Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2016, Síða 30

Náttúrufræðingurinn - 2016, Síða 30
Náttúrufræðingurinn 102 voru notaðir, <2 m (2. mynd), 2–5 m (3. mynd) og > 5 m (4. mynd). Við mat á hæð fullvaxta trés var litið til eldri trjáa á hverju svæði (5. mynd). Breytum sem safnað var fyrir hvern fláka og gildum þeirra er lýst nánar í 1. viðauka. Í kjölfarið var byggður upp landfræðilegur gagnagrunnur sem sýnir útbreiðslu birkis á Íslandi og helstu eiginleika þess. Aldursgreining Í hverjum fláka var aldur ríkjandi trjálags metinn sjónrænt með því m.a. að rekja niður trjástofninn ársvöxt síðustu ára. Til þess að ákvarða nákvæmni matsins var á stöku stað safnað sýnum úr trjám til aldursgreiningar. Þessi sýni voru borsýni þegar um stærri tré var að ræða en sneiðsýni úr minni trjástofnum. Sýnin voru tekin úr stofnunum rétt ofan við rótarháls. Hvert sýni var merkt með dagsetningu og hnattstöðu. Alls var safnað 55 sýnum nokkuð jafndreift yfir landið. Aldur sýna var greindur í árhringjamælitæki á Mógilsá og greindur aldur borinn saman við skráðan aldur fyrir sömu hnattstöðu. Breyting á útbreiðslu birkis Breyting á flatarmáli birkis á 23 ára tímabili, 1989–2012, var metin með samanburði á úttektunum 1987–91 og 2010–14. Þau svæði sem sköruðust á milli kortlagninga voru metin sem eldra birki, þ.e. birkið sem var til staðar árið 1989, en þau svæði sem ekki sköruðust voru ýmist metin sem landnám birkis frá árinu 1989 eða sem eldra birki sem ekki hafði verið kortlagt áður. Til að skera úr um þetta var notuð aldursflokkagreining þar sem birkilendi var skipt í tvo flokka, undir 15 ára og 15–30 ára. Öll svæði í fyrrnefnda flokknum voru metin sem landnámssvæði birkis eftir 1989, en helmingur svæða í síðarnefnda flokknum. Ástæða þess að helmingur svæðanna í seinni aldursflokknum var einungis metið sem landnámssvæði birkis frá 1989 var sú aldursflokkurinn nær aftur til 1980–84, og má því gera ráð fyrir að um helmingur landnámsins í honum hafi verið fyrir árið 1989. Breytingar á hitafari og fjölda sauðfjár á rannsóknartímanum Til þess að reyna varpa ljósi á sam- band landnáms birkis við loft hita annars vegar og sauðfjárbeit hins vegar var þetta athugað sérstaklega 2. mynd. Lágvaxtarform birkis á Íslandi. Birkikjarr eða kjarrskógur (< 2 m fullvaxta) í Straumshrauni á Reykjanesskaga. – Low stature of birch woodland in Iceland. Shrubland (< 2 m height at maturity) in Reykjanes peninsula in Southwest Iceland. Ljósm./Photo: Arnór Snorrason 2016. 3. mynd. Miðlungs-vaxtarform birkis á Íslandi. Lágskógur (2–5 m fullvaxta) sunnan Hafnarfjarðar. – Middle stature of birch woodland. Pure woodland (2–5 m height at maturity) south of the town of Hafnarfjörður in Southwest Iceland. Ljósm./Photo: Arnór Snorrason 2016.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.