Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2016, Page 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2016, Page 33
6. APRÍL Adam Stagliano Hilde Hammer Jón Bragi Gíslason 7. APRÍL Martin Lindstrom AdamStagliano TBWA HildeHammer Facebook ‘Influencer Marketing’ JónBragiGíslason GhostLamp Hilde starfar sem verkefnastjóri alþjóðasviðs markaðslausna hjá Facebook í Dublin á Írlandi. Hún sérhæfir sig í að aðstoða meðalstór fyrirtæki og umboðsskrifstofur á Norðurlöndunum að vaxa og þróa sína starfsemi með hjálp Facebook. Hilde er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og á meðal annars að baki feril í bankageiranum. Árið 2013 stofnaði Jón Bragi markaðstorgið Ghostlamp sem tengir vinsæla samfélagsmiðla- notendur við fyrirtæki sem vilja koma sér á fram- færi við fylgjendur þeirra. Jón Bragi mun fara yfir þær breytingar sem hafa átt sér stað með tilkomu samfélagsmiðla og hvernig vörumerki geta nú haft meiri áhrif á kaupákvarðanir neytenda. Adam Stagliano stýrir alþjóðlegum markaðs- herferðum TBWA/London og er sérfræðingur í markaðssetningu áfangastaða. Á 25 ára ferli hefur hann markaðssett áfangastaði á borð við Disney- land, Toronto, Plymoth, Norður-Írland og Marokkó. Þá má nefna að frægt markaðsátak sem hann stýrði fyrir ástralska ferðamálaráðið er notað við kennslu í Harvard Business School. Markaðsráðstefna 6.–7. apríl í Háskólabíói Miðar ámidi.is ‘Bigworld small data’ Í kjölfar alþjóðavæðingar og síaukins ferðamannastraums hefur markaðssetningu áfangastaða (place marketing) vaxið fiskur um hrygg. Við slíka markaðssetningu er mikilvægt að þekkja kauphegðun og neyslu- venjur á hverjum áfangastað fyrir sig en í því sambandi geta ýmis sérkenni og jafnvel smæstu staðreyndir (small data) skipt gríðarlega miklu máli. MartinLindstrom höfundur ‘Smalldata’ Nýjasta bók Lindstrom, Small Data - The Tiny Clues That Uncover Huge Trends, er afrakstur fimmtán ára rannsóknar hans á vörumerkjatryggð og kauphegðun. Við vinnslu bókarinnar tók Lindstrom viðtöl við um tvö þúsund manns í 77 löndum sem veita dýrmæta innsýn í daglega hegðun neytenda og hvað sú hegðun getur þýtt fyrir fyrirtæki. Í fyrirlestrinum fjallar Lindstrom um niðurstöður þessarar vinnu og gefur okkur vegvísi fyrir vörumerki 21. aldarinnar, sem mun án efa vekja athygli markaðsfólks sem og annarra sem hafa brennandi áhuga á mannlegri hegðun. Lindstrom er höfundur sex metsölubóka um markaðsmál og árið 2009 valdi tímaritið Time Magazine, Lindstrom sem einn af 100 áhrifamestu hugsuðum veraldar. Lindstrom starfar í dag með nokkrum af stærstu vörumerkjum heims, svo sem LEGO, PepsiCo, Red Bull, Estée Lauder, Nestlé, GlaxoSmithKline, Procter & Gamble og Carrefour. "A modern-day Sherlock Holmes." – Time Magazine Fimmtudagur 7. apríl 09:00-17:00 Miðvikudagur 6. apríl 09:00-12:00 ‘Growing your business on Facebook’‘Destination marketing’ Markaðssetningáfangastaða

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.