöðumaður Gestastof-
unnar, en þar fer einnig fram kennsla
í Bjór- og Vínskóla Ölgerðarinnar.
15 þúsund hafa útskrifast
Þangað komu um 3.000 erlendir
ferðamenn í fyrra og um 7.000 þátt-
takendur voru í um 400 námskeiðum
á vegum Gestastofunnar, sem fagn-
aði nýverið sex ára afmæli sínu. Frá
upphafi hafa ríflega 15 þúsund nem-
endur verið útskrifaðir úr Bjórskól-
anum, eru þá erlendir ferðamenn
ekki taldir með.
Saga litlu brugghúsanna er ekki
nema um 10 ára gömul. Brugg-
smiðjan á Árskógssandi reið á vaðið
2005, þegar framleiðsla á Kalda
hófst. Síðan þá hefur brugghúsið
stækkað ár frá ári og er orðið stærst
á eftir Ölgerðinni og Vífilfelli. Fram-
leiðslan byrjaði í 160 þúsund lítrum á
ári en er núna komin í um 650 þúsund
lítra.
Árlega er tekið á móti 11-12 þús-
und gestum í brugghúsinu á Ár-
skógssandi. Sigurður Bragi Ólafsson,
yfirbruggari og sonur stofnendanna
Agnesar Sigurðardóttur og Ólafs
Þrastar Ólafssonar, segir þessar
móttökur stóran hluta af starfsem-
inni. Bara í janúar sl. komu um 1.000
gestir að skoða, að stórum hluta er-
lendir ferðamenn.
Nú ráðgerir fyrirtækið að auka
þjónustuna og opna bjór-spa í lok
sumars, að tékkneskri fyrirmynd,
þar sem hægt verður að fara í bjór-
bað og nudd og slökun á eftir. Reisa á
300 fermetra bjálkahús undir starf-
semina, skammt frá brugghúsinu.
Heilsulind með bjór
„Þetta verður heilsulind þar sem
meðferðin gengur út á bjór,“ segir
Sigurður en bjórinn er talinn mjög
hollur fyrir húðina, sér í lagi þá sem
eru með húðofnæmi, psoriasis og
aðra slíka húðsjúkdóma. Einnig geta
gestir fengið að drekka bjór úr krön-
um við hliðina á pottum fullum af ósí-
uðum bjór, sem fellur til í framleiðsl-
unni, og baðvatni. Til að byrja með
verður baðpláss fyrir 12 manns í sex
pottum.
„Við verðum með sérstakt lúxus-
herbergi fyrir þá sem vilja vera út af
fyrir sig og einnig sérstakt slökunar-
herbergi. Síðan verða að líða fjórir
tímar þar til fólk getur farið í sturtu
eftir bjórbaðið,“ segir Sigurður. Jafn-
framt verður veitingasala í heilsu-
lindinni en til greina kemur að hafa
gistiaðstöðu síðar meir ef eftirspurn
skapast.
Kalda-bar er rekinn í Reykjavík af
öðrum aðilum, en í samstarfi við
Bruggsmiðjuna og að mestu seldur
þar Kalda-bjór. Fjölskyldan á Ár-
skógssandi rak einnig bar á Akureyri
um tíma, Brugghúsbarinn, en seldi
hann.
Bjóráhugamenn eru farnir að
sækja íslenskar bjórhátíðir, en ein
slík fer núna fram í Reykjavík um
helgina á vegum Kex Hostels. Önnur
bjórhátíð hefur fest sig í sessi meðal
bjóráhugamanna, sem Bjórsetur Ís-
lands á Hólum í Hjaltadal í Skaga-
firði stendur fyrir fyrstu helgina í
júní hvert ár. Þar koma saman allir
helstu bjórnördar landsins og einnig
frá útlöndum. Þannig er von á 10-20
Kanadamönnum á vegum ferðaþjón-
ustufyrirtækisins Lamb-Inn Travel á
Öngulsstöðum í Eyjafirði. Karl Jóns-
son hjá Lamb-Inn segir Kanada-
mennina koma hingað til að upplifa
íslenska náttúru og menningu, með
áherslu á að kynna sér bjór frá litlu
brugghúsunum. Ferðin er í samstarfi
við Beer Lovers Tour í Toronto og
ferðaskrifstofuna Merit Travel. Þá er
Lamb-Inn Travel með í undirbúningi
skipulagðar dagsferðir um Trölla-
skaga, með viðkomu í Bruggsmiðj-
unni á Árskógssandi, brugghúsinu
Segull 67 á Siglufirði, á Bjórsetrinu á
Hólum, brugghúsi Gæðings í Útvík
skammt frá Sauðárkróki og loks í
Víking ölgerð Vífilfells á Akureyri.
Safna miðum og töppum
„Það er alltaf aðsókn í heimsókn til
okkar, sérstaklega hópar sem koma á
vorin. Mest eru þetta Íslendingar en
einnig hópar erlendra ferðamanna,“
segir Árni Hafstað, eigandi Gæðings
brugghúss, sem einnig rekur Micro-
bar í Reykjavík og á Sauðárkróki.
Brugghúsið fagnar fimm ára afmæli
á þessu ári.
Árna líst vel á áform um skipulagð-
ar kynningarferðir um Tröllaskaga.
Skagafjörður sé ekki stórt ferða-
mannasvæði en þetta geti verið hluti
af slíkri uppbyggingu.
„Erlendir ferðamenn eru tíðir
gestir á Microbar og þar erum við
bæði að kynna okkar framleiðslu og
annarra íslenskra brugghúsa, auk úr-
vals af erlendum bjór. Við fáum einn-
ig töluvert af fyrirspurnum frá út-
löndum, þar sem bjóráhugamenn eru
t.d. að safna miðum eða töppum og
spyrja hvar hægt sé að nálgast ís-
lenskan bjór í útlöndum,“ segir Árni.
Bjórsetur Íslands er eitt þessara
örbrugghúsa sem brugga sinn eigin
bjór en stendur aðallega fyrir kynn-
ingu á bjórtegundum hvaðanæva.
Markaðurinn er til staðar
„Við höfum tekið á móti hópum í
kynningar og smökkun og einnig ver-
ið með námskeið. Erlendir ferða-
menn hafa einnig gert sér sérstaka
ferð til Hóla,“ segir Bjarni Kristófer
Kristjánsson, einn forsprakka Bjór-
setursins.
Bjórhátíðinni á Hólum hefur sem
fyrr segir vaxið fiskur um hrygg.
Bjarni segir það enga spurningu að
markaður sé fyrir bjórferðamennsku
á Íslandi. Margir séu komnir með lítil
brugghús og fjölbreytnin mikil. „Við
höfum farið héðan nokkrum sinnum í
sérstök bjórferðalög til útlanda og
það er stór hópur fólks sem sækir í
slíkar ferðir víða um heim,“ segir
Bjarni.
Brugghús Steðja í Borgarfirði er á
fjölsóttu ferðamannasvæði og Dag-
bjartur Arilíusson, framkvæmda-
Ferðamenn sækja í bjórinn
Vaxandi áhugi ferðamanna á íslenskri bjórmenningu Tekið á móti fjölda ferðamanna í kynn-
ingar og kennslu Skipuleggja á ferðir í brugghús við Tröllaskaga Bjórböð opnuð hjá Kalda í ár
Brugghús og ölgerðir á Íslandi
Fyrirhuguð brugghús.
Ölgerðin
Borg brugghús
Bryggjan Brugghús
Brothers Brewery
Vestmannaeyjum
Gæðingur Öl
Útvík í Skagafirði
Bjórsetur
Íslands
Hólum
Segull 67
Siglufirði
Bruggsmiðjan (Kaldi)
Árskógssandi
Austri
Fellabæ
Hið austfirska
bruggfélag
Breiðdalsvík
Víking Ölgerð
Einstök Ölgerð
Akureyri
Steðji
Borgarfirði
Ölvisholt
Flóahreppi
Hún/Hann brugghús
{
Reykjavík
AFP
Bjór Ferðamenn eru farnir að sýna íslenskum bjór aukinn áhuga og vilja
kynna sér starfsemi brugghúsanna hér á landi, m.a. á námskeiðum.
Ljósmynd/Ölgerðin
Bjórskóli Ölgerðin hefur frá 2009 rekið Bjórskólann í húsakynnum sín-
um og einnig er árlega tekið á móti þúsundum erlendra ferðamanna.