Morgunblaðið - 14.05.2016, Page 49
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég eins og aðrir tónlistar-áhugamenn set mig í stell-ingar er það tekur að hylla
undir nýtt efni frá Radiohead. Ég
fæ fiðring, verð spenntur … já,
hlakka til. Þessar plötur eru settar
í umsvifalausa djúphlustun og
þannig hef ég nánast ekki hlýtt á
neitt annað undanfarna tvo sólar-
hringa en A
Moon Shaped
Pool, sem er
níunda plata
sveitarinnar
(þetta er skrif-
að á þriðju-
degi). Sofnaði
í sófanum út
frá henni í gær, fór þá með hana
upp í rúm og hlýddi þar áfram með
heyrnartólum. Platan hefur svo
fyllt stofuna í dag.
Radiohead er einstök sveit, fá-
ar nústarfandi rokksveitir – ef ein-
hverjar – hafa komist upp með að
toga og teygja rokkformið á jafn
glannalegan hátt og hún án þess að
tapa vinsældum. Radohead hefur
rutt brautir á margvíslega vegu
undanfarin tuttugu ár eða svo og
líkt og annar brautryðjandi, Björk,
nýtur hún ómældrar virðingar um
heim allan, er dýrkuð og dáð, en á
sama tíma kemst hún upp með
hvað sem er.
Plötur hennar eru þá jafn ólík-
ar og þær eru margar og gæðunum
Draumóramenn læra aldrei
Einstök Radiohead þykir með merkustu rokksveitum sögunnar. A Moon Shaped Pool er níunda hljóðversplata hennar.
er misskipt. Pablo Honey (1993)
var mistæk, ef ekki bara léleg, en
snilldin kviknaði á The Bends
(1995). OK Computer (1997) er iðu-
lega talin eitt helsta afrek rokksög-
unnar en þó trompaði sveitin það
með Kid A (2000) en aðeins Sgt.
Pepper Bítlanna er djarfari þegar
kemur að einskæru hugrekki og
framsýni hvað möguleika rokk-
tónlistar varðar. Segi og skrifa
það. Amnesiac (2001) var hins veg-
ar hálfgerð afgangsplata og Hail to
the Thief (2003) er lakasta verk
sveitarinnar til þessa, að fráskild-
um frumburðinum. Eyjólfur hresst-
ist hins vegar á In Rainbows (2007)
og síðasta verk, The King of Limbs
(2011) er hreinasta afbragð. Köld
og stafræn mjög en mikill karakter
í henni. Ánetjandi eiginlega.
A Moon Shaped Pool er allt
öðruvísi. Í stað kuldans er hlýja, í
stað höktandi takta og hvassra
teknóhljóma erum við sveipuð með
strengjum og lögin flæða fallega, ó
svo fallega, áfram. Já, þetta er svo
falleg plata eitthvað! Hún er aldrei
ágeng, það brestur aldrei á með
gítarýlfri eða látalátum heldur
rennur hún áfram með hægð eins
og hún vilji nánast lítið á sér bera.
Og þannig borar hún sig inn í þig,
smátt og smátt, eins og dropi sem
holar stein.
Við höfum þegar heyrt tvö
fyrstu lögin. „Burn the Witch“ er
með dramatískum stíganda og
strengir leiða framvinduna. „Day-
dreaming“ er hins vegar mikil-
úðlegt og fagurt. Epískt, eiginlega
„kvikmyndalegt“. Frábært mynd-
band Paul Thomas Anderson hæfir
því fullkomlega. Stundum er kvart-
að yfir því að það heyrist ekki
lengur í gíturum í gítarbandinu en
þrír meðlimir munda slíka gripi.
Trommur hafa þá oft þurft að víkja
fyrir forrituðum töktum. Hér fá
þessi hljóðfæri hins vegar pláss, þó
aldrei séu þau sérstaklega áber-
andi. Ég mæli nefnilega með því að
fólk taki þessa plötu í nokkur
heyrnartólarennsli því að hin og
þessi hljóð og hljómar gera vart
við sig á lymskulegan hátt og
styðja þannig við heildarmyndina.
Það er fullt í gangi í hverju og einu
lagi þó að maður verði ekki var við
það í „hefðbundinni“ hlustun. En
já, gítarar og trommur koma þann-
ig inn í þriðja lagi, „Decks Dark“
og „Desert Island Disk“ hefst
meira að segja með áberandi gítar-
plokki í spænskum/klassískum stíl.
Eins og staðan er akkúrat núna á
ég erfitt með að pikka eitt lag út,
þetta er afar jöfn plata gæðalega
séð, hvert og eitt lag er lítið ævin-
týri. Nefni þó hið frábæra „The
Numbers“ sem er litað af hinum of-
ureðlilegu hljóðfærum gítar, bassa,
trommum og píanói – en um leið er
auðvitað ekkert eðlilegt við lagið.
Frekar en við nokkuð annað hér.
Radiohead eru með „eitthvað“ sem
skilur hafra frá sauðum og ein-
hverra hluta vegna á hún gnægð af
slíku töfradufti, duft sem aðrar
sveitir geta aðeins látið sig dreyma
um.
A Moon Shaped Pool er í
stuttu máli sagt frábær plata,
runnin undan rifjum algerra yfir-
burðamanna í faginu. Radiohead
þorir, er skipuð draumóramönnum
sem aldrei læra svo ég vitni í texta
„Daydreamers“. Sem betur fer.
» A Moon ShapedPool er allt öðruvísi.
Í stað kuldans er hlýja,
í stað höktandi takta
og hvassra teknóhljóma
erum við sveipuð með
strengjum og lögin
flæða fallega, ó svo
fallega, áfram.
Ný plata Radiohead, A Moon Shaped Pool, kom út á sunnudaginn og var upptakturinn að útgáfunni
með skemmra móti. Við rýnum í þessa afurð einnar af merkustu rokksveitum sögunnar.
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2016
Bryan Ferry,
einn farsælasti
dægurtónlistar-
maður samtím-
ans, heldur tón-
leika á annan í
hvítasunnu kl.
20 í Eldborgar-
sal Hörpu,
ásamt hljóm-
sveit. Á þriðja
tug tónlistar- og
tæknimanna eru með í för og
Ferry mun flytja mörg af sínum
þekktustu lögum, bæði frá sóló-
ferlinum og árunum með Roxy
Music og lög af nýjustu plötu
sinni, Avonmore.
Ferry heldur tón-
leika í Eldborg
Bryan Ferry
Kvikmyndaleikkonan og -leikstjór-
inn Jodie Foster sækir kvikmynda-
hátíðina í Cannes sem hófst í vik-
unni og frumsýnir á henni nýjustu
kvikmynd sína, Money Monster.
Foster tók í fyrradag þátt í um-
ræðum á hátíðinni sem báru yfir-
skriftina „Women in Motion“ og
ætlað var að vekja athygli á stöðu
kvenna í kvikmyndabransanum og
framlagi þeirra til kvikmynda. Var
m.a. rætt um nýja skýrslu mið-
stöðvar háskóla í San Diego sem
kannar þátttöku kvenna í gerð
sjónvarpsefnis og kvikmynda en í
henni kemur fram að konur leik-
stýrðu aðeins 7% þeirra 250 kvik-
mynda sem nutu mestrar aðsóknar
í Bandaríkjunum árið 2014.
Foster sagðist hafa beðið umræð-
unnar um það hvers vegna svo fáar
konur væru við stjórn í kvikmynda-
gerð í 40 ár. Í upphafi ferils hennar
hafi engar konur verið við kvik-
myndatökur að undanskildum leik-
konum og förðunardömum. Það
hafi sem betur fer breyst en stjórn-
endur stóru kvikmyndaveranna
væru þó enn hræddir við að ráða
konur sem leikstjóra, teldu það af
einhverjum ástæðum áhættu á tím-
um ofurhetju- og framhaldsmynda
„Góðu fréttirnar eru þær að smekk-
ur áhorfenda er að breytast því þeir
eru orðnir leiðir á því að fá sama
morgunkornið á hverjum degi. Ég
hlakka til framtíðarinnar,“ sagði
Foster.
Í Cannes Jodie Foster frumsýnir
nýjustu kvikmynd sína í Cannes.
Foster segir stjórnendur kvikmyndavera
hrædda við að ráða kvenleikstjóra
ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 1:50, 3:50, 5:50
ANGRY BIRDS 3D ÍSL.TAL 2, 4:15
ANGRY BIRDS ENS.TAL 5:50, 8
BAD NEIGHBORS 2 8, 10
CAPTAIN AMERICA 7,10
RATCHET & CLANK ÍSL.TAL 1:50,3:50
MAÐUR SEM HEITIR OVE 10:10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 1:50
TILBOÐ KL 1:50
T ÍMAR G I LDA 1 4 . , 1 5 . & 1 6 . MA Í