Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2016, Qupperneq 16
ÚTTEKT
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.3. 2016
Þorskaþjálfi er í sérstöku uppáhaldi. Leitá timarit.is skilar sex niðurstöðum ogþorskaþjálfa (þf.) skilar 12. Sem sann-
færði mig um að oft séu brögð í tafli því misrit-
anir af orðinu í öðrum myndum, svo sem fleir-
tölu, skila engum niðurstöðum, kannski einni
og einni,“ segir Halldór E. Högurður, sérlegur
áhugamaður um misritanir og mismæli. Hall-
dór Högurður hefur komið nálægt hinu og
þessu tengdu tungumálinu um ævina, allt frá
krossgátugerð upp í áramótaskaupsskrif. Þeir
sem þekkja til Halldórs vita að fáir eru jafn-
naskir á fyndni í misritunum og
mismælum og myndu marg-
ir ganga svo langt að
kalla hann „sérfræð-
inginn“.
„Önnur góð er þegar
keppni um lógó félags
var auglýst og niður-
lagið var: „Félagið
áskilur sér rétt til að
nýta, að höfðu sam-
ræði við höfunda,
hluta hugmyndar
eða hafna þeim
öllum.“
Nýjasta perlan í safni mínu er þegar Gylfi
Ægis sannaði að hann er ekta pólitíkus með
því að segja eitt í dag en annað á morgun.
Þetta gerði hann með því að setja á fasbók-
arvegg sinn: „Lengi lifi Íslenska þjófylk-
ingin.““
Það er venja margra að skella skuldinni á
aðra en svo var ekki hjá eiganda bílasölu sem
tók sökina persónulega algjörlega á sig og lét
þessi orð falla: „Ríkið tapar milljörðum á
minni bílasölu.“
„Eitt það fyndnasta
sem ég hef heyrt er
þegar Eiríkur Sig-
urbjörnsson á sjón-
varpsstöðinni
Omega var að
spjalla við þýð-
anda sem áður
þýddi Benny Hinn en
eftir að hætt var að
sýna þá þætti fór
hann að þýða
Ulf Ekman
sem kom
í stað-
inn.
Þýðandinn, kona, sagðist fyrst hafa syrgt
Hinn afskaplega og ekkert fundist spunnið í
þennan Ulf Ekman en svo hafi hún orðið fyrir
smurningu og áttað sig á hve magnaður hann
væri. Svar Eiríks við þessu var: „Svona getum
við mannfólkið nú verið vitlaust þegar við er-
um með fordóma. Við megum ekki vera með
fordóma, þá verðum við alveg eins og eskimó-
ar, vitum ekki neitt.“
Halldór Högurður nefnir einnig þegar til-
kynning birtist í blaði um sóknarprest úti á
landi sem var jarðstunginn. Á svipuðum tíma
kom frétt um lækni sem lést á ferð í Sand-
gerði.
„Þá var það eiginkona Finnboga sem hafði
tvívegis fengið brjóstlos sem hafði háð henni
við vinnu. Og eitt sinn lögðu Haukastelpur „lið
Sindra með þremur mökum“. Þá má ekki
gleyma því þegar „útfjör“ konu einnar fór
fram frá Hafnarfjarðarkirkju.“
Sérfræðingurinn
Halldór Högurður
Halldór Högurður á dágott safn af meinlegum villum í texta auglýsinga, tímarita og dagblaða.
EF TIL VILL BRÖGÐ Í TAFLI
Fátt fer framhjá vökulu auga
Halldórs Högurðar eins og
vinir hans og kunningjar á
samfélagsmiðlunum vita.
Svanhildur Hólm Valsdóttir, lögfræð-ingur og aðstoðarmaður fjár-málaráðherra, er sérstök áhuga-
manneskja um mismæli og misritanir og
safnar skjáskotum af því síðarnefnda. Hún
segist hér um bil vera með innbyggt leið-
réttingaforrit.
„Flest fólk getur lesið texta án þess að
smávægilegar villur trufli það en hjá mér
fer hugmyndaflugið jafnvel á fullt, af því að
oft getur misritun eða röng orðanotkun
gerbreytt merkingu, það þarf eiginlega
ekki einu sinni að vera vitlaust - nóg er að
það sé skrýtið, eins og þegar talað var um í
fyrirsögn að „koma aftan að látnu fólki“.
Hvernig getur maður ekki séð það fyrir
sér?
Hvernig fer maður líka að því að
„standa upp fyrir sjálfum sér“ eins og var
sungið í undankeppni Eurovision fyrir
nokkrum árum; „Stattu upp fyrir sjálfum
þér.“
Ég hef átt í mestu vandræðum með
sjálfa mig þegar ég heyri þetta því ég get
ómögulega séð fyrir mér hvernig hægt er
að koma því í verk. Einhverjir myndu segja
að ég væri pínu bókstafleg en ég virka
svona; hlutir þurfa helst að vera rökréttir
og mér finnst tungumálið yfirleitt vera rök-
rétt.“
Ekki verður af Svanhildi tekið að hún
hefur húmor fyrir þessu. Þegar hún tekur
sig til og sendir tölvupósta til að koma á
framfæri málfarslegum athugasemdum
skrifar hún stundum undir; „kv. Eiður“
með vísan í Eið Svanberg sem hefur verið
óþreytandi við að skoða málfar í fjölmiðlum
og er frægur fyrir sína málfarsmola. Það
gæti líka einhver lent í því að Svanhildur
leiðrétti einhvern á næsta kassa í kjörbúð-
inni og hún segir að það sé ekki beinlínis
meðvitað en stundum nái hún að stoppa sig.
„Mig langar ekkert að vera að atast í
fólki en ég geng út frá því að fólk vilji hafa
hlutina rétta, eins og til dæmis þegar ég
sendi athugasemdir á blaðamenn. Það er
munur á því hvort fólk hefur atvinnu af því
að nota tungumálið eða mismæla sig eða
misrita og ég er ekkert fullkomin sjálf. Iðu-
lega gleymi ég í miðri setningu um hvað ég
var að tala og rugla heitum á hlutum.
Ég segist til dæmis oft ætla út í apótek
að kaupa brauð því einhverra hluta vegna
rugla ég orðunum bakarí og apótek. Stund-
um gleymi ég svo hreinlega orðum og ég
lenti í því einu sinni í útsendingu í Kastljós-
inu en viðtalið var þannig að ég sem spyrill
varð að muna orðið hindúi - sem ég gerði
ekki. Ég endaði á að viðurkenna bara að ég
myndi þetta ekki - eftir að hafa reynt að
tala um „fólkið með heilögu kýrnar“ og svo
framvegis.“
Flestir taka ósjálfráðum málsfarsvið-
brögðum Svanhildar vel. „Einn og einn
svarar kannski einhverju á borð við að mál-
ið sé bara í þróun og það sé allt í lagi að
segja „mér langar“. Það finnst mér svipað
og að ákveða að stökkva stutt í langstökki
því langstökkið sé í þróun. Það er allt í lagi
að leika sér með málið ef maður veit hvern-
ig það á að vera.“
Áhugi Svanhildur beinist líka að
fyrirsögnum. „Oft er verið að segja
eitthvað sem stenst en þegar orðunum er
raðað saman koma þau kannski ekki vel
út eins og þetta með klamydíusmitin sem
við eigum Norðurlandameistaratitilinn í
samkvæmt fréttum en „eigum að geta
gert betur en það.“
Starfs síns vegna situr Svanhildur gjarn-
an á hinum og þessum fundum. Hún grípur
ekki fram í ræður en segist geta átt bágt
með sig þegar ræðumenn gera gloríur.
„Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins fyrir
mörgum árum kom maður í pontu sem var
mikið niðri fyrir og þegar ástandið er þann-
ig geta ýmsir hlutir skolast til. Aðalpunkt-
urinn í ræðu hans voru „leikreglur“ sem
urðu alltaf að „reikleglum“ og hann kom
því oft á framfæri að það væri mikilvægt að
„virða reikleglur lýðræðisins“.
Góð vinkona Svanhildar gleður hana
reglulega með því að rugla saman orðum.
Hún hefur beðið fólk að fara á BBC að
kaupa fyrir sig sígarettur og breytt þann-
ig umferðarmiðstöðinni við Vatnsmýr-
arveg í einni svipan í ríkisútvarp Breta.
Sú hin sama talar ekki um kunn-
ingjakonur heldur kunningjavinkonur.
Svanhildur segir að hvað þessa einstöku
vinkonu varði sé hún næstum hætt að
heyra þetta. Hún minnist líka á sam-
starfskonu eiginmanns síns, Loga Berg-
manns, sem talaði alltaf um að „bíta í það
súra enni“.
Svanhildur nefnir að lokum atriði sem
hefur vakið furðu hennar, en það er nafn
fasteignasölu hér í bæ sem heitir einfald-
lega Heimili fasteignasala. „Ég hef spurt
mig hversu stór markaður það sé eiginlega
– að selja heimili fasteignasala. Þetta hlýt-
ur að vera þröngur markaður.“
SVANHILDUR HÓLM SKRÁIR NIÐUR
Hversu mörg heimili
fasteignasala er hægt að selja?
Svanhildur Hólm viðurkennir að leiðrétta stundum
ókunnuga en tekur fram að hún geti lítið að því gert.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Svanhildur Hólm á ágætis safn af fyrirsögnum og vill-
um í texta sem hún hefur safnað saman síðustu árin.
Hér má sjá nokkur dæmi:
„Hún er það góð að það er bókstaflega ekkert sem
hún getur sungið,“ segir Ásgeir Orri Ásgeirsson, höf-
undur Unbroken, framlags Íslands í Eurovision í ár.
Hann segir hana geta sungið rokk, blús og popp án
þess að blikna.“ (Blaðaviðtal, 2015)
„Oddvitar í Reykjavík í tilhugunarlífinu – Viðræður
Samfylkingar, Betri framtíðar, Vinstri grænna og Pí-
rata hófust í gær.“ (Fyrirsögn veffréttar, 2014)
„Facebook býður sérsníðaðar auglýsingar. Face-
book mun veita auglýsendum aðgang að upplýs-
ingum úr leitarvélum notenda til að sérsníða auglýs-
ingar.“ (Veffrétt, 2014)
„Skýjakljúfrar taka yfir
London.“ (Fyrirsögn á
veffrétt)
„Norðurlandameistarar í
klamydíusmitum: „Við eig-
um að geta gert betur.“
(Fyrirsögn fréttar á vefmiðli)
Úrklippubók
Svanhildar Hólm