Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2016, Síða 26

Náttúrufræðingurinn - 2016, Síða 26
Náttúrufræðingurinn 98 við fjalldrapa (Betula nana L.).3,4 Undirtegundum með svipað vaxtar form og erfðablöndun við lágvaxnari tegundir birkis hefur verið lýst víðar, svo sem Betula pube- scens ssp. tortuosa (Ledeb.) Nyman sem fyrst var lýst í Altajfjöllum í Asíuhluta Rússlands og ssp. czerepanovii (N.I. Orlova) Hämet- Ahti sem vex við skógarmörk í Skandinavíu og aðgreind hefur verið frá ssp. tortuosa.5 Allar eiga þær það sammerkt að vaxa við skógarmörk og hafa því oft verið kallaðar fjallabirki (e. mountain birch).5 Þar er meðtalin íslenska ilm björkin þótt seinni tíma erfða- rannsóknir hafi sýnt að vegna mikils erfðabreytileika sé tæpast hægt að tala um eina sérstaka undirtegund ilmbjarkar á Íslandi.4 Hér verður notast við heitið birki eða íslenskt birki. Samkvæmt skilgreiningu Mat- væla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) getur aðeins lítill hluti náttúrulegu birkiskóganna á Íslandi kallast skógur. Samkvæmt skil greininga skrá hennar er skógur trjávaxið land þar sem fullvaxta tré ná að lágmarki 5 m hæð og 10% krónuþekju á svæði sem er að lágmarki 0,5 ha að stærð.6 Meirihlutinn fellur þó undir það sem FAO kallar „annað viði vaxið land“ (e. other wooded land), land þakið trjám eða runnum sem fullvaxta ná ekki 5 m hæð en hafa meiri en 10% krónuþekju. Á Íslandi hefur skapast sú hefð að kalla lágvaxnari trjágróður skóg og í stað 5 m lágmarkshæðar eru 2 m valdir sem lágmarkshæð í íslenskri skilgreiningu á skóglendi.7 Hér verður fjallað um allt land vaxið náttúrulegu birki óháð hæð þess en að öðru leyti fylgt skilgreiningum FAO um lágmarksflatarmál og -krónuþekju. Sameiginlega verður það kallað birki eða birkilendi. Útbreiðslusaga birkis Mikið hefur verið rætt og ritað um útbreiðslu birkis á Íslandi og hvernig hún hefur dregist saman frá landnámi. Rannveig Ólafsdóttir Hitaþróun hefur líklega verið álíka og annars staðar á norðurhveli, hlýtt fyrstu aldirnar en síðan kólnað um og eftir 13. öld. Hlýnun hófst ekki aftur að marki fyrr en á fyrri hluta 20. aldar.15 Þetta kuldaskeið hefur verið kallað litla ísöldin. Hitastigsmælingar sýna nokkuð skrykkjótta hlýnun á Íslandi en meðalhitastig árs hefur hækkað um 0,71°C á öld á tímabilinu 1800 til 2007.14 Þrátt fyrir þessa hlýnun var hitafar á síðustu öld líklega svipað hitafari fyrstu alda Íslandsbyggðar. Því má ætla að mögulegt útbreiðslusvæði birkis á Íslandi á þessum tveimur tímabilum sé svipað. Niðurstöður ýmissa rannsókna benda til þess að skógi og kjarri hafi verið eytt skipulega á þéttbýlustu og bestu landbúnaðarsvæðum lands- ins á fyrstu öldunum eftir land nám til að rýma fyrir akuryrkju, beit húsdýra og heyöflun. Frjókorna- rannsóknir sýna að mjög fljótlega eftir landnám verður skyndilegt fall í frjómagni birkis, og rennir það stoðum undir þessa kenningu.16 Svipuð þróun átti sér stað í ná - granna löndum þegar teknir voru upp búskaparhættir fastrar bú - setu.17,18 Í nýlegri rannsókn var sýnt fram á að viðartekja úr skógun- um gat ein og sér ekki skýrt þá miklu eyðingu skóglendis sem átti sér stað eftir landnám.12 Fjær byggð var skógareyðingin hægari og sums staðar var reynt að haga nýtingu skógarins þannig að hann viðhéldist, því að skógur var verðmæt auðlind. Skógarítök, það er rétturinn til að nýta og safna viði úr skógum, voru verðmæti sem haldið var vel til haga. Margt bendir þó til þess að stjórn á nýtingu skóganna hafi losnað úr reipunum fljótlega eftir siðaskiptin, ekki síst þar sem kirkjujarðir áttu skógarítök. Þannig verður mest skógareyðing á ítökum kirkjujarða í Þjórsárdal á sautjándu öld en þar var eitt helsta svæði skógarítaka á Suðurlandi á þeim tíma.19 Viður úr birkiskógum var mikilvægur orkugjafi allt fram á síðustu öld og var eldiviðartekja úr skógum stunduð fram yfir síðari heimsstyrjöld.20 o.fl.8 notuðu líkön til að áætla útbreiðslu birkiskógar við landnám út frá hitastigi. Niðurstaða þeirra var að birkiskógur sem verður fullvaxta hærri en tveir metrar hafi einungis þakið um 8.000 km2 við landnám og að núverandi útbreiðsla gæti að hámarki verið rúmir 5.000 km2. Páll Bergþórsson9 áætlaði út frá sérstökum vaxtareiningum sem metnar voru með sumarhita að birkiskógur sem nær meira en 3 m hæð hafi þakið um 15.000 km2 við landnám. Páll tók mið af veðurfari tímabilsins 1931–60 sem var frekar hlýtt tímabil miðað við áratugina á undan og eftir. Snorri Sigurðsson10 bar saman ýmsar heimildir um skóglendi, svo sem örnefni, kolgrafir og hitafarsmörk birkis í Noregi, og komst að þeirri niðurstöðu að birkiskógur hafi þakið um 28.000 km2 við landnám. Í nýlegri rannsókn á skógarmörkum og trjámörkum birkis á Íslandi,11 var skoðaður sumarhiti við efstu mörk núverandi útbreiðslu birkis. Niðurstöðurnar voru þær að land undir trjámörkum væri að flatarmáli um 41.500 km2 en land undir skógarmörkum, þar sem birkið nær 2 m hæð fullvaxta, um 25.000 km2. Einnig voru könnuð hafræn áhrif og kom í ljós að skógarmörk og trjámörk hækkuðu með aukinni fjarlægð frá hafi og lækkandi klórstyrk í grunnvatni. Klórstyrkur í grunnvatni er vís- bending um ákomu sjávarsalts, sem takmarkar vöxt og viðgang trjágróðurs. Fleiri fræðimenn hafa reynt að meta útbreiðslu birkis við landnám og birtist nýjasta matið í doktorsritgerð Nikolasar Trbojević.12 Hann útfærir nánar Íslandskort Náttúrufræðistofnunar Íslands sem sýnir mat á útbreiðslu gróðurs við landnám, þ.m.t. birkilendis.13 Niðurstaða hans er að birkiskógur og birkikjarr hafi þakið tæpa 24.000 km2 við landnám. Flest veðurvitni, svo sem rann- sóknir á vatna- og sjávarseti og ritaðar heimildir, benda til tölu- verðra sveiflna í veðurfari á Íslandi frá landnámi og fram til þess tíma að fastar veðurmælingar hófust á Íslandi snemma á 19. öld.14
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.