Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2016, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2016, Blaðsíða 56
SUNNUDAGUR 6. MARS 2016 Það verður notaleg þjóðlagastemning í húsakynnum Kex hostels dagana 10.-12. mars næstkomandi þegar þjóðlagatónlistarmenn á öllum aldri halda tónlistarveislu fyrir unnendur þjóðlagatónlistar. Þeir listamenn sem koma fram á hátíðinni í ár eru Elín Ey, Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn, Högni Egilsson, Ellen Krisjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson, Ragnheiður Gröndal, Bangoura Band, Ingunn Huld og Skuggamyndir frá Býzans. Snorri Helgason, framkvæmdastjóri hátíðarinnar í ár, segir að pælingin sé að blanda saman mjög ólíkri tónlist. „Við erum að reyna að teygja á þessu hugtaki þjóðlagatónlist. Það er svo gaman að sjá hvernig þessir lista- menn skilja þjóðlagatónlist og sjá hvað þeir koma með. Það er oft svo ólíkt og skemmtilegt,“ segir Snorri. „Salurinn er lítill þannig að það verður svo einlæg og falleg nánd sem myndast.“ Miða er hægt að nálgast á tix.is. Ragnheiður Gröndal er meðal flytjenda á Reykjavík Folk Festival. Morgunblaðið/Ómar Hátíð þjóðlagatónlistar Högni Egilsson mun koma fram á há- tíðinni í næstu viku. Morgunblaðið/Eggert Reykjavík Folk Festival verður haldið í Gym og tónik-salnum í Kex hosteli við Skúlagötu dag- ana 10.-12. mars 2016. Greint var frá því í Morgun- blaðinu fyrir áttatíu árum, 6. mars 1936, að Gísli Sveinsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokks- ins, hefði spurst fyrir um það ut- an dagskrár í neðri deild þings- ins fáeinum dögum áður hvað forsetar þingsins hefðu gert til þess að koma lagi á þingfréttir útvarpsins. Vitnaði Gísli til umræðna þeirra, sem fram höfðu farið í sameinuðu þingi skömmu áður, um þetta mál og þá hefði forseti sameinaðs alþingis lofað að taka málið til nýrrar yfirvegunar. Síð- an hefði ekkert heyrst um málið, en æskilegt væri að fá að vita, hvort von væri á nokkurri bót á þingfréttum útvarpsins, sem væru gersamlega óviðunandi. Ekki kom fram í frétt blaðsins hvers vegna Gísli leit þingfréttir útvarps þessum augum. Á hinn bóginn var tekið fram að framsóknarmaðurinn Jör- undur Brynjólfsson, forseti neðri deildar Alþingis, hefði svarað fyrirspurn Gísla á þá leið, að samningar stæðu enn yfir um málið, en ekki væri hægt að segja neitt um það að svo stöddu, hvað ofan á yrði. GAMLA FRÉTTIN Deilt á þingfréttir Gísli Sveinsson alþingismaður. Jörundur Brynjólfsson alþingismaður. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Marge Simpson í sjónvarpsþáttunum um Simpson-fjölskylduna bandarísku. Jón Sveinsson, Nonni, rithöfundur og prestur, í vetrarbúningi á Akureyri. Ragnheiður Jónsdóttir biskupsfrú á Hólum í Hjaltadal 1674 til 1684. © IL VA Ís la nd 20 16 Vi rð is au ka sk at tu rin n er re ik na ðu ra fv ið ka ss an n. *Að sjálfsögðu fær ríkissjóður 24% virðisaukaskatt af þessari sölu. Verðlækkunin 19,36% er alfarið á kostnað ILVA 4. - 7. mars Föstudag - mánudags TAX FREE HELGI* Gildir ekki um vörur á áður niðursettu verði og vörum merktum “Everyday Low Price” ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.