Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2016, Síða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2016, Síða 12
FORSETAVAKTIN 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.3. 2016 Rólegur maður, yfirvegaður ífasi, mjög góður í mann-legum samskiptum og sem á auðvelt að vinna með fólki – miðað við heimasíðu hans – bauð sig í vik- unni fram til embættis forseta Ís- lands. Sá heitir Heimir Örn Hólm- arsson, rafmagnstæknifræðingur að mennt og með meistaragráðu í verk- efnastjórnun. Hann er eini formlegi nýliði vikunnar. Nafn Katrínar Jakobsdóttur, for- manns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og fyrrverandi menntamálaráðherra, var enn og aftur oftast nefnt í könnun sem birt var í vikunni. MMR kannaði hug landsmanna fyrir Stundina og mældist Katrín með stuðning 37,5% svarenda – mun meira en aðrir. Lagðist hún í fram- haldinu undir hinn fræga feld. „Auð- vitað er það ekki nema eðlilegt að maður velti þessu fyrir sér þegar margir telja þetta góða hugmynd,“ sagði Katrín við mbl.is. Hún sagðist ætla að velta málinu fyrir sér af al- vöru í nokkra daga. Svarar Vigfús í dag? Vigfús Bjarni Albertsson, prestur á Landspítalanum, var skyndilega nefndur á dögunum sem mögulegur forsetaframbjóðandi. Hópur fólks hvetur hann eindregið til þess að gefa kost á sér og svo er að skilja að landsmönnum verði kynnt niður- staða vangaveltna Vigfúsar og eigin- konu hans, Valdísar Aspar Ívars- dóttur, um helgina. Vigfúsi Bjarna verður afhent áskorun, undirrituð af 500 manns, á Hótel Borg í dag, sunnudag, að því er segir í tilkynningu til fjölmiðla. Þá spratt Hannes Bjarnason frá Eyhildarholti í Skagafirði fram í dagsljósið í vikunni. „Ég vil ekki úti- loka neitt, þetta er bara til skoðunar. Maður fylgist með hvernig mál þróast,“ sagði Hannes í vikunni eftir að í ljós kom að virkjuð hafði verið á ný bloggsíðan jaforseti.is sem hann opnaði fyrir fjórum árum en þá var hann einmitt í framboði. Hlaut þá um 1% greiddra atkvæða. Þá bjó Hannes í Noregi en fjölskyldan flutti til Íslands 2013 og býr í Skagafirði. Rétt er að rifja upp, lesendum til glöggvunar, að nokkrir hafa fyrir þónokkru lýst yfir framboði. Ástþór Magnússon, athafnamaður og stofnandi Friðar 2000, er reynd- astur þeirra á þessu sviði en hann gerir nú fjórðu atlöguna að Bessa- stöðum. Elísabet Kristín Jökulsdótt- ir rithöfundur hefur einnig lýst yfir framboði en vikan var sannarlega ánægjuleg fyrir hana því Elísabet var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir ljóðabókina Ástin ein taugahrúga. Enginn dans við Ufsaklett. Þá hefur Hildur Þórðardóttir þjóðfræðingur tilkynnt framboð sem og Sturla Jónsson bifreiðastjóri, að ógleymdum Ara Jósepssyni, sem er helst þekktur fyrir að birta mynd- bönd af sér á Youtube. Aðrir sem mældust með töluverð- an stuðning í könnun MMR sem áð- ur var nefnd, fyrir Stundina, voru Davíð Oddsson, ritstjóri Morgun- blaðsins, Stefán Jón Hafstein, Sal- vör Nordal, forstöðumaður Sið- fræðistofnunar, Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur og athafna- maður, Andri Snær Magnason rit- höfundur og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fv. menntamála- ráðherra og varaformaður Sjálf- stæðisflokksins, sem sagðist einmitt á dögunum vera að íhuga málið eftir að skorað var á hana að gefa kost á sér. Fullyrt hefur verið að Össur Skarphéðinsson, alþingismaður og fv. ráðherra, sé að kanna stöðuna; hafi verið töluvert í símanum, eins og það var orðað! Spennandi verður að sjá hvernig Össur metur þau sím- töl og ekki er ólíklegt að fleiri komi fram á sjónarsviðið áður en mjög lengt um líður. Færist senn fjör í leikinn? Tíðindi vikunnar benda til þess að hugsanlega geti farið að draga til frekari tíðinda en til þessa í baráttunni um forsetaembættið. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Katrín Jakobsdóttir Karl Frímannsson hefur sagt lausu starfi sínu sem sveit- arstjóri Eyjafjarðarsveitar. Hann segir á Facebook að þó að freistandi væri að koma þeirri flökkusögu af stað þá væri hann ekki á leið í forsetaframboð. „Margir hafa komið að máli við mig síðustu daga en ekki nefnt forsetaframboð einu orði,“ seg- ir hann í léttum dúr.    Jón Gnarr, fv. borgarstjóri, til- kynnti um miðjan janúar að hann myndi ekki gefa kost á sér í forsetakjöri. Hafði reyndar gert það löngu áður, en þegar Jón tilkynnti um miðjan janúar að hann hygðist tjá sig um mögulegt framboð sitt í einum af miðlum 365 nokkrum dögum síðar biðu menn spenntir. Það hlaut að verða skúbb? Sumir biðu spenntir en Jón tók af allan vafa í eigin sjónvarpsþætti, Ice- land today, á Stöð 2. Sagðist ekki fara fram en útilokaði þó ekki að hann kynni að gera það síðar.    Árni Björn Guðjónsson, fyrr- verandi oddviti Kristilega lýð- ræðisflokksins, gaf um áramót- in kost á sér til forseta en hætti við aðeins rúmum sólarhring síðar af sérstökum ástæðum, sem þó voru ekki tilteknar frek- ar í tilkynningu til fjölmiðla. Morgunblaðið/Sigurður Bogi VÖNGUM VÍÐA VELT Að fara fram, eða ekki 16 VIKUR TIL KOSNINGA Hannes Bjarnason Vigfús Bjarni Albertsson Ari Jósepsson Ástþór Magnússon Hildur ÞórðardóttirHeimir Örn Hólmarsson Elísabet Kristín Jökulsdóttir Þorgerður Katrín Gunnarsd.Sturla Jónsson Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is B ra nd en b ur g Ekki laumupokast Breyting á endurvinnslustöðvum. Gerðu öllum auðveldara fyrir og komdumeð blandaða úrganginn í glærum poka

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.