Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2016, Qupperneq 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2016, Qupperneq 8
Í FÓKUS 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.3. 2016 FRÆGÐIN Frami Aliciu Vikander hefur verið skjótur, svo skjótur að hún við- urkennir að hún viti varla í hvorn fótinn hún eigi að stíga. „Þetta er taugatrekkj- andi,“ sagði hún nýlega í samtali við tíma- ritið Vogue. „Tilfinningarnar eru blendnar. Allt sem ég hef viljað gera í lífinu er að leika í bíómyndum en nú gerist þetta allt í einu. Skyndilega er maður staddur í sama herbergi og fólk sem maður hefur litið upp til árum saman, það er Judi Denchurnar. Maður hlýtur að velta fyrir sér hvort mað- ur sé nógu góður. Kvíðinn fylgir manni stöðugt og maður spyr sig hvort þetta sé eina tækifærið. Ég þekki marga leikara sem hugsa svona.“ Alicia Vikander er ógift og barnslaus en hefur verið að slá sér upp með írsk/þýska leikaranum Michael Fassbender í rúmlega ár. Þau búa í Lundúnum. Alicia Vikander í essinu sínu á árlegu balli sem fylgir iðulega Ósk- arsverðlaunahátíðinni. Spennandi verður að fylgjast með henni. AFP „Þetta er tauga- trekkjandi“ ALICIA VIKANDER varð um síðustu helgi önnur norræna leikkonan í sög- unni, á eftir Ingrid Bergman, til að vinna Óskarsverðlaun. Það gerði þessi sænska stúlka fyrir bestan leik í aukahlutverki í kvikmynd Toms Hoopers, The Danish Girl. Vikander skaut þar með goðsögnum á borð við Gretu Garbo, Liv Ullman, Ann-Margret og Lenu Olin ref fyrir rass. Enginn nor- rænn leikari hefur hreppt hin eftirsóttu verðlaun en Max Von Sydow hefur tvisvar verið tilnefndur. Vikander má hins vegar halda vel á spöðunum ætli hún að skáka Bergman, sem hlaut í tvígang Óskar fyrir leik í aðalhlutverki og einu sinni fyrir leik í aukahlutverki. Það var í kvikmyndunum Gaslight (1944), Anastasia (1956) og Murder on the Orient Express (1974). Allt löngu áður en Vikander fæddist. The Danish Girl hefur gegnumsneitt fengið glimrandi viðtökur og dóma, ekki síst frammistaða aðalleikaranna, Vikander og Eddies Redmaynes, en þau þykja fara einstaklega vel með viðkvæmt efni. Myndin byggist á lífi dönsku málaranna og hjónanna Einars og Gerdu Wegeners en Einar var einn fyrsti maðurinn sem gekkst undir aðgerð til að leiðrétta kyn sitt árið 1930. Varð að Lili Elbe. Gerda Wegener stóð þétt við bakið á honum/henni gegnum allt ferlið og þyk- ir Vikander ná afar vel utan um þær flóknu tilfinningar sem bærðust með henni á meðan. Fáir utan Svíþjóðar höfðu líklega heyrt um Aliciu Vikander fyrir árið 2015 en hvorki fleiri né færri en fimm kvikmyndir á því ári hafa gjörbreytt því. Flestar vöktu þær umtalsverða athygli. Hinar myndirnar fjórar eru Ex Machina eftir Alex Garland, Burnt eftir John Wells, The Man from U.N.C.L.E. eftir Guy Ritchie og heimildarmyndin Ingrid Bergman: In Her Own Words, þar sem Vikander var í hlutverki sögumanns. Engin lognmolla er heldur framundan hjá Vikander en hún verður í að minnsta kosti þremur myndum á þessu ári. Jason Bourne með Matt Damon, The Light Between Oceans með Michael Fassbender og Rachel Weisz og Tulip Fever ásamt Justin Chadwick, Dane DeHaan og Christoph Walz. Þá er í pípunum spennu- myndin Submergence, þar sem Vikander leikur á móti James McAvoy. Ekki er um að villast: Stjarna er fædd. orri@mbl.is ÓSKAR Alicia Vikander var ekki í amalegum félagsskap á Óskarnum. Brie Larson var valin besta leikkona í aðalhlutverki, Leonardo DiCaprio besti leikari í aðalhlutverki og Mark Rylance besti leikari í aukahlutverki. Þess má geta að Larson er ekki af norrænu bergi brotin, þrátt fyrir nafnið. Hún er banda- rísk en af fransk/kanadískum ætt- um. Ættarnafn hennar, Desaul- niers, fer hins vegar illa í munni vestra og fyrir vikið tók hún sér nafnið Larson – eftir dúkku sem hún átti sem barn, Kirsten Lar- son. Eini Norður- landabúinn Mark Rylance, Brie Larson, Leonardo DiCaprio og Vikander á Óskarnum. AFP ÆVI Alicia Vikander fæddist í Gautaborg 3. október 1988 og er því á 28. aldursári. Faðir hennar er geðlæknir en móðirin leikkona. Þau skildu þegar hún var nýfædd. Vikander á fimm hálfsystkini, föð- ur síns megin. Vikander byrjaði að leika á sviði sjö ára gömul en stefndi þó leynt og ljóst að því að verða ballerína. Á unglingsárum gerðu meiðsli út af við þann draum og hún einbeitti sér upp frá því að leiklistinni. Fall er fararheill og tveir fyrstu skól- arnir sem Vikander sótti um höfn- uðu henni. Loks komst hún þó að. Hafði að vísu skráð sig í lögfræði í millitíðinni en aldrei reyndi á það nám því hún vildi frekar reyna til þrautar við leiklistina. Alicia Vikander var líka verðlaun- uð á Screen Actors Guild- verðlaununum fyrr á þessu ári. AFP Vildi verða ballerína Í fótspor Bergman Eddie Redmayne og Vikander í The Danish Girl. Redmayne var einnig tilnefndur til Óskars. ’Gerda Wegener stóð þétt við bakiðá honum/henni gegnum allt ferliðog þykir Vikander ná afar vel utan umþær flóknu tilfinningar sem bærðust með henni á meðan. Alicia Vikander kampakát með Óskarinn sinn. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.